Sveitarstjórnarmál - 01.12.1941, Page 32
28
SVEITARSTJÓUNARMÁL
Skipting í hverfi.
— Þegar skipulagt er, verður að greina
skýrt milli einstakra hverfa, svo sem
íbiiðarhverfa, verzlunarhverfa og iðn-
aðar- eða verksmiðjuhverfa. Enn fremur
skulu því, sem að umferðinni lýtur, svo
sem umferðarmiðstöðvum, bifreiðastæð-
um og öðru slíku, valin heppileg svæði í
greiðu sambandi við gatnakerfið.
Um verzlunarkjarna bæjanna er það
að segja, að þegar um mikla stækkunar-
þörf bæja er að ræða og skipulagsupp-
drátturinn gerir svo ráð fyrir, þá flytj-
ast þessi bæjahverfi til og fylgja byggð-
inni og fólksstraumnum. Skapast því
venjulega ný verzlunarhverfi með mikið
auknum ibúðarhverfum, en ætíð verður
að ætla þeirri starfsemi nægilegt rúm.
Garðalönd og opin svæði.
— Um nýbýlahverfi og garðrækt við
útjaðra bæjanna er það svo, að það er
ekki nóg að geta sýnt ákveðna tölu fer-
metra garðlanda ú hvert mannsbarn bæj-
anna, heldur er hitt aðalatriðið, að slik
garðalönd liggi vel við umferð og greið-
fært sé að komast þangað fyrir ibúana.
Þess ber mjög að gæta, að smábygging-
um þeim, sem til að sjá setja svip sinn
á þessi hverfi, séu skipulega sett niður
og frágangur sé sem beztur. Með rækt-
unar- og nýbýlalöndum við jaðar bæj-
anna er hlúð að því, að íbúarnir hafi
heilbrigða ánægju af því að komast úr
skarkala borganna og varpa af sér á-
byggjum dagsins við ræktun margs
konar nytjajurta til heimilisins, í frjáls-
ara umhverfi en þyrping bæjanna getur
af mörkum látið.
Opnu svæðin inni í sjálfum kjarna
bæjanna eru einnig eitt hinna þýðingar-
miklu viðfangsefna skipulagsins. Þessi
svæði eiga að skapa greitt samband milli
hinna þýðingarmeiri bæjarhverfa, og
það, sem við þau er byggt, þarf að vera
þannig úr garði gert, að það auki feg-
urðarverðmæti bæjarins, um leið og hlut-
verk þeirra er það, að vera eins konar
lungu byggðarinnar.
Skipnlagstillögur mn fijrirkomulag bggginga í hinu nýja háskólahuerfi við Melaveg, sku. uppdráttum
húsameistara ríkisins, próf. Guðjóns Samúelssonar. — Ncðan aðalbrautarinnar, senx scst neðst á
mgndinni, eru fgrirluxgaðir hinir opnu vellir og skriiðgarðar Reykjavíkurbœjar.