Sveitarstjórnarmál - 01.12.1941, Side 38
34
SVEITARSTJÓRNARMÁL
þau verðmæti eru mikil, sem lögð eru i
byggingu borgar.
Það, sem einkum fer aflaga í þeim
efnum hjá okkur, er meðal annars of
litlar lóðir, sem gera forgarða að götu of
litla og bakgarða þrönga og óvistlega.
Húsin vilja verða hvert öðru lík og
skorta mjög tilbreytni, með þröngum og
oft illa gerðum íbúðum. Hér er illa farið
með verðmæti, og varhugaverð braut,
sem vissulega þyrfti frekari íhlutunar
byggingayfirvaldanna, og það er fullvíst,
að i slíkum hverfum dregst arðurinn
saman að fáum árum liðnum, þegar fólk
rekur sig á gallana og rýmri, fullkomn-
ari hverfi skapast, svo sem t. d. byggðin
á Melunum, svo dæmi séu nefnd.
í innbænum er því víða svo háttað, að
ógrynni bakhúsa með rjúkandi iðn-
rekstri svælir burtu þann möguleika, að
hreint loft komist inn í ibúðir manna,
þegar gluggi er opnaður. Bakhús og
slcúrar fylla víða lit hið annars óbyggða
svæði, sem ibúum húsanna var ætlað til
afdreps frá göturykinu.
Skúrarnir spretta upp eins og gor-
kúlur, vegna þess að geymslur húsanna
— í kjallaranum — eru leigðar út sem
íbúðir þrátt fyrir lagalegt bann við
slíku.
Hér eril hvað mestar meinsemdir i
ibúðahverfum og bráðnauðsynlegt verk-
efni að ganga fyrst og fremst í skrokk
á hinum fjölbreytta smáiðnaði í bak-
húsagörðum og marka honum ákveðin
svæði utan byggðarinnar, en á hentugum
nærliggjandi stöðum.
Kjallaraíbúðum þeim, sem ekki upp-
fylla ákveðin skilyrði til mannabústaða,
þarf að fækka, en þær eru vissulega of
margar og óhollar.
A síðari árum hefur mikið liðkazt að byggja samvinnubú-
staði í Reykjavik, þar sem filög eða frjáts samtök hafa
komið sir upp bústöðum i ákvcðnum hverfum, afmörkuðum
°!Í byggðum í samrœmi við þarfir og getu bgggjenda.
„Fitagsgarður“ í vesturbœnum er citl þessara nýju hverfa,
sem sett hefur svip sinn á nokkrar nýjar götur vesturbœj-
arins. Hefur aðatlcga verið bgggt eflir þrcinur fyrirmyndum,
og einmitt sú tilhögun setur svip tilbreytni á slik sam-
vinnuhvcrfi.