Sveitarstjórnarmál - 01.12.1941, Síða 40
36
SVEITARSTJÓRNARMÁL
Ábcmndi sýnishorn af lclcgri húsagerð við fjölfarna götu.
Pessi mgnd sgnir einnig mjög lélega húsagerð við „háborg“
Regkjavíkur.
Umgengni og þrifnaður.
— En hið fegursta hús og
beztu byggð er hægt að eyði-
leggja fyrir sjónum manna
með slæniri umgengni og van-
hirðu á lóðum.
Þvi miður yrði of langt upp
að telja allt, sem aflaga fer í
þeim efnum, bæði hjá almenn-
ingi svo og hjá því opinbera.
íslendingar eru sennilega í
fremstu röð meðal þjóðanna í
þeim efnum að tileinka sér
allt það, sem er nýtilegt og
gott í byggingu borga og bæja,
en á sviði hreinlætis (bæjar-
hygiene) eru þeir enn þá á
frumstigi.
Ábendingar, sem fram hafa
komið um nærtæk dæmi, hafa
verið lesnar sem dálkafylling-
ar blaðanna, en lítið gert til
úrhótar.
Bæir og kauptún landsins
eru spegilmynd af menningar-
ástaudi þjóðarinnar, og tírni
til kominn að hrinda af sér
„Sviðinsvíkur“-orði H. K. L„
en mér er sérstaklega kunn-
ugt um það, að enn þá eru til
þeir staðir — fleiri en einn
— á voru landi, sem gefa
nægilegt efni í skáldsögur
þeirra manna, sem leggja sig
eftir að lýsa þjóð sinni á
mælikvarða óþrifnaðar og
menningarleysis. Slík yrkis-
efni þarf að kveða niður, en
gagnleg eru þau aðeins til á-
bendingar því, sem aflaga fer,
en ekki sem allsherjar kynn-
ing á þjóðinni, því vissulega
eru augu manna mikið að
opnast fyrir því,. sem rétt er
og rangt í þessum efnum, og
vilja gera sitt bezta, þegar á
hlutina er bent í fullri ein-
lægni.