Sveitarstjórnarmál - 01.12.1941, Side 43
SVEITARSTJÓRNARMÁL
39
Mynd þessi er einnig frá Isafirði og sgnir samvinnubústaði þar á staðnum,
sem slallast upp mcð brattri götu. Staðsetning búsanna cr mjög rétt, en gfir-
lcitt er varhugavert að sniða húsin sjálf um of úr sama móti. Gerir það bgggð-
ina of einhliða og leiðinlega, en það að samrœma bgggðina scm mest og setja
niður skipulega, cins og ég að framan hef ofl minnzt á, bgggist á ailt öðrum
forsendum en þeim, að raða upp fjölda hlula sömu gerðar.
Góð samvinna milli byggingaryfirvalda
bæjanna og skipulagsnefndar er nauð-
synlegt skilyrði fyrir heppilegri fram-
kvæmd skipulags á hverjum stað. Dæmin
um þetta má sækja frá öllum stærri
kauptúnum víðsvegar um landið, þar
sem uppdrættir hafa verið staðfestir.
í þeim efnum hefur skipulagsnefndin
unnið mjög merkilegt starf síðan skipu-
lagslögin gengu í gildi, og hefur starf-
semi nefndarinnar úti um land borið
þann ávöxt, að nú má heita, að grund-
völlur sé fenginn í aðalatriðum fyrir
byggingu flestra kauptúna landsins.
Eftirmáli.
Hér hefur verið stiklað á nokkrum
helztu atriðum í skipulags- og byggingar-
málunum, en vissulega verða því ekki
gerð full skil í svo stuttu máli, með
mörgum viðkomustöðum.
Ég þykist þó liafa leitazt við að skýra
nokkur grundvallaratriði skipulagsvinn-
unnar og viðhorf hennar hér hjá okkur.
Dæmin hafa einkum verið sótt til
Reykjavíkur, enda hlýtur höfuðborgin
að marka forystuna um bætta byggingar-
háttu landsmanna og verða hin sannasta
spegilmynd af þroska þjóðarinnar i
þeim efnum.
En til þess .að það megi takast, verður
þjóðin öll að hrinda af sér mörgum
gömlum fordómum og gera sér far um
að virkja allt það afl, sem varpað getur
nýju og meira ljósi á þessar athafnir
okkar, því til skamms tíma hafa þær
borið. of mikinn keim af bæjum gull-
leitarmanna, þar sem hröð bygging hý-
býla AÚð nýjar auðlindir hefur orðið
fyrirhyggjunni sterkari og misst verið
sjónar á framtíðinni.
Það, sem hér er tilfært að framan, ber
ekki að skoða sem neina tæmandi grein-
argerð um þessi mál, — síður en svo.