Sveitarstjórnarmál - 01.12.1941, Qupperneq 44
40
SVEITARSTJÓRNARMÁL
Sami’inmibústadir i höfuðborg Norðurlands — Akureyri. — Bústaðir þcssir eru
ftjótt á að títa mjög skipulega gcrðir, en þó venst slík cinhliða bgggð ckki vel,
þegar lil tengdar tœlur, þvi það er tilbregtnin, scm á að gcfa bgggðinni líf.
Hins vegar er Akuregri vaxandi bær, sem hefur mikil og góð skilyrði fgrir for-
gstu um trjárœkt í húsagörðum og skrtiðgörðum, sem aðrir bœir landsins mœttu
margt gott af lœra.
Hér hefur aðeins verið drepið á aðalat-
riðin, en öllum nánari útskýringum
sleppt. Frekari skil á þessu verkefni
bíða seinna tækifæris.
Þegar athuguð eru þau atriði, sem
liggja fyrir til úrlausnar í sambandi við
skipulagsmál og að nokkru leyti er minnzt
á hér í upphafi, ber fyrst að líta á, hvar
byggja skuli bæina (eða kauptúnin). Þar
næst kemur gatnakerfið og umferðin,
síðan húsin sjálf og nánasta umhverfi.
Auk þessa ber að taka sérstakt tillit til
opinna svæða, garða og torga, og að lok-
um skiptingu byggðarinnar i afmörkuð
athafnasvæði, svo sem liöfn, iþrótta-
svæði, verksmiðju- og iðnaðarsvæði,
íbúða- og verzlunarhverfi.
Enn fremur eru heilbrigðismálin þýð-
ingarmikill þáttur i byggingu hverrar
borgar.
ÖIl nánari greinargerð þessara atriða,
hvers uni sig, hlýtur að bíða, og ég vona,
að tækifæri gefist til þess að gera þeim
nánari skil, með hliðsjón af dæmum úr
núverandi byggingu islenzkra bæja og
erlendra.
Nýr kaupstaður.
Hinn 14. maí s. 1. voru á Alþingi sam-
þykkt lög um bæjarstjórn á Akranesi.
Bætist þar í hóp kaupstaðanna frá næstu
áramótum stærsta kauptúnið á landinu
og verður lögsagnarumdæmi fyrir sig, er
nær yfir allan Ytri-Akraneshrepp.
Akranes hefur vaxið mjög hin síðari
ár, og árið 1929 var settur þar sérstakur
lögreglustjóri, er jafnframt gegndi odd-
vitastörfum um skeið. En ekki þótti það
reynast vel, frekar en annars staðar þar,
sem sú tilhögun hefur verið, og var því
kosinn þar oddviti á ný, með sama hætti
og í öðrum hreppum. Mun þessa nýja
kaupstaðar sérstaklega minnzt í næsta
hefti þessa rits.