Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.12.1941, Page 47

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1941, Page 47
SVEITARSTJÓRNARMÁL 43 innheimtu jiessara skulda hjá öðr- um sveitarfélögum, nema sannað sé, að sveitarfélag það, sem styrkinn hefur lagt út, hafi gert tilraunir til að fá hann endurgreiddan beint, eða án milligöngu ráðuneytisins, og svar sveitarfélags þess, sem krafið er, liggi fyrir. Vanræki sveitarfélagið, sem krafið er, að svara slikri kröfu, svo réttur þess til að mótmæla tap- ist, verður það talin fullnægjandi tilraun til innheimtu af hálfu þess sveitarfélags, sem kröfuna á. 3. Til þess að auðvelda framkvæmd þessa ákvæðis, vill ráðuneytið leggja fyrir sveitarstjórnirnar að gera við hver áramót upp viðskipti þessi milli sveitarfélaganna, þannig að þær kröfur, sem myndazt hafa frá 12. febrúar 1940 til ársloka það ár og ekki hafa verið greiddar, verði tekn- ar saman á sérstaka slcýrslu, og fylgi henni sönnunargögn þau, sem krafizt er, og verði krafan þannig send til eftirlitsmanns sveitarstjórn- armálefna fyrir 1. júní nú í ár. Verði sama regla síðan viðhöfð eftirleiðis, að ríkissjóður verði ekki krafinn ábyrgðar sinnar fyrir þess- um viðskiptum sveitarfélaganna, fyrr en að árinu liðnu og þá á þann hátt, sem að ofan segir. Jöfnunarfé sveitarfélaganna verð- ur notað til greiðslu á þessum við- skiptum þeirra, og því er rétt, að kröfurnar berist um líkt leyti og skýrslur sveitarfélaganna um fá- tækraframfærslu þeirra berast hingað. Að lokum skal það tekið fram og á það lögð sérstök' áherzla, að þó ákvæði þessi um ábyrgð ríkissjóðs á viðskiptum sveitarfélaga hafi verið lögleidd, her vitanlega að líta á það fyrst og fremst sem tryggingu hins opinbera fyrir því, að skuld, sem eitt sveitarfélag tekur á sig vegna annars, án þess að geta tryggt sér endurgreiðslu, tapist ekki, en hins vegar ber hverju sveitarfélagi að gera allt, sem í þess valdi stendur, til að inn- heimta slikar kröfur sjálft og ekki grípa til þess að leita aðstoðar ríkissjóðs um innheimtu á þeim, fyrr en aðrar leiðir eru lokaðar. Stefán Jóli. Stefánsson. Vigfús Einarsson. Stækkun Mýrasýslu. Á sýslufundi Mýrasýslu, sem haldinn var í Borgarnesi 6. maí s. 1., var sam- þykkt svofelld ályktun: „Þar sem vitað er, að fyrir Alþingi liggur frumvarp til laga um að Akranes fái bæjarréttindi og losni þannig úr tengslum við Borgarfjarðarsýslu, telur sýslunefnd Mýrasýslu rétt, að tekið sé til athugunar, hvort eigi væri rétt, að fimm hreppar Borgarfjarðarsýslu ofan Skarðs- heiðar sameinuðust Mýrasýslu. Má í því sambandi benda á, að landfræðilega og verzlunarlega virðist eðlilegt, að Borgar- fjarðarhérað frá Skarðsheiði að Hitará myndi eitt sýslufélag.“ Þeir fimm hreppar, sem sýslunefnd Mýrasýslu vill fá lagða til sýslunnar, eru: Andakílshreppur, Skorradalshrepp- ur, Lundarreykjadalshreppur, Reykholts- dalshreppur og Hálsahreppur. Ef breyt- ing þessi yrði gerð, mundu eftir verða í Borgarfjarðarsýslu einir fjórir hreppar, þ. e. Strandarhreppur, Skilmannahrepp- ur, Innri-Akraneshreppur og Leirár- og Melahreppur. Akraneskauptún fær hæj- arréttindi frá næstu áramótum og telst eftir það ekki til sýslunnar. Næði hreyting þessi fram að ganga, yrði Borgarfjarðarsýsla þriðja minnsta sýsla landsins. Minni eru Hnappadals- sýsla og Kjósarsýsla, sem aðeins hafa þrjá hreppa hvor.

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.