Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.12.1941, Page 67

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1941, Page 67
SVEITARSTJÓRNARMÁL 63 Vörugjaldið í Vestmannaeyjum. Með lögum frá 1933 fékk Vestmanna- eyjakaupstaður heimild til þess að leggja sérstakt vörugjald á vörur, sem fluttar A'oru til og, frá Vestmannaeyjum, og rann gjald þetta í bæjarsjóð Vestmanna- eyja. Var þetta gert á þeim tímum, er fjár- hagsörðugleikar kaupstaðanna fóru fyrir alvöru að gera vart við sig. Nokkrum á- greiningi olli þessi lagasetning þegar í byrjun, þar sem einum kaupstað lands- ins var með þessu veittur tekjustofn, sem öðrum var synjað um á sama tíma. Lög þessi giltu fyrst til ársloka 1935, en hafa siðan verið framlengd á hverju ári, þar til á þinginu 1941 að fellt var að framlengja lögin, og fellur því þessi tekjustofn jVestmannaeyjakaupstaðar niður frá áramótum 1942 að telja. Vestmannaeyjar hafa haft af tekjum þessum verulegan stuðning á undan- förnum árum. Nam vörugjaldið: 1938 ......... kr. 39 107.32 1939 ........... — 30 924.99 1940 ........... — 23 997.33 Sést af þessum tölum, að kaupstaðurinn missir nokkurs í, er tekjustofn þessi hverfur nú. Næsta óskiljanleg er sú ráðstöfun Al- þingis að fella þennan tekjustofn bæjar- félagsins niður. Yfir bæjarfélög og kauptún landsins, hafa nú gengið mörg erfiðleikaár og þau sokkið í skuldir mörg hver. Þó að eitt ár komi nú, eftir öll erfiðleikaárin, sem gott getur talizt, er það ekki nægileg á- stæða fyrir afnámi laganna. Rcttast sýn- ist að þessi „mistök" Alþingis yrðu lag- færð við fyrsta tækifæri. Vill nú svo vel til, að aukaþing mun koma saman bráðlega, og mætti þá lag- færa þetta. Húsnæðisvandræðin í Reykjavík. Húsnæðisvandræðin i Reykjavik eru nú í haust meiri en þau hafa verið nokkru sinni fyrr, þó að oft hafi áður erfitt verið. Veldur því hvort tveggja, að hrezka setu- liðið hefur margar ibúðir, sem það vill ekki láta af hendi, og straumur fólks í bæinn hefur verið óvenju mikill þetta ár, vegna hinnar miklu atvinnu. Aðalorsökin er þó hvorugt þetta, heldur hitt, að á ár- unum 1940 og 1941 hefur mjög litið verið hyggt af íbúðarhúsu.m, sem ætluð eru til leigu, og er orsölc þess fyrst og fremst flutningaörðugleikar á efni til bygginga og kostnaðurinn við að hyggja með því verðlagi, sem nú er á öllum hlutum, sem til bygginga þarf. Sýna erfiðleikar þessir, að fullkomin þörf er á því, að hæjarfélög og ríki láti sig miklu meira skipta en verið hefur húsnæðismálin í bæjunum. Það er hið mesta neyðarúrræði að banna með lög- um, að fólk geti losað sig við leigjendur eða á annan hátt ráðið yfir húsnæði því, sem það hefur, jafnvel með miklum erfiðismunum og fjárhagslegum fórnum, komið sér upp, og verða slíkar ráðstaf- anir áreiðanlega óvinsælar, ef þær þurfa að standa lengi. Nú er útlit fyrir, að fjárveiting hrökkvi ekki fyrir eftirspurn eftir þegnskyldu- vinnustyrk, og skal þá ráðherra tilkynna svo fljótt sem auðið er um fjárhæð væntan- legs styrks. 7. gr. Nú kemur þegnskyldur maður ekki til vinnu eftir fyrirlagi þegnskylduvinnu- nefndar, og sætir hann þá sektum, er nema tvöföldu dagkaupi við sams konar störf fyrir þau dagsverk, er tapast. Sektir renna í hreppssjóð.

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.