Sveitarstjórnarmál - 01.04.1975, Blaðsíða 49
„Fjórðungsþingið leggur áherzlu
á, að sem fyrst verði hafizt handa
um gagnasöfnun úti í liéruðunum
og rannsóknir á þeim þáttum nátt-
úrufars, sem helzt hafa þýðingu
við gerð áætlunar nm landnýtingu
í hverjum fjórðungi.
Þingið vill itreka þá nauðsyn,
að komið verði upp rannsóknar-
stofum í hverjum fjórðungi, þar
sem varðveittar verði og unnið úr
heimildum um veðurfar og aðra
þætti náttúrufræðinnar."
Framsögumaður nefndarinnar
var Jóhann L. Jóhannesson, oddviti
á Silfrastöðum.
Samgöngumál
I. Fjóðungsþing Norðlendinga
haldið að Reykjaskóla 26.-28. ágúst
1974 samþykkir að beina eftirfar-
andi óskum um aðgerðir í sam-
göngumálum til stjórnvalda ríkis-
ins:
a. Að frumarp lil laga um fjár-
öflun til vegasjóðs verði afgreitt
hið fyrsta, með þeim breytingum,
að:
1. Verðtollur af benzíni renni
til vegasjóðs.
2. Tekjur af innflutningsgjaldi
af bifreiðum renni til vega-
sjóðs.
b. Séð verði fyrir því, að nægjan-
legt fjármagn verði fyrir hendi til
að ljúka Noðurlandsáætlun í vega-
málum á sem stytztum tíma. Þing-
ið bendir á í því sambandi, að þar
sem nú er að mestu lokið fram-
kvæmdum á Skeiðarársandi er
möguleiki til að snúa sér í aukn-
um mæli að öðrum verkefnum.
Mælir þingið með því, að haldið
verði áfram sölu liappdrættis-
skuldabéfa til þess að fjármagna
stærri vegaframkvæmdir á Norður-
landi.
c. Að útvegað verði viðbótar-
fjármagn utan fjárlaga til upp-
byggingar hafna og flugvalla í
fjórðungnum í samræmi við sam-
gönguáætlun Norðurlands, m. a. til
aðstoðar sveitarfélögum vegna
hafnarframkvæmda.
d. Á næstu árum verði höfuð-
áherzla lögð á lagningu hraðbrauta
á Norðurlandi, þar eð þegar hefur
mikið áunnizt á þessu sviði á Suð-
vesturlandi.
e. Þá telur Fjórðungsþingið
nauðsynlegt, að breytt verði reglu
þeirri, sem gilt hefur um úthlutun
vegasjóðs til þjóðvega í kaupstöð-
um og kauptúnum. Verði fé þessu
varið til að aðstoða öll þéttbýlis-
sveitarfélög til að fullgera gatna-
kerfi sitt með varanlegu slitlagi.
Úthlutun fjárins miðist við lengd
Brynjólfur Svelnbergsson, oddvitl, formaður
Fjórðungssambandslns.
gatnakerfisins og ástand gatna, en
ekki ibúafjölda, svo sem nú er.
Verði gerð úttekt á ástandi þessara
mála á öllu landinu eins og það
var vorið 1973 og gerðar áætlanir
um framkvæmdir, sem miðist við
að forgangsgötum verði lokið livar-
vetna á 5 árum, en öðrum götum á
10 árum.
Landshlutasamtökum sveitarfé-
laga verði falið að annast áætlunar-
gerð í samráði við sveitarstjórnir
og verði áætlanir staðfestar af hlut-
aðeigandi yfirvöldum. Skorar fjórð-
ungsþingið á alþingismenn Norð-
urlands að beita sér fyrir þessari
lagabreytingu.
f. Fjórðungsþing Norðlendinga
leggur áherzlu á, að sýsluvegum
verði tryggt aukið framlag úr vega-
sjóði. Vegna þeirra miklu fram-
kvæmda á sýsluvegum og í þeim
héruðum, þar sem fyrirhuguð er
tankvæðing mjólkurflutninga,
leggur þingið til, að á vegaáætlun
verði sérstök framlög til að greiða
fyrir þessum framkvæmdum. Reynt
verði að leysa þetta verkefni eftir
samræmdri áætlun fyrir hvert liér-
að. Þá verði stefnt að því, að sýslu-
vegir nái heim í hlað á öllum
byggðum lögbýlum.
g. Fjórðungsþingið telur ekki
rétt, að þéttbýlisstaðir greiði til
sýsluvegasjóðs, ef þeir hafa ekki
rétt til að fá þaðan fjárframlög til
vega- og gatnagerðar.
II. Endurskoðun vegaáætlunar.
Fjórðungsþing Norðlendinga
1974 beinir því til vegamálastjóra
og Alþingis, að þegar vegaáætlun
verður endanlega samin fyrir árin
1975—1977 verði höfuðáherzlan á
það lögð að byggja upp þá vega-
kafla í fjórðungnum, sem ekki
fullnægja lágmarks umferðarþörf
íbúanna. í því sambandi er sér-
stök athygli vakin á því, að nú þeg-
ar eru sveitaldutar og jafnvel heil
byggðarlög í augljósri hættu með
að eyðast sökum samgönguerfið-
leika. Ber að veita þeim algjöran
forgang við skiptingu vegafjár af
vegaáætlun á umræddu tímabili.
III. Landshlutaáætlun Norður-
Þingeyjarsýslu.
Fjórðungsþing Norðlendinga
1974 leggur áherzlu á, að grund-
vallarforsenda þess að landshluta-
áætlun fyrir Norður-Þingeyjarsýslu
um atvinnuuppbyggingu lieppnist,
er, að vegakerfið verði uppbyggt á
örfáum árum og tengt aðalveginum
til Húsavíkur eins og Norðurlands-
áætlun í vegamálum hefur gert ráð
fyrir frá upphafi.
SVEITARSTJÓRNARMÁL