Sveitarstjórnarmál - 01.06.1997, Side 38
SKIPULAGSMÁL
ar. Fyrsta skóflustungan var tekin laugardaginn 29. mars
1997. Norðurál hf. er hlutafélag í eigu Columbia
Ventures Corporation í Vancouver í Washingtonríki í
Bandaríkjunum. Alverið verður reist í þremur áföngum.
í 1. áfanga mun álverið geta framleitt 60.000 tonn af áli
á ári, eftir byggingu 2. áfanga mun það geta framleitt
90.000 tonn og eftir að 3. áfangi hefur verið byggður
mun álverið geta framleitt 180.000 tonn af áli á ári.
Tímaáætlun Norðuráls hf. er miðuð við að hefja fram-
leiðslu á áli í 1. áfanga nýrrar verksmiðju á miðju ári
1998. Starfsmenn verksmiðjunnar verða fyrstu árin um
140 en fer fjölgandi eftir því sem hún stækkar. Verk-
smiðjan verður stækkuð í 90.000 tonn eins fljótt og raf-
magnsframleiðslan leyfir.
Framkvæmdastjóri hlutafélagsins er Gene Caudill frá
Bandaríkjunum en verkefnisstjórnunin er í höndum
enska verkfræðifyrirtækisins K. HOME. Hönnuðir
bygginganna eru VST - Verkfræðistofa Sigurðar
Thoroddsen hf. í Reykjavík, Verkfræðistofan Hönnun
hf. í Reykjavík og Rafhönnun hf. í Reykjavík.
Lóð álvers Norðuráls hf. að Grundartanga er í eigu ís-
lenska ríkisins og lóðarleigusamningur um hana hefur
verið gerður. Lóðin er 82,2 ha. að stærð, 28,3 ha. í Skil-
mannahreppi og 53,9 ha. í Hvalfjarðarstrandarhreppi.
Fyrirhugaðar helstu byggingar í 1. áfanga álverksmiðj-
unnar eru tveir kerskálar og kranaviðgerðarhús, skýli yfir
tengivirki og spennistöð, viðgerðarverkstæði og vöru-
geymsla, steypuskáli, skautsmiðja, starfsmannahús og
skrifstofa - í 1. áfanga verður um bráðabirgðahús að
ræða - súrálstankur við verksmiðju og súrálstankur við
höfnina.
Auk þessa verða byggðar litlar spennistöðvar, hreinsi-
virki og reykháfur.
Flestar byggingar, nema starfsmannahúsið, verða stál-
grindarhús með báruformaðri álklæðningu bæði á þaki
og veggjum og eru flestar þessar byggingar óeinangrað-
ar. Reynt hefur verið að mýkja útlit bygginganna með
því að nota bogaform eins mikið og því verður við kom-
Uppdrátturinn sýnir deiliskipulag Grundartanga.
1 OO