Sveitarstjórnarmál - 01.06.1997, Side 63
STJÓRNSÝSLA
Skipurit ísafjarðarbæjar.
hafa ekki umboð til að afgreiða
sjálfir. Þegar bæjarstjóm hefur stað-
fest viðkomandi samþykkt hefur
bæjarstjóri heimild til að koma
henni í framkvæmd. Hann ávísar
henni, svo sem fyrr segir, á viðkom-
andi forstöðumann, þann sem ann-
ast viðkomandi málaflokk.
Tenging embættismannakerfisins
við nefndakerfið liggur fyrst og
fremst í gegnum bæjarstjómina.
Nauðsynlegt upplýsingaflæði frá
embættismannakerfinu til viðkom-
andi nefnda annars vegar og frá
nefndakerfinu til viðkomandi
embættismanns hins vegar er tryggt
með því að forstöðumaður situr
fundi þeirra nefnda sem starfa á
sama sviði og hann.
Til að tryggja að stefna bæjar-
stjómar sé skýr í störfum nefndanna
og til að tryggja nauðsynlegt upp-
lýsingaflæði á milli nefnda og bæj-
arstjómar er gert ráð fyrir að í hverri
nefnd sé a.m.k. einn bæjarfulltrúi.
Eins og áður sagði gerir skipurit
embættismannakerfisins ráð fyrir að
málaflokkum Isafjarðarbæjar verði
skipt upp í sex svið, stjómsýslusvið
undir stjóm Þórunnar Gestsdóttur,
aðstoðarmanns bæjarstjóra, fjár-
mála- og áætlanasvið undir stjórn
Þóris Sveinssonar fjármálastjóra; fé-
lagsþjónustusvið undir stjórn Jóns
Tynes félagsmálastjóra; fræðslu- og
menningarmálasvið undir stjórn
Rúnars Vífilssonar fræðslu- og
menningarfulltrúa; umhverfissvið
undir stjóm Ármanns Jóhannesson-
ar bæjarverkfræðings og hafnar-
málasvið undir stjórn Hermanns
Skúlasonar hafnarstjóra. Ekki er al-
gengt að staða aðstoðarmanns bæj-
arstjóra fyrirfmnist í skipuriti bæjar-
félaga. Ásamt því að vera hægri
hönd bæjarstjóra í daglegum störf-
um og annast skrifstofuhald sér að-
stoðarmaður bæjarstjóra um upplýs-
inga- og kynningarmál (blaðafull-
trúi).
Til þess að einfalda yfirsýn yfir
boðleiðir hafa skipuritin verið teikn-
uð. Þar er hver staða sett í sinn
kassa og línur sem tákna boðleiðina
dregnar milli yfirmanns og undir-
manns.
Starfslýsingar eru útbúnar til að
skilgreina þátttöku hvers starfs-
manns í þeim verkefnum, sem segja
má að séu reglubundin. Þær eru því
nokkurs konar þátttökuskráning við-
komandi starfsmanns í ákveðnu
verkefni, verkferli.
Brjóta má verkefni, verkferla, upp
þannig að einum starfsmanni sé
falið að sjá til þess að verk sé fram-
kvæmt, öðrum kann að vera falið að
framkvæma verkið og þeim þriðja
að hafa eftirlit með því að verkið sé
unnið í samræmi við forskrift.
Þannig getur bæjarverkstjóri haft
umsjón með holufyllingu gatna,
vélamaður annast holufyllinguna og
bæjarverkfræðingur hefur eftirlit
með því að hún sé gerð í samræmi
við hans forskrift, bæði hvað varðar
gæði framkvæmdarinnar og einnig
samanburð við kostnaðaráætlun.
1 25