Sveitarstjórnarmál - 01.10.2000, Side 12
SAMTAL
Við Garðatorg eru auk bæjarskrifstofunnar bæjarbókasafn, banki, veitingahús og margar verslanir. Myndirnar sem ekki eru öðrum
merktar tók Gunnar G. Vigfússon.
og Kópavogs, sömuleiðis rekstur almenningsvagna, sem
sömu sveitarfélög standa að í byggðasamlaginu Al-
menningsvagnar bs., svo og rekstur SORPU bs., sem sér
um sorpmóttöku og rekstur gámastöðva, og rekstur
slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins, sem bæði eru í eigu
sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Garðabær á beina
stjómunaraðild að þessum stofnunum og fyrirtækjum og
tilnefnir fulltrúa til setu í stjómum þeirra.“
- Hvaða þjónustu kaupir sveitarfélagið af fyrirtœkjum
annarra sveitarfélaga?
„Þar er fyrst og ffemst um að ræða kaup á heitu vatni
og rafmagni.“
- Telurþú að verði af sameiningu við Bessastaðahrepp
eða jafnvel líka við Hafnarfjörð og Kópavog?
„Það er erfitt að segja á þessari stundu, það veltur held
ég einkum á vilja sveitarstjómar Bessastaðahrepps. Bæj-
arstjóm Garðabæjar hefur tekið því vel að kanna mögu-
leika á sameiningu Garðabæjar og Bessastaðahrepps, en
lítill áhugi hygg ég hins vegar að sé á víðtækari samein-
ingu, enda hef ég hvorki heyrt sérstök rök fyrir því né
séð kosti í því fyrir Garðabæ eða Garðbæinga."
- Telur þú að árangurs sé að vœnta af sameiginlegu
starfi að skipulagsmálum á höfuðborgarsvœðinu?
„Já, ég tel raunar að nú þegar hafi vemlegur árangur
náðst með því samstarfi, sem stofhað hefur verið til um
skipulagsvinnuna. Ég held að vinnan sé í mjög farsælum
gangi og vænti ég þess að svæðisskipulag höfuðborgar-
svæðisins eigi eftir að marka farsæla þróun skipulags og
byggðar hér á svæðinu.“
- Að hvaða leyti hefurþú beitt þér sérstaklega í embœtti
bæjarstjóra á þeim 13 árum sem þú hefur gegnt því
starfi í Garðabœ?
„Þessu er nú erfitt að svara - það er svo margt sem
borið hefúr við á þrettán ámm. Starf bæjarstjóra er fram-
kvæmdastjórastarf, sem felst fyrst og fremst í því að
fylgja eftir samþykktum bæjarstjómar. Þótt bæjarstjóri
komi vissulega að undirbúningi fjölmargra mála, geti
lagt ýmislegt til og beitt áhrifúm sínum, þá er niðurstað-
an fengin með samvinnu fjölmargra aðila. Það er því
erfitt að eigna sér tiltekin mál. Ef ég dreg eitthvað sér-
staklega ffam í þessu efhi þá vil ég annars vegar nefna að
ég hef lagt sérstaka áherslu á gerð fjárhagsáætlana til
skemmri og lengri tírna, en þær eru mjög mikilvægt
stjómtæki í rekstri sveitarfélaga sem annarra rekstrarein-
inga og gmndvöllur þess að flármálin geti verið í lagi.
Hins vegar vil ég nefna samkvæmni í afgreiðslu mála.
Ég tel það afar mikilsvert í opinberri stjórnsýslu að
mönnum sé gert jafhhátt undir höfði og að því sé hægt
að treysta að mál séu afgreidd á jafnræðisgrundvelli
óháð því hver í hlut á.“
Unnar Stefánsson
202