Sveitarstjórnarmál - 01.10.2000, Qupperneq 14
ERLEND SAMSKIPTI
Uppbyggingarsjóðir ESB
Gísli Gíslason, bœjarstjóri á Akranesi
Þegar EES-samningurinn var
gerður við Evrópusambandið var
sett upp af hálfu EFTA-landanna
sem stóðu að samningnum viðamik-
ið stjómkerfi sem átti að líkjast upp-
byggingu ESB. Tilgangurinn var
vafalaust sá að samskiptin við ESB
færu fram í sambærilegum stjórn-
einingum. Þetta má sjá i skýringar-
mynd sem birtist með grein minni í
2. tölublaði Sveitarstjórnarmála á
þessu ári og sýnir tvær stoðir EES-
samningsins. Þegar skipulag ESB er
skoðað á þessari mynd er þó ljóst að
stóran kafla i starfsemi bandalagsins
vantar, þ.e. þá uppbyggingarsjóði
sem ESB notar til að ná fram mark-
miðum sínum innan aðildarland-
anna. Þau þrjú EFTA-lönd sem nú
standa að EES-samningnum, Island,
Noregur og Liechtenstein, eiga ekki
almennan aðgang að þessum upp-
byggingarsjóðum, en eru þó gjald-
geng í nokkur verkefni á vegum
þeirra. EES-löndin greiða sam-
kvæmt samningnum talsverðar fjár-
hæðir til reksturs ESB en sam-
kvæmt skýrslu utanríkisráðherra um
stöðu Islands í Evrópusamstarfi,
sem gerð var í apríl á þessu ári, var
beint framlag íslands til ESB á árinu
1999 rúmlega 220 millj. kr. auk
framlags til stofnana EES og í þró-
unarsjóð EFTA, sem nam um 210
millj. kr.
Tilgangur uppbyggingar-
sjóóa ESB
Uppbyggingarsjóðir ESB eru
fjórir en að auki er sjóður sem er
sérstakur þróunarsjóður (Cohesion-
fund). Þessir uppbyggingarsjóðir
eiga sér mislanga sögu en Félags-
málasjóðurinn og Landbúnaðarsjóð-
urinn eiga t.d. rætur að rekja til árs-
ins 1958 og Byggðaþróunarsjóður-
inn er frá árinu 1975. Hér fer á eftir
stutt samantekt um starfsemi sjóð-
anna og markmið:
a) Félagsmálasjóðurinn
Sjóðurinn styrkir m.a. ýmiss kon-
ar starfsnám, styður verkefni til að
vinna á langtímaatvinnuleysi, ekki
hvað síst atvinnuleysi ungs fólks.
Einnig verkefni þar sem stuðlað er
að jöfnum möguleikum fólks á að
komast inn á vinnumarkaðinn (m.a.
með verkefninu EQUAL), rann-
sóknir og þróun á vinnumarkaði,
bætta stöðu kvenna á vinnumarkaði
o.fl.
b) Evrópski byggðaþróunarsjóð-
urinn
Þessi sjóður hefur mesta fjármuni
til ráðstöfunar innan ESB. Verkefni
hans eru margháttuð, m.a. að stuðla
að jöfnuði milli landsvæða innan
aðildarlandanna. Verkefnum sjóðs-
ins er skipað í þrjú meginmarkmið:
Undir markmiði 1 fjárfestir sjóður-
inn m.a. í verkefnum sem stuðla að
bættum samgöngum, Qarskiptum,
orkukerfum, heilbrigðismálum og
umhverfísmálum. Svæði sem falla
undir þessi verkefni eru þar sem
tekjur á hvern íbúa eru minna en
75% af meðaltekjum innan landa
ESB. Undir markmiði 2 er m.a. það
verkefni að stuðla að endurlífgun
iðnaðarsvæða og þéttbýlissvæða
sem hefur hnignað, aðstoð við land-
búnaðarsvæði sem eiga við erfið-
leika að etja og stuðningur við
byggðir i vanda þar sem sjávarút-
vegur hefur verið undirstöðuat-
vinnugrein. Undir markmið 3 falla
þeir sem ekki uppfylla skilyrði 1 og
2, en tilgangur verkefna undir þeim
lið lýtur að atvinnusköpun, þróun í
menntakerfmu, endurlífgun hnign-
andi þéttbýlissvæða (URBAN) og
stuðningur við byggðaverkefni milli
landa, héraða og svæða (Interreg
III).
c) Landbúnaðarsjóðurinn
Sjóðurinn stuðlar að framkvæmd
á landbúnaðarstefnu ESB. Hann
styrkir m.a. þróunarverkefni innan
landbúnaðar sem stuðla að aukinni
hagkvæmni í landbúnaði, lækkun
framleiðslukostnaðar, auknurn gæð-
um o.s.frv. Einnig styrkir sjóðurinn
starfsþjálfun bænda, auðveldar
bændum að komast á eftirlaun og
greiðir bætur til bænda sem verða
að bregða búi af ýmsum ástæðum.
Þá leggur sjóðurinn fram fjármuni
til verkefria á sviði skógræktar, um-
hverfisverkefna, þróunarverkefna í
landbúnaði og verkefna í ferða-
mennsku sem tengjast landbúnaði.
d) Fiskveiðisjóðurinn
Sjóðurinn stuðlar að því að ESB
komi stefhu sinni i fiskveiðimálum í
framkvæmd. í því felst m.a. að
veija fjármunum til að hafa áhrif á
sókn í fiskistofna, stærð og afkasta-
getu skipastóls, vemd hafsvæða, að-
stöðu í fiskihöfnum, þróun og mark-
aðssetningu sjávarafla, vöruþróun
o.fl. Markmiðið er að stuðla að jafn-
vægi þannig að sjávarútvegurinn
verði sjálfbær atvinnugrein án þess
að fiskistofnar verði ofVeiddir.
204