Sveitarstjórnarmál - 01.10.2000, Side 35
SAMEINING SVEITARFE LAGA
Viðræður um sameiningu
Stofnuð viðræðunefnd um
sameiningu Kópavogs,
Garðabæjar, Hafnarfjarðar-
kaupstaðar og Bessastaða-
hrepps
A fundi hreppsráðs Bessastaða-
hrepps hinn 29. júní sl. var sam-
þykkt að leita eftir því við bæjarráð
Garðabæjar, Hafnarfjarðarkaupstað-
ar og Kópavogsbæjar að þau skip-
uðu fulltrúa í viðræðunefnd um
hugsanlega sameiningu þessara
fjögurra sveitarfélaga. Stefnt verði
að því að viðræðunefndin hefji störf
sem fyrst og að fyrstu niðurstöður
nefndarinnar liggi fyrir á haustdög-
um 2000.
Sveitarfélögin hafa tilnefnt full-
trúa í nefndina. I henni eru Ingi-
mundur Sigurpálsson bæjarstjóri og
Einar Sveinbjömsson bæjarfulltrúi,
af hálfu Garðabæjar, Magnús Gunn-
arsson bæjarstjóri, Þorsteinn N.
Njálsson, formaður bæjarráðs, og
Ingvar Viktorsson bæjarfulltrúi, fyr-
ir Hafnarfjarðarkaupstað, Jóhann
Brient bæjarritari af hálfu Kópa-
vogsbæjar og Guðmundur G. Gunn-
arsson oddviti og hreppsneffidarfull-
trúarnir Bragi J. Sigurvinsson og
Guðrún Þ. Hannesardóttir af hálfu
Bessastaðahrepps.
Viðræður Helgafellssveitar
og Stykkishólmsbæjar
Ákveðið hefur verið að taka upp
viðræður um kosti þess og galla að
sameina Helgafellssveit og Stykkis-
hólmsbæ. Hvor sveitarstjóm hefur
tilnefnt fulltrúa í viðræðunefnd. í
henni sitja fyrir Helgafellssveit
Brynjar Hildibrandsson í Bjamar-
höfn, oddviti hreppsins, og Jóhann-
es E. Ragnarsson á Hraunhálsi og
fyrir Stykkishólmsbæ bæjarfulltrú-
amir Guðrún A. Gunnarsdóttir og
Davíð Sveinsson og gert ráð fyrir að
með þeim starfí Óli Jón Gunnarsson
bæjarstjóri.
„Við eigum svo mikil samskipti
t.d. um skólamál og brunavamir svo
fátt eitt sé nefnt,“ sagði Brynjar odd-
viti í samtali við Sveitarstjómarmál,
„að okkur þykir rétt að ræða hugsan-
legan samruna sveitarfélaganna.“
Hann kvaðst telja æskilegt að tillög-
ur af eða á liggi fyrir tímanlega fyrir
næstu sveitarstjórnarkosningar og
kvað viðræður hefjast nú á haust-
dögum. Óli Jón Gunnarsson hefur í
héraðsblaðinu Skessuhorni sagt
sameiningu á norðanverðu Snæfells-
nesi eðlilega þróun í framhaldi af
því samstarfí sem þróast hefur milli
sveitarfélaganna að undanfömu, t.d.
með stofnun sameiginlegrar félags-
og skólaþjónustu nýlega.
Hinn 1. desember 1999 bjuggu í
Helgafellssveit 56 íbúar en í Stykk-
ishólmi 1216 íbúar.
Viðræður í Dalasýslu
Hreppsnefndir Dalabyggðar og
Saurbæjarhrepps samþykktu á vor-
mánuðunum að hefja viðræður um
hugsanlega sameiningu hreppanna.
Hafa þær hvor um sig tilnefnt tvo
fulltrúa til að annast þær viðræður.
Af hálfu Dalabyggðar starfa í við-
ræðunefndinni Sigurður Rúnar Frið-
jónsson í Búðardal, oddviti hrepps-
ins, og Þorsteinn Jónsson, hrepps-
nefndarmaður á Dunkárbakka, en af
hálfu Saurbæjarhrepps starfa í
nefndinni Sæmundur Kristjánsson í
Lindarholti, oddviti hreppsins, og
Sigurður Þórólfsson í Innri-Fagra-
dal, fyrrverandi oddviti.
Hinn 1. desember 1999 voru í
Dalabyggð 680 íbúar og í Saurbæj-
arhreppi 91 íbúi.
Viðræður Blönduósbæjar og
Engihlíðarhrepps
Hreppsnefnd Engihlíðarhrepps
samþykkti á fúndi hinn 5. septem-
ber að óska eftir viðræðum við bæj-
arstjóm Blönduósbæjar um samein-
ingu sveitarfélaganna. Bæjarstjómin
samþykkti á fúndi hinn 12. septem-
ber að verða við þeirri ósk.
Viðræður milli sveitarfélaganna
hefjast innan tíðar. Að sögn Val-
garðs Hilmarssonar, oddvita Engi-
hlíðarhrepps, er fyrirhugað að þeim
ljúki á komandi vetri, atkvæða-
greiðsla fari fram um sameininguna
á vori komanda og verði hún sam-
þykkt öðlist hún gildi með kosningu
einnar sveitarstjómar í næstu reglu-
legu sveitarstjómarkosningum vorið
2002.
Viðræður fjögurra hreppa í
vesturhluta Suður-Þingeyjar-
sýslu
Fjórir hreppar í vesturhluta Suð-
ur-Þingeyjarsýslu hafa um eins árs
skeið unnið að könnun á hugsan-
legri sameiningu. Hrepparnir eru
Hálshreppur með 165 íbúa hinn 1.
desember 1999, Ljósavatnshreppur
með 206 íbúa hinn 1. desember sl„
Bárðdælahreppur með 121 íbúa
hinn 1. desember sl. og Reykdæla-
hreppur með 259 íbúa. Samanlögð
íbúatala hreppanna hinn 1. desem-
ber sl. var því 751.
Á sl. vori skiluðu áliti fimm
nefndir sem hver um sig hafði það
hlutverk að kanna áhrif hugsanlegr-
ar sameiningar á hlutaðeigandi
málaflokk. Sú fyrsta var fjárhags-
nefnd, önnur stjómkerfísnefnd, sú
þriðja atvinnumálanefnd, sú fjórða
mennta-, heilbrigðis- og félagsmála-
nefnd og sú fímmta þjónustunefnd.
I kjölfar nefndavinnunnar voru
oddvitar hreppanna tilnefndir í við-
ræðunefnd til að vinna frekar úr
gögnum nefndanna, kynna málið og
hugsanlega undirbúa það til al-
mennrar atkvæðagreiðslu í hreppun-
um. Oddvitar hreppanna eru Jón
Þórir Óskarsson á Illugastöðum fyr-
ir Hálshrepp, Helga A. Erlingsdóttir
í Landamótsseli fyrir Ljósavatns-
hrepp, Skarphéðinn Sigurðsson í
Úlfsbæ fyrir Bárðdælahrepp og
225