Sveitarstjórnarmál - 01.10.2000, Page 36
SAMEINING SVEITARFÉ LAGA
Dagur Tryggvason í Breiðanesi fyr-
ir Reykdælahrepp.
Jón Þórir Oskarsson er formaður
nefndarinnar. Hann segir að nefnd-
irnar hafi lagt af mörkum mikið
starf við að kanna áhrif sameiningar
á hina ýmsu málaflokka en samstarf
er nú þegar talsvert milli sumra
hreppanna. Þannig hafa þrír þeirra
lengi staðið að rekstri Stórutjama-
skóla, þ.e. allir nema Reykdæla-
hreppur. Jón Þórir segir að til um-
ræðu hafi verið að ganga til at-
kvæðagreiðslu um sameiningu
hreppanna þegar í haust með það í
huga að sameining geti öðlast gildi
um næstu áramót. Tíminn sé þó að
verða nokkuð naumur til þess að
það sé hægt því nauðsynlegt sé að
kynna og ræða málið meðal íbúanna
áður en það yrði lagt undir þá í at-
kvæðagreiðslu.
Samþykkt að kanna mótun
nýs sveitarfélags á norður-
svæði Austurlands
Hinn 8. júní sl. var í Hótel Svarta-
skógi á Austur-Héraði, áður Hlíðar-
hreppi, haldinn sameiginlegur fúnd-
ur nær allra sveitarstjómarmanna á
svokölluðu norðursvæði Austur-
lands. Fundinn sátu fúlltrúar Seyðis-
íjarðarkaupstaðar, Vopnafjarðar-
hrepps, Fljótsdalshrepps, Fella-
hrepps, Borgarijarðarhrepps, Norð-
ur-Héraðs og Austur-Héraðs, en
einnig höfðu verið boðaðir sveitar-
stjórnarmenn úr Skeggjastaða-
hreppi. Fundurinn var haldinn að
frumkvæði Brodda Bjarnasonar,
bæjarfúlltrúa í Austur-Héraði, og á
honum rædd ýmis sameiginleg mál-
efni byggðarlagsins, svo sem
mennta-, menningar- og félagsmál,
samgöngumál og byggða- og at-
vinnumál.
Að loknum ffamsöguerindum og
fýrirspurnum var að tillögu Katrinar
Asgrímsdóttur, forseta bæjarstjómar
Austur-Héraðs, samhljóða sam-
þykkt svofelld tillaga:
„Sameiginlegur fundur sveitar-
stjórnarmanna frá Vopnafjarðar-
hreppi, Norður-Héraði, Fljótsdals-
hreppi, Fellahreppi, Austur-Héraði,
Borgarfjarðarhreppi og Seyðisfjarð-
arkaupstað, haldinn i Hótel Svarta-
skógi 8. júní 2000, hvetur til þess að
þessar sveitarstjórnir taki til um-
fjöllunar og ákvörðunar, hvort þær
séu reiðubúnar að taka þátt í vinnu
er miðar að mótun nýs sveitarfélags
á norðursvæði Austurlands.
Verði niðurstöður jákvæðar sam-
einist sveitarfélögin um að leita fjár-
hagslegrar aðstoðar opinberra aðila
til að kosta þessa vinnu.
Gert verði ráð fyrir því að hver
sveitarstjóm tilnefni 1-2 fulltrúa í
stýrihóp vegna verkefnisins og að
leitað verði eftir aðstoð sérffæðinga
við að framkvæma það.
Þessi vinna hefjist í september
2000 og yrði lokið eigi síðar en í
júní 2001.
Mótun nýs sveitarfélags á að fela
i sér:
• Sóknaraðgerðir.
• Nýja hugsun varðandi rekstur
sveitarfélags.
• Afgerandi aðlögun að kröfum
nútíma samfélags.
• Nýtt og skilvirkara skipulag á
stjómun.
• Mótun nýrra vinnubragða á flest-
um sviðum félagslegrar þjónustu.
• Grundvöll fyrir nýjum viðfangs-
efnum og aukinni ábyrgð sveitar-
félaganna."
Auk umræðu um þessi mál var á
fundinum fjallað um mennta-,
menningar- og félagsmál og hafði
Helga Guðmundsdóttir, forstöðu-
rnaður fræðslu- og menningarsviðs
Austur-Héraðs, framsögu um það
efni. Herdís Hjörleifsdóttir, félags-
málastjóri Héraðs og Borgarfjaröar-
hrepps, kynnti hugmyndir sínar um
samstarf í félagsmálum og Soffía
Lárusdóttir, formaður bæjarráðs
Austur-Héraðs, ræddi um fyrirhug-
aðan flutning málefna fatlaðra frá
ríki til sveitarfélaga.
Þá flutti Olafúr Sigmarsson, odd-
viti Vopnafjarðarhrepps, ffamsögu-
erindi um samgöngumál og kynnti
að því loknu tillögu að ályktun
fúndarins um það efni og var sú til-
laga einnig samþykkt.
Loks fluttu Gunnar Vignisson,
framkvæmdastjóri Þróunarstofu
Austurlands, og Oðinn Gunnar Oð-
insson, forstöðumaður byggðasviðs
þróunarstofunnar, erindi um
byggða- og atvinnumál. Kynntu þeir
m.a. niðurstöður könnunar sem gerð
hafði verið meðal Austfirðinga um
viðhorf til sameiningar á norður-
svæðinu.
Fundinum stýrði Jónas Þór Jó-
hannsson, sveitarstjóri Norður-Hér-
aðs, en fúndargerð ritaði Bjöm Haf-
þór Guðmundsson, bæjarstjóri
Austur-Héraðs.
U. Stef.
• LOWARA MONO
VOGEL kX/ PUMPS
Mikið úrval af
DÆLUM
Svo sem: Miöstöövardælur, þrýstiaukadælur, skolpdælur,
neysluvatnsdælur, snigildælur, hringrásardælur
Danfoss hf.
SKÚTUVOGI 6 SIMI 510 4100
226