Sveitarstjórnarmál - 01.10.2000, Side 42
FU LLTRÚARÁÐS FU N D I R
laga leggur áherslu á að sveitarfélögin fái að fullu bætt-
an þann kostnað sem kann að hafa orðið umfram tekjur
vegna verkefna sem þau tóku við af ríkinu við yfirfærslu
gmnnskólans.
Fundurinn minnir á að samkvæmt samkomulagi ríkis
og sveitarfélaga skal endurskoðuninni lokið fyrir 1.
ágúst árið 2000. Nauðsynlegt er að staðið verði við þá
dagsetningu, þannig að nægur tími gefíst til endurskoð-
unar á tekjustofnum sveitarfélaganna.
Þjóðlendur
Að tillögu nefndarinnar tók fundurinn undir tillögu
Sveins A. Sælands og gerði svofellda ályktun um störf
þjóðlendunefndar:
„58. fúndur fúlltrúaráðs Sambands íslenskra sveitarfé-
laga hvetur fjármálaráðherra, sem fer með fyrirsvar fyrir
hönd ríkisins og stofnana þess vegna krafna um eignar-
réttindi á landi, til að beita sér fyrir endurskoðun á fram-
kvæmd laga nr. 58/1998 um þjóðlendur.
Fulltrúaráðið mótmælir því að gengið sé þvert á þing-
lýstar eignarheimildir eins og þjóðlendunefnd hefúr þeg-
ar gert í kröfugerð sinni á tilteknum landsvæðum. Varað
er við því að gildi þinglýstra eignarheimilda á landi, sem
að hálendinu liggur, sé almennt dregið í efa umffam aðr-
ar þinglýstar eignarheimildir. Við setningu laga um
þjóðlendur nr. 58/1998 kom aldrei ffam að ætlunin væri
að hrófla við þinglýstum eignarlöndum heldur fyrst og
ffemst að kanna og skera úr um hvaða land telst til þjóð-
lendna og hver séu mörk þeirra og eignarlanda.
Markmið þjóðlendulaga nr. 58/1998 er að skera úr um
eignarhald á landi sem enginn getur sannað eignarrétt
sinn á. Því hvetur fulltrúaráðið fjármálaráðherra til að
beita sér fyrir því að þjóðlendunefnd dragi kröfú sína út
fyrir þinglýst eignarlönd, þannig að óbyggðanefnd úr-
skurði einungis í þeim tilvikum sem þinglýstar eignar-
heimildir einstaklinga, sveitarfélaga og annarra lögaðila
liggja ekki fyrir.
Reikningar samþykktir
Bragi Michaelsson, bæjarfúlltrúi í Kópavogsbæ, hafði
orð fyrir fjárhagsneftid fundarins sem lagði til að árs-
reikningur sambandsins fyrir árið 1999 yrði samþykktur
og var svo gert.
Ennfremur var fjárhagsáætlun fyrir árið 2000 sam-
þykkt með óverulegri breytingu.
Ennffemur segir í áliti nefndarinnar: „Framtíðamefnd
er nú að yfirfara og skoða hugmyndir um rekstur sam-
bandsins og bendir fjárhagsnefnd á að rekstur sam-
bandsins verður ávallt að taka mið af þörfúm sveitarfé-
laga og þeim verkefnum sem þau vinna að. Því verður
ávallt að tryggja fjárveitingar fyrir þeim verkefnum sem
stjómin ákveður hverju sinni.
Stjóm sambandsins hefúr nú samþykkt að fela Kaup-
þingi fjárvörslu, ávöxtun og umsjón þeirra sjóða sem
m.a. er ætlað að mæta eftirlaunaskuldbindingum og
fagnar fjárhagsnefndin þessari ákvörðun stjómar sam-
bandsins.“
Álit tekjustofnanefndar
Ingvar Viktorsson, bæjarfulltrúi í Hafnarfirði, mælti
fyrir tillögu tekjustofnanefndar að áliti fúndarins sem var
samþykkt svofelld:
„Fulltrúaráðsfúndur Sambands íslenskra sveitarfélaga,
haldinn í Reykholti 30.-31. mars 2000, leggur áherslu á
að sem fyrst verði samþykktar lagabreytingar sem tryggi
að sveitarfélögin fái þegar á þessu ári bættan þann tekju-
missi sem þau hafa orðið fyrir vegna aðgerða Alþingis
og ríkisvaldsins undanfarinn áramg.
Við endurskoðun á tekjustofnum sveitarfélaga verði
þeim tryggð hlutdeild í veltutengdum sköttum svo veltu-
breyting í þjóðfélaginu komi fram í tekjurn þeirra.
Einnig telur fúndurinn mikilvægt að tekjur sveitarfélaga
verði tengdar rekstri fyrirtækja og stofnana á hverjum
stað.
Auk þess telur fúndurinn að skýra eigi eins og kostur
er íjármálaleg samskipti rikis og sveitarfélaga með því
að endurskoða samstarfsverkefni aðila og fella t.d. niður
þátttöku sveitarfélaga í stofnkostnaði framhaldsskóla og
sjúkrastofnana.“
Jafnframt var samþykkt að færa til bókar það álit
nefndarinnar að um leið og niðurstaða tekjustofnanefnd-
ar liggi fyrir verði hún kynnt sveitarstjómum í hveijum
landshluta.
Fundarslit
Formaður þakkaði starfsfólki sambandsins góðan und-
irbúning fundarins og fundarstjóra og öðmm trúnaðar-
mönnum fundarins góð störf, framsögumönnum og
heimafólki góða fyrirgreiðslu, skemmtiatriði meðan á
borðhaldinu stóð og leiðsögn á Reykholtsstað. Hann
þakkaði samhug og eindrægni fundarmanna. „Það skiptir
miklu máli að við sem vinnum að sveitarstjómannálum
stöndum saman,“ sagði Vilhjálmur. Síðan sagði hann
fúndinum slitið. Var það á hádegi.
Að kvöldi fyrri fundardagsins hafði félagsmálaráð-
herra móttöku og síðan var sameiginlegur kvöldverður.
Meðan á borðhaldi stóð fluttu félagar úr Leikfélagi
Lundarreykjadalshrepps kafla úr Islandsklukkunni eftir
Halldór Laxness.
Að fundi loknum var skoðuð Snorrastofa og hlýtt á
ffásögn Bergs Þorgeirssonar, forstöðumanns hennar, hin
nýja Reykholtskirkja skoðuð undir leiðsögn séra Geirs
Waage, sóknarprests í Reykholti, og gengið um staðinn
undir leiðsögn hans og Þórunnar Gestsdóttur, sveitar-
stjóra Borgarfjarðarsveitar.
Loks þáðu fundarmenn veitingar í boði Borgarfjarðar-
sveitar.
232