Sveitarstjórnarmál - 01.10.2000, Síða 45
UMHVERFISMÁL
Einkafyrirtæki
/
1
annast umhverfisþjónustu
Vesturbyggð
Þjónustusamningurinn undirritaður á Radisson SAS Hótel Sögu hinn 26. júní sl. Á
myndinni eru, taiið frá vinstri, Friðfinnur Einarsson, stjórnarformaður Umhverfistækni
Vesturbyggðar ehf., Jón Gunnar Stefánsson, bæjarstjóri Vesturbyggðar, og Lilja Pét-
ursdóttir, framkvæmdastjóri félagsins. Myndina tók Gunnar G. Vigfússon fyrir Sveitar-
stjórnarmál.
Vesturbyggð hefur með fyrirtæk-
inu Islensk umhverfístækni ehf. í
Keflavík stofnað eignarhaldsfélag,
Umhverfistækni Vesturbyggðar
ehf., og gert við það þjónustusamn-
ing um umhverfisþjónustu í Vestur-
byggð til tuttugu ára. Samningurinn
felur í sér alla þjónustu við sveitar-
félagið á sviði sorpmála, þ.m.t. fjár-
mögnun og byggingu og rekstur
endurvinnslustöðvar.
Nýja fyrirtækið mun sjá um sorp-
hirðu, endurvinnslu og sorpeyðingu
frá öllum íbúum og fyrirtækjum í
Vesturbyggð næstu 20 árin. Það
mun reka varmaendurvinnslustöð
þar sem sorp verður brennt við afar
fullkomnar aðstæður. Varmaorka
frá stöðinni verður m.a. nýtt til upp-
hitunar á sundlaug. Utblástur frá
brennslukerfum af þessari gerð er
algerlega gagnsær og lyktarlaus og
uppfyllir mun strangari kröfiir en til
hans eru gerðar af heilbrigðisyfir-
völdum hérlendis. Auk varmaendur-
vinnslu mun fyrirtækið einnig
stunda lifræna endurvinnslu með
jarðgerð í lokuðum búnaði. Molta,
sem er afurðin frá þessari vinnslu,
verður nýtt til uppgræðslu í sveitar-
félaginu. Auk þess verður brota-
málmi safnað saman og hann fluttur
til endurvinnsluaðila á höfuðborgar-
svæðinu. Spilliefnamótttaka verður í
endurvinnslustöðinni þar sem tekið
verður við spilliefnum og þau búin
til flutnings til viðurkenndra aðila.
Með tilkomu endurvinnslustöðvar-
innar munu um 90% þess sorps sem
til fellur i Vesturbyggð fara í viður-
kennda endurvinnslufarvegi.
Verkeíhi þetta var boðið út i lok
síðasta árs og tilboð opnuð hinn 13.
janúar sl. Aðeins eitt tilboð barst í
verkefnið og var það frá Islenskri
umhverfistækni ehf. í tilboði fyrir-
tækisins var sveitarfélaginu m.a.
boðin þátttaka í sjálfstæðu fyrirtæki
um verkið og hefur sú skipan nú
komist á.
Starfsemi hins nýja félags hefst í
byijun næsta árs og mun kostnaður
sveitarfélagsins vegna samningsins
árlega verða um 16,5 millj. kr. á ári
ffá og með því ári, en samanlagður
undirbúnings- og stofnkostnaður
vegna verkefnisins er áætlaður um
80 milljónirkróna.
„ítarlegur samanburður sveitarfé-
lagsins við aðra valkosti með sama
þjónustustig hefur leitt í ljós að
samningur þessi er sveitarfélaginu
hagstæður, bæði hvað snertir kostn-
að og umhverfismál," segir í ffétta-
tilkynningu um þetta efni.
Hér er um að ræða fyrsta samn-
inginn hérlendis um stofnun einka-
fyrirtækis til þess að annast um-
hverfisþjónustu í sveitarfélagi. Að-
spurður á fréttamannafundi þegar
samningurinn hafði verið undirrit-
aður, sagði Friðfinnur Einarsson,
stjómarformaður fyrirtækisins, að
líta megi á samningsgerðina sem
fyrirmynd að hliðstæðu samkomu-
lagi sem fyrirtækið gæti hugsað sér
að gera við önnur sveitarfélög.
235