Sveitarstjórnarmál - 01.10.2000, Síða 46
TÆKNIMAL
Fartölvuvæðing hafin. Á myndinni eru, talið frá vinstri, Guðmundur Benediktsson, bæjarlögmaður og ritari bæjarstjórnar, Valgerður
Sigurðardóttir, forseti bæjarstjórnar, og Magnús Gunnarsson bæjarstjóri.
Bæjarstjórn Hafnaríjarðar fartölvuvædd
Jóhann Guðni Reynisson, forstöðumaður upplýsinga- og kynningarmála
Allir aðalfulltrúar í bæjarstjórn
Hafnaríjarðar, 11 talsins, hafa nú
fengið til endurgjaldslausra afnota
fartölvur. Þetta mun vera fyrsta far-
tölvuvæðing sinnar tegundar hjá
sveitarstjómum á Islandi. Verkefnið
er liður í samstarfsverkefhi Hafnar-
fjarðarbæjar, Opinna kerfa hf. og
Skýrr hf. í verkefninu UTA eða
upplýsingatækni fyrir alla.
Þráölaus búnaöur
Settur hefur verið upp þráðlaus
tengibúnaður frá IceCom ehf. í
fundarsal bæjarstjórnar í Hafnar-
borg og sama verður uppi á teningn-
um í nýjum fúndarsal bæjarráðs að
Strandgötu 6. Þá fá bæjarfulltrúar
endurgjaldslaust innhringiaðgang
og netföng hjá Hafharijarðarbæ.
Hvernig tölva?
Tölvan er af gerðinni Hewlett
Packard Omnibook XE2 Cel 450
frá Opnunt kerfúm. Tölvan er búin
Intel C450 megariða örgjörva, 96
SDRAM minni, 4,8 Gb E-IDE
hörðum diski, 3,5” disklingadrifi,
24X cd-drifi, 12,1” SVGA HPA
litaskjá, 4Mb intemal video-RAM,
SB16 samhæfðu hljóðkorti, stereo-
hátölurum og hljóðnema, inn-
byggðu 56K módemi, tveimur Type
II og einu Type III tengi, Cardbus
enabl 4Mbps IrDA-2 innrauðu
tengi, 25p hliði og 9p raðtengi,
ÍUSB NiHM rafhlöðu fyrir allt að
þriggja tíma notkun/USB tengi,
Windows 98 og McAfee vímsvöm.
Þá er í tölvunni samskiptakort fyrir
þráðlaust samband.
Upptalningin er ekki tæmandi.
Tilgangur
Tilgangurinn með þessari aðgerð
er að auðvelda bæjarfulltrúum að-
236