Sveitarstjórnarmál

Volume

Sveitarstjórnarmál - 01.10.2000, Page 49

Sveitarstjórnarmál - 01.10.2000, Page 49
TÆKNIMÁL Bláu fletirnir á myndinni sýna núverandi útbreiðslusvæði TETRA-þjónustu Stiklu. Þjónustusvæðið mun ná yfir allt landið fyrir árslok 2000. sem boðkerfi með allt að 256 stafí í einu skeyti. • Sending staðsetningarskilaboða (GPS) með upplýsingum um staðsetningu manna og farar- tækja. Sumar TETRA-farstöðvar eru fáanlegar með innbyggðu GPS-tæki. Þessar upplýsingar er hægt að setja í kortagrunn og fá þannig á myndrænan hátt yfirlit yfir staðsetningu manna og farar- tækja. • Til fjarmælinga og ijarstjómunar (telemetry applications), hvers konar mælinga á stöðu búnaðar (viðnám, straumur, spenna, hiti, þrýstingur, hæð, staðsetning o.s.frv.) og fjarstjómun hans. 6. Stöðuskilaboð Sending stöðuskilaboða sem em skilaboð með fyrirfram skilgreind- um upplýsingum sem oft þarf að senda, t.d. á textaformi. Sem dæmi um stöðuskilaboð má nefna, „Fór í mat“, „Hringdu í mig“, „útkall Alfa rauður" o.s.frv. Stöðuskilaboð eru fyrst og fremst notuð til að senda stöðluð skilaboð sem oft þarf að senda, þannig að þau megi velja úr minni farstöðvar og þau þurfí ekki að slá inn í hvert skipti. 7. IP-staðallinn Væntanleg samhæfing TETRA við IP-internetstaðalinn mun gefa notendum möguleika á að nýta sér ýmsa þjónustu hvar sem þeir eru staddir innan TETRA-þjónustusvæð- isins hverju sinni. Um er að ræða þjónustu eins og tengingu við Inter- netið, tölvupóst, fjarvinnslu o.s.frv. 8. Neyðarhringing 112 Flestallar TETRA-farstöðvar em með rauðum neyðarhnappi sem gef- ur þeim beint samband við 112 - Neyðarlínuna. Neyðarhringing hef- ur alltaf forgang fram yfir önnur samtöl í TETRA-kerfi. Þetta er mik- ilvægur öryggisþáttur, því oft er á örlagastundu erfítt að ná sambandi við viðbragðsaðila með hefðbundn- um símakerfum, sérstaklega þegar álag á þau verður mikið. 9. Öryggi í samskiptum TETRA-samskipti er ekki hægt að hlera, hvorki tal né gagnasam- skipti. Sameiginlegar kröfur allra TETRA-notenda Það sem einkennir þarfir allra 239

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.