Sveitarstjórnarmál - 01.10.2000, Side 55
FRÁ LAN DS H LUTASAMT O KU N U M
Páll Pétursson félagsmálaráðherra flytur ávarp sitt á fundinum. Við borðið sitja,
talið frá vinstri, Ellert Eiríksson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, Ingimundur Sigurpáls-
son, bæjarstjóri Garðabæjar, og fundarstjórarnir Kristmundur Ásmundsson og
Kjartan Már Kjartansson.
Eitt af hagsmunamálum sem SSS
hefur að undanförnu unnið að og
ílrekað ályktað um er slakur útsend-
ingarstyrkur ljósvakamiðla á Suður-
nesjum. í apríl tilkynnti útvarpsstjóri
að nýr 100 W sjónvarpssendir yrði
settur upp í Keflavík á árinu.
Málefni fatlaðra, sem talsvert voru
til umræðu í kringum síðasta aðal-
fúnd SSS, höfðu ekki verið mikið til
umfjöllunar á árinu. Nefnd sú sem
komið var á laggirnar í Reykjanes-
kjördæmi vegna yfirfærslunnar hefúr
lítið starfað á þessu ári; sú mikla
vinna sem sveitarfélögin standa nú
frammi fyrir við einsetningu grunn-
skólanna, umræðan um tekjustofna
sveitarfélaganna og staða málaflokks-
ins í kjördæminu á sinn þátt í þvi.
Samningur MOA, SSS og Byggða-
stofnunar um atvinnuþróun á Suður-
nesjum rann út í sumar. Ólafúr Kjart-
ansson og Guðjón Guðmundsson
hafa verið að undirbúa nýjan samning. Á vegum MOA
er nú unnið að verkefninu „Reykjanes 2003“. Þar er ver-
ið að skoða hvaða breytur hafa áhrif á búsetu fólks á ís-
landi og kanna ímynd Suðumesja bæði innan og utan
svæðisins. Jafnframt hugsar MOA sér að koma með til-
lögur til sveitarstjóma og fá tillögur frá sveitarstjómum
urn hvemig hægt sé að bæta umhverfið til þess að gera
það meira aðlaðandi fyrir þá sem alast upp á Suðumesj-
um og þá sem vildu flytjast þangað.
Samgöngumálin hafa alltaf verið mikið til umfjöllun-
ar á sameiginlegum vettvangi og vék formaður sérstak-
lega að Reykjanesbrautinni í máli sínu: „Tvöföldun
Reykjanesbrautarinnar er það forgangsverkefni sem
lögð hefúr verið hvað mest áhersla á. Við gerð langtíma-
áætlunar í vegagerð var gert ráð fyrir að tvöföldunin
myndi kosta gróflega 2,5 milljarða kr. Áætlað er að
verkið verði unnið á ámnum 2001-2010, þó aðallega frá
2007-2010. Umferð um Reykjanesbraut er sívaxandi; á
árinu 1997 fóm 5870 biffeiðar um brautina á sólarhring
við Straumsvík en árið 1998 6330 bílar á sólarhring,
þannig að aukningin er um 8% milli ára. Slysatíðni hef-
ur verið að meðaltali 40 slys á ári milli áranna 1992 og
1996. Þó er ljóst að lýsing Reykjanesbrautar hefúr verið
þarft verk og aukið öryggi vegfarenda. Skipulag byggð-
ar við Reykjanesbraut í Hafnarfírði þrengir líka svigrúm
brautarinnar og eykur slysahættu eins og dæmin sanna.
Það em því fúllgild rök að flýta ffamkvæmdum við tvö-
foldun Reykjanesbrautar.“
Þá fór ffam nokkur umræða í stjóm SSS um hlutverk
launanefndar SSS og starfsmat. Mikil óánægja er með
þróun starfsmatsins sem virðist vera kerfí sem gengið er
sér til húðar.
Að lokum sagði Skúli Þ. Skúlason:
„Þar sem ég hef gegnt stöðu formanns sambandsins
undangengið starfsár langar mig við þetta tækifæri að
þakka fráfarandi stjórnarmönnum samstarfið. Það er
samt ljóst að undir niðri er togstreita og skoðanamunur
unt samstarf sveitarfélaganna á Suðumesjum; þetta vita
allir sveitarstjómarmenn. Stjómarfúndir SSS hafa samt
sem áður ávallt verið málefnalegir og ríkt gagnkvæm
virðing fyrir mismunandi sjónarmiðum."
Ávörp
í ávarpi sínu ræddi Páll Pétursson félagsmálaráðherra
um þau verkefni ráðuneytisins sem efst em á baugi, sam-
skipti sveitarfélaga við ráðuneytið og svaraði að því
loknu fyrirspumum fúndarmanna.
Ámi M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra flutti kveðjur
þingmanna Reykjaneskjördæmis, Vilhjálmur Þ. Vil-
hjálmsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga,
flutti kveðjur sambandsins og ræddi m.a. fjármál sveitar-
félaga í ávarpi sínu. Einnig flutti Ingunn Guðmundsdótt-
ir, formaður Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga, kveðjur
samtaka sinna.
Árangur í skóíastarfi
Annað af meginefnum fúndarins var umfjöllun um ár-
angur í skólastarfi. Þar ræddi Sigrún Jónsdóttir, deildar-
sérfræðingur í menntamálaráðuneytinu, hlutverk ráðu-
245