Sveitarstjórnarmál - 01.10.2000, Page 56
FRÁ LANDSHLUTASAMTÖKUNUM
Núverandi stjórn SSS, talið frá vinstri, sitjandi í fremri röð, Guðjón Guðmundsson
framkvæmdastjóri SSS, Sigurður Jónsson, sveitarstjóri í Gerðahreppi, formaður
SSS, og Skúli Þ. Skúlason, forseti bæjarstjórnar í Reykjanesbæ og fyrrv. formaður
SSS. Standandi í aftari röð eru Hallgrímur Bogason, forseti bæjarstjórnar í Grinda-
víkurkaupstað, Þóra Bragadóttir, oddviti Vatnsleysustrandarhrepps, Jóhanna M. Ein-
arsdóttir, ritari stjórnarinnar, og Óskar Gunnarsson, forseti bæjarstjórnar Sandgerð-
isbæjar.
neytisins í að tryggja gæði skólans. Amalía Bjömsdóttir,
lektor við KÍ, ræddi um stöðu skóla á Suðumesjum og
bar saman niðurstöður samræmdra próf grunnskóla-
nema 1993-1999 með sérstöku tilliti til Suðumesjanna.
Eiríkur Hermannsson, skólamálastjóri Reykjanesbæjar,
ljallaði um skólastefnu sem stjómtæki og framkvæmd
hennar, framtíðarsýn, lagaramma, mat á árangri í skóla-
starfi o.fl. Jónína Bjartmarz, formaður landssamtakanna
Heimili og skóli, talaði um mikilvægi samstarfs foreldra
og skóla. Eftir þessi yfirgripsmiklu erindi urðu miklar
umræður og frummælendur svömðu fyrirspumum fund-
armanna.
Fjármál sveitarfélaga
Hitt meginefni fundarins auk aðalfundarstarfanna
vom fjármál sveitarfélaga. Ellert Eiríksson, bæjarstjóri
Reykjanesbæjar, ræddi um fortíðarvanda og tekjustofna
sveitarfélaga í framtíðinni. Hann bar saman nokkur
dæmi um tekjur og gjöld sveitarfélaga 1994 og 1998. Þá
fór hann yfir athugasemdir og ábendingar sem bæjar- og
sveitarstjórar á Suðumesjum hafa sameiginlega komið á
framfæri við nefnd um endurskoðun á tekjustofnum
sveitarfélaga.
Ingimundur Sigurpálsson, bæjarstjóri Garðabæjar,
ræddi um tekjustofha sveitarfélaga og þá vinnu sem nú
fer ffarn um breytingar og einnig ræddi hann samanburð
á skattalegu umhverfi milli landa.
Ályktanir
Eftirfarandi ályktanir voru sam-
þykktar á fúndinum:
Forvarnir
Aðalfundur SSS, haldinn í Fjöl-
brautaskóla Suðurnesja dagana
15.-16. október 1999, leggur áherslu
á að halda áfram og auka enn samstarf
á sviði forvama með því að fá fjár-
veitingar til eftirfarandi:
a. 100% stöðugildi fíkniefnalögreglu-
manns við sýslumannsembættið í
Keflavík ásamt fjármagni til úr-
vinnslu.
b. 50% stöðugildi tollvarðar hjá Toll-
gæslunni á Keflavikurflugvelli.
Flutningur innanlandsflugs til
Keflavíkurflugvallar
Aðalfundur SSS 1999 hvetur stjóm-
völd til þess að láta fara fram hag-
kvæmnisúttekt á að flytja miðstöð
kennslu-, ferju- og innanlandsflugs til
Keflavíkurflugvallar.
Sveitarfélögin á Suðumesjum bjóða
jafnframt fram krafta sína til sam-
starfs við ríki og Reykjavíkurborg um framtíðarlausn á
staðarvali innanlandsflugs, kennsluflugs og ferjuflugs.
Heilbrigðismál
Aðalfúndur SSS 1999 lýsir áhyggjum sínum yfir því
að verulega vantar á að rekstrarfjárveitingar til Heil-
brigðisstofnunar Suðurnesja á fjárlögum dugi til að
standa undir núverandi þjónustustigi, sem hefur verið
óbreytt í mörg ár og er að mati heimamanna lágmarks-
þjónusta.
Fjölmargar úttektir á rekstrinum hafa leitt í ljós að ekki
verður um frekari sparnað að ræða nema með lokun
deilda, sem er óásættanlegt enda flyttist þá sú þjónusta til
Reykjavíkur með þeim kostnaði og óþægindum, sem því
fýlgir.
Fundurinn hvetur til þess að framtíðarhlutverk stofn-
unarinnar verði skilgreint með þjónustusamningi og að
fjárveitingar á komandi fjárlögum verði í samræmi við
þau verkefni sem stofnunin á að vinna.
Löggæsla
Aðalfúndur SSS 1999 lýsir áhyggjum sínum yflr því
að vemlega vantar á almenna löggæslu á Suðumesjum
og leggur áherslu á að fá aukna fjárveitingu til sýslu-
mannsembættisins í Keflavík til þess að það geti sinnt
hlutverki sínu á svæðinu.
246