Sveitarstjórnarmál - 01.10.2000, Síða 58
FRÁ LAN DSHLUTASAMTÖKUNUM
Aðalfundur SASS 2000
haldinn á Kirkjubæjarklaustri 17. og 18. mars
Þorvarður Hjaltason, framkvœmdastjóri SdS'S’
Aðalfundur Samtaka sunnlenskra sveitar-
félaga (SASS) 2000 var haldinn dagana 17.
og 18. mars sl. á Kirkjubæjarklaustri.
Meginefni fundarins auk venjulegra aðal-
fundarstarfa var umfjöllun um stjórnsýslu
sveitarfélaga, verkefni og Ijármál. Einnig
lágu fyrir fundinum starfsskýrsla stjómar og
framkvæmdastjóra, starfsskýrsla Heilbrigðis-
eftirlits Suðurlands og skýrsla stjómar Skóla-
skrifstofu Suðurlands. Til fundarins komu 57
fulltrúar frá 25 sveitarfélögum auk gesta og
starfsmanna.
Fundarstjórar voru þau Árni Jón Elíasson, oddviti
Skaftárhrepps, og Jóna Sigurbjartsdóttir varaoddviti, en
Halla Guðmundsdóttir, hreppsnefndarfulltrúi í Gnúp-
verjahreppi, ritaði fúndargerð.
Starfsskýrslur
Skýrsla stjórnar og framkvæmdastjóra
Ingunn Guðmundsdóttir, formaður SASS, flutti ágrip
af skýrslu stjómar og Þorvarður Hjaltason ffamkvæmda-
stjóri greindi frá rekstri stofnana á vegum SASS. Hann
fór síðan yfir ársreikning SASS og skýrði einstaka liði
og lagði frant fjárhagsáætlun fyrir SASS, Heilbrigðiseft-
irlit Suðurlands og Skólaskrifstofú Suðurlands fyrir árið
2000.
Starfsskýrsla heilbrigðiseftirlits
Fyrst á dagskrá var starfsskýrsla Heilbrigðiseftirlits
Suðurlands, sem Matthías Garðarsson, forstöðumaður
stofnunarinnar, flutti. Leysti hann úr fyrirspumum varð-
andi skýrsluna.
Guðmundur Ingi Gunnlaugsson, sveitarstjóri Rangár-
vallahrepps, flutti skýrslu heilbrigðisnefndar Suður-
lands. Taldi hann í ffamhaldi af því nauðsynlegt að skil-
greina með skýrari hætti umboð nefndamianna og hlut-
verk nefndarinnar með tilliti til laga og reglugerða.
Hann ræddi síðan einstök atvik ffá starfí nefndarinnar
og starfsmanna hennar á siðasta starfsári sem urðu til
þess beint og óbeint að hann skilar nú umboði sínu sem
formaður nefndarinnar til aðalfúndar SASS og segir sig
úr nefndinni.
Starfsskýrsla Skólaskrifstofu Suðurlands
Þá var komið að skýrslu Skólaskrifstofu
Suðurlands sem Ragnar S. Ragnarsson, for-
stöðumaður skrifstofunnar, flutti. Aldís Haf-
steinsdóttir, formaður stjómar Skólaskrifstofu
Suðurlands, ræddi stefnu og viðhorf í skóla-
málum og aukinn kostnað með breyttu skipu-
lagi þeirra. Mikill metnaður er gagnvart þess-
um málum bæði hjá starfsmönnum skrifstof-
unnar og sveitarstjómarmönnum.
Ávörp og erindi
Fyrstur flutti erindi Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, for-
maður Sambands íslenskra sveitarfélaga. Fjallaði hann
um þróun í kjaramálum og fjármálum ríkisins og sveitar-
félaganna, breytingar á skattalögum og áhrif ýmissa
ákvarðana ríkisins á tekjur og tekjustofna sveitarfélag-
anna.
Guðjón Guðmundsson, framkvæmdastjóri Sambands
sveitarfélaga á Suðumesjum (SSS), ávarpaði fúndinn og
flutti kveðjur sveitarstjómarmanna þar. I Ijósi þess að
starfsvettvangurinn verður sameiginlegur í framtíðinni
fagnaði hann tækifærinu til að koma á þennan fúnd.
Dr. Grétar Eyþórsson stjómmálaffæðingur flutti ffóð-
legt erindi undir liðnum Stjómsýsla sveitarfélaga, verk-
efni og fjármál. Fjallaði hann ítarlega um könnun sem
hann gerði á viðhorfum sveitarstjórnarmanna annars
vegar og annarra íbúa hins vegar til forsendna með og á
móti sameiningu. Þar kom fram sterk fylgni viðhorfa
fólks eftir væntri stöðu eigin sveitarfélags eftir samein-
ingu.
Guðjón Ingvi Stefánsson, framkvæmdastjóri Sam-
bands sveitarfélaga í Vesturlandskjördæmi, flutti erindi
sem hann kallaði Stjómsýslu í dreifbýli. Rakti hann þar
drög að stofnun og uppbyggingu landshlutasamtaka
sveitarfélaganna sem öflugs áhrifavalds í hinum dreifðu
byggðum. Taldi hann síst minni ástæðu til að vera vel á
verði um hagsmuni þeirra eftir því sem tímar liðu og
nýta vel sóknarfæri.
Jón Kristjánsson alþingismaður, formaður nefndar um
endurskoðun á tekjustofnum sveitarfélaga, tók næstur til
máls. Rakti hann undangengna flutninga á verkefnum
yfir til sveitarfélaganna og lög um tekjustofha sveitarfé-
248