Sveitarstjórnarmál - 01.10.2000, Síða 59
FRÁ LANDSHLUTASAMTÖKUNUM
Ályktanir aöalfund-
aríns
Þjóðlendunefnd
Aðalfundur SASS, haldinn á Kirkjubæjarklaustri 17.
og 18. mars 2000, telur að kröfunefnd ríkisins hafi farið
offari í kröfum sínum á hendur landeigendum í Ámes-
sýslu. Markmið þjóðlendulaganna, þ.e. laga nr. 58/1998,
er að skera úr um eignarhald á landi sem enginn geti
sannað eignarrétt sinn á en með kröfúgerð sinni gengur
ríkisvaldið þvert á þinglýstar eignarheimildir og starfar
þannig alls ekki í anda laganna.
Aðalfúndur SASS skorar því á fjármálaráðherra fyrir
hönd ríkisins að draga kröfúlínu ríkisins út fýrir þing-
lýstar eignarheimildir þannig að óbyggðanefnd geti tekið
til við að úrskurða um þau svæði sem
nhenni er ætlað að fjalla um. Jafnframt
leggur fundurinn til að þjóðlendu-
nefndin verði endurskipuð og að fleiri
ráðuneyti komi að skipan nefndarinn-
ar.
laga. Reynt er að meta
áhrif yfirfærslu á fjárhag
þeirra en í heild hefur
komið í ljós að afkoman
almennt hefur versnað
undanfarin ár. Munu jöfn-
unarsjóði m.a. verða
tryggðir meiri fjármunir
enda verður að tryggja
sveitarfélögum tekjustofúa
til að þau séu í stakk búin
þess til að taka við nýjum
verkefnum og leysa þau
myndarlega sem þau hafa
nú þegar tekist á hendur.
Lagði hann áherslu á
nauðsyn góðs samráðs rík-
is og sveitarfélaga um alla
þætti sem varða þessi mál
þegar nýjar leiðir eru
skoðaðar.
Frá fundinum á Kirkjubæjarklaustri.
Refa- og minkaveiðar
Aðalfúndur SASS 2000 beinir þeim
tilmælum til stjómvaldsins/umhverf-
isráðuneytis að kostnaður við eyðingu
refa og minka verði alfarið á hendi
ríkisvaldsins. Jafnffamt verði stórauk-
ið fjármagn í málaflokkinn.
Fundarstjórnin. Á myndinni eru, talið frá vinstri, Árni Jón Elíasson, oddviti Skaftár-
hrepps, Jóna Sigurbjartsdóttir, varaoddviti hreppsins, og Halla Guðmundsdóttir,
hreppsnefndarfulltrúi í Gnúpverjahreppi, sem var ritari.
Verkefnaflutningur ríkisins út á
land
Aðalfundur SASS 2000 skorar á
ríkisstjóm íslands að hún beiti sér í
stórauknum mæli fyrir flutningi verk-
efna á vegum ríkisins út á land. Með
þeim stórstígu framförum sem hafa
orðið í upplýsingatækni og rafrænum
samskiptum á undanförnum árum
hafa skapast gjörbreyttar aðstæður að
249