Morgunblaðið - 10.11.2011, Side 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. NÓVEMBER 2011
FRÉTTASKÝRING
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Samkvæmt grunnskólalögum eiga
nemendur að eiga kost á málsverði á
skólatíma í samræmi við opinber
manneldismarkmið. Lítið sem ekk-
ert eftirlit virðist þó vera með því
hvort farið sé eftir þessu.
Eina opinbera eftirlitið er í hönd-
um heilbrigðiseftirlita sveitarfélag-
anna. Þannig fer Heilbrigðiseftirlit
Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis í
mötuneyti skóla 1-2 sinnum á ári.
„Við fylgjumst m.a. með því hvernig
skömmtun fer fram, þrifum og innra
eftirliti mötuneytanna,“ segir heil-
brigðisfulltrúi eftirlitsins. „Einnig er
tekið út hvernig maturinn er geymd-
ur.“ Heilbrigðisfulltrúinn segir að
ekki sé á starfssviði heilbrigðiseft-
irlitsins að fylgjast með næring-
arinnihaldi matarins. Í sama streng
tekur Rósa Magnúsdóttir, deild-
arstjóri hjá heilbrigðiseftirlitinu í
Reykjavík. „Við fylgjumst með holl-
ustuháttum við framreiðslu mat-
arins. Maturinn sem slíkur er ekki á
okkar könnu að öðru leyti en að hann
sé geymdur við réttar aðstæður og
meðhöndlaður á réttan hátt, en það
er gríðarlega mikilvægt,“ segir Rósa.
Samkvæmt upplýsingum frá
Reykjavíkurborg hafa allar skóla-
máltíðir þar verið framreiddar sam-
kvæmt ráðleggingum frá Landlækn-
isembættinu undanfarin ár. Elva
Gísladóttir hjá embætti Landlæknis
segir að þar séu settar fram ráðlegg-
ingar fyrir mataræði í skólum en að
embættið hafi ekki eftirlit með því
hvað sé á matardiskum grunnskóla-
barna. Það sem boðið sé upp á í
mötuneytum grunnskóla sé á ábyrgð
viðkomandi skólastjóra, því eftirlit
með gæðum skólastarfs og þar með
skólamáltíða sé á ábyrgð skólans.
Ekkert eftirlit
„Það er ekkert eftirlit með því
hvað boðið er upp á í skólamöt-
uneytum,“ segir Margrét Gylfadótt-
ir, en hún er ein þriggja mæðra reyk-
vískra grunnskólabarna sem hafa
látið málið til sín taka og gerðu þær
m.a. könnun á skólamáltíðum í
Reykjavík. „Eina eftirlitið felst í at-
hugun á hitastigi á kæliskápum.“
Margrét vakti máls á þessu í vor
ásamt Sigurveigu Káradóttur og Sig-
urrósu Pálsdóttur. Hún segir að
gagnrýninni hafi verið vel tekið og
þær m.a. boðaðar á nokkra fundi með
menntaráði og borgarstjóra. „En það
hefur ekkert breyst síðan þá,“ segir
Margrét.
Samkvæmt upplýsingum frá
Reykjavíkurborg eru innkaup á mat-
vöru samræmd, þ.e. keypt er inn í
einu lagi fyrir alla grunnskóla borg-
arinnar. Margrét segir þetta vera
hluta vandans. „Kokkarnir í grunn-
skólunum mega bara kaupa af til-
teknum birgjum og ef maður skoðar
matseðla grunnskólanna í borginni,
þá sést hvað er á tilboði hverju sinni.
Það er t.d. ekki möguleiki á að kaupa
beint af fisksalanum eða grænmet-
isbóndanum.“
Erum við kannski að varpa allri
ábyrgð á skólana? Íslensk börn eru
vissulega meðal feitustu barna Evr-
ópu, en varla fitna þau bara í skól-
anum. „Skólarnir eru uppeld-
isstofnun, þar á að sýna gott fordæmi
og það er varla gert með því að bjóða
börnum upp á næringarsnauðan
mat,“ segir Margrét.
Ekkert eftirlit með
gæðum skólamáltíða
Morgunblaðið/RAX
Skólamötuneyti Gagnrýnt hefur verið að máltíðir í grunnskólum uppfylli
ekki manneldismarkmið. Ekkert eftirlit er með því hvort svo sé.
Að sögn Margrétar segja mat-
seðlarnir, sem birtir eru á vef-
síðum skólanna, oft ekki nema
hálfa söguna. „Til dæmis er ekki
sama kjötbolla og kjötbolla.
Matur getur heitið sama nafni,
en innihaldið verið gjörólíkt,“
segir Margrét. „En það er ekkert
eftirlit með þessu.“
Hún segir að oft telji for-
eldrar matinn miklu hollari og
næringarríkari en hann sé í
rauninni. Hún nefnir sem dæmi
fiskrétti, sem innihaldi flest
annað en fisk. „En það kemur
aldrei fram hvað maturinn inni-
heldur. Hann getur verið stút-
fullur af salti og jafnvel búinn
að glata miklu af næringarefn-
unum vegna þess að hann er
búinn til fyrirfram og síðan hit-
aður upp,“ segir Margrét.
Telja matinn
hollari
ÓLJÓST INNIHALD
FÁKAFENI 9 - Sími: 553 7060
Opið mánud-föstud. 11-18 & laugard. 11-16
Sérverslun með
www.gabor. is
Mikið úrval af
fallegum skóm
og töskum
Gæði &
Glæsileiki
Ný sending af
náttfatnaði og
velúrgöllum,
mikið úrval
Póstsendum
Laugavegi 82,
á horni Barónsstígs
sími 551 4473
Laugavegi 63 • Sími 5514422
HÁTÍÐIN
NÁLGAST
20%
AFSLÁTTUR
FIMMTUDAG TIL
LAUGARDAGS
BASIC DRAGTIN
ALLTAF KLASSÍSK,
ALLTAF FLOTT
Frábær glæsidragt
jafnt í veisluna
sem vinnuna
Mörg snið
stærðir 36-48
Nú extra síð
pils 105 cm
Verslaðu glæsilegan
fatnað þar sem gæði
og þjónusta skipta
máli.
Dóra Dröfn Skúladóttir,
geðhjúkrunarfræðingur,
hefur opnað samtalsmeðferðarstofu að
Skipholti 50b. Með Diploma í Hugrænni
atferlismeðferð.
Viðtalspantanir alla daga í síma 841 7010.
Netfang: hamir@simnet.is.
HJÁLP Í NEYÐ Á HEIMASLÓÐUM, símasöfnun Fjölskylduhjálpar
Íslands hafin. 2500 börn búa hjá foreldrum sem neyðast
reglulega til að sækja sér mataraðstoð hjá
Fjölskylduhjálp Íslands sem leitar nú eftir stuðningi
landsmanna. Við hringjum fljótlega í þig.
Söfnunarreikningur 546-26-6609, kt 660903-2590.
Íslenska sveitin tapaði með minnsta
mun gegn Serbum í sjöundu umferð
Evrópumóts landsliða í skák sem
fram fór í Grikklandi í gær, með 1,5
gegn 2,5 vinningum.
Björn Þorfinnsson og Hjörvar
Steinn Grétarsson töpuðu sínum
skákum. Henrik Danielsen hafði
lengi vel örlítið betri stöðu á fyrsta
borði en náði þó aðeins jafntefli.
Bragi Þorfinnsson náði þó í einn
vinning fyrir Ísland en hann átti
skák dagsins þegar hann vann
glæsilegan sigur á stórmeist-
aranum Branko Damljanovic.
Eru Íslendingar nú í 27. sæti af
38 sveitum með sex stig. Þrátt fyrir
tapið í gær er sveitin næstefst
Norðurlandanna á mótinu en
sænska sveitin er efst þeirra með
sjö stig.
Aserar efstir á mótinu
Andstæðingar Íslendinga í dag
eru ólympíumeistarar Úkra-
ínumanna en þeir töpuðu afar
óvænt, 3-1, gegn sveit Svisslend-
inga í gær. Eru Úkraínumennirnir
því í 26. sæti, einu sæti á undan ís-
lensku sveitinni.
Aserar rúlluðu yfir Búlgara, 3,5-
0,5, og eru efstir á mótinu sem
stendur með tólf stig. Armenar,
sem unnu Frakka, og Rúmenar,
sem héldu jöfnu gegn Þjóðverjum,
hafa 11 stig og deila öðru sætinu.
Tap fyrir Serbum
í sjöundu umferð
Tefla við ólympíumeistarana í dag
Ljósmynd/Gunnar Björnsson
Evrópumót Bragi Þorfinnsson
skákmaður á EM í Grikklandi.
- nýr auglýsingamiðill
569-1100finnur@mbl.is