Morgunblaðið - 10.11.2011, Side 17
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Sjálandsskóli í Garðabæ fékk Ís-
lensku menntaverðlaunin 2011 sem
voru afhent af forseta Íslands, Ólafi
Ragnari Grímssyni, í gærkvöldi. Svo
skemmtilega vildi til að athöfnin fór
fram í Sjálandsskóla en búið var að
ákveða það áður en ljóst var hvaða
skóli fengi verðlaunin.
Menntaverðlaunin eru veitt þeim
skóla sem hefur sinnt vel nýsköpun
eða farsælu samhengi í fræðslu-
starfi. Edda Björg Sigurðardóttir er
skólastjóri Sjálandsskóla og að von-
um ánægð með verðlaunin. „Þetta
gefur okkur drifkraft til að halda
áfram á þeirri braut sem við höfum
verið að fara. Þetta eru verðlaun alls
starfshópsins, ekki bara kenn-
aranna. Við höfum öll þjappað okkur
saman um að þróa skólann í þá átt
sem hann er kominn,“ segir Edda.
Sjálandsskóli tók til starfa haustið
2005 og í honum eru 244 nemendur í
1. til 10. bekk. Í skólanum er lögð
áhersla á einstaklingsmiðað nám,
fjölbreytta, sveigjanlega og lýðræð-
islega kennsluhætti, sköpun og tján-
ingu. „Við leitum allra leiða við að
nota fjölbreyttar kennsluaðferðir og
nemendurnir eru alltaf í brenni-
depli,“ segir Edda. „Við höfum tekið
þátt í allskonar þróunarvinnu, eins
og í námsmatinu. Síðan erum við
með mjög öfluga unglingadeild þar
sem eru farnar nýjar og óhefð-
bundnar leiðir, íslenska og stærð-
fræði eru t.d. kennd í lotum og sam-
félagsfræðigreinar í þemum.“
Edda segir það forréttindi að hafa
fengið að taka þátt í að byggja upp
þetta starf og vera hluti af þeim öfl-
uga starfshópi sem er í skólanum.
Hugsjónir og hæfileikar
Íslensku menntaverðlaunin voru
veitt í þremur öðrum flokkum.
Gunnlaugur Sigurðsson hlaut verð-
laun í flokki kennara sem hafa skilað
merku ævistarfi eða á annan hátt
skarað fram úr. Hann gegndi starfi
skólastjóra í Garðaskóla í Garðabæ
frá stofnun skólans árið 1966 og til
ársins 2003 en þá lét Gunnlaugur af
störfum. Í umsögn dómnefndar seg-
ir að Gunnlaugur hafi á starfsferli
sínum markað djúp spor í skólasögu
Garðabæjar, sem og landsins alls.
„Gunnlaugur er hugsjónamaður og
hreif samstarfsfólk, foreldra og
nemendur með sér í framfara- og til-
raunastörfum,“ segir í umsögninni
Karólína Einarsdóttir, kennari
við Akurskóla í Reykjanesbæ, fékk
verðlaun í flokki ungra kennara sem
í upphafi kennsluferils hafa sýnt
hæfileika og lagt alúð við starf sitt.
Nútímaleg nálgun á stærðfræði
Fjórðu verðlaunin eru veitt höf-
undi námsefnis sem stuðlað hefur að
nýjungum í skólastarfi. Í þetta sinn
fóru þau til Guðbjargar Pálsdóttur,
Guðnýjar Helgu Gunnarsdóttur,
Jónínu Völu Kristinsdóttur og Guð-
rúnar Angantýsdóttur. Þær eru höf-
undar Geisla, sem er heiti á náms-
efnisflokki í stærðfræði fyrir
miðstig grunnskóla. Í umsögn dóm-
nefndar segir að í Geisla sé beitt
fjölbreytilegri og nútímalegri nálg-
un á stærðfræðinám og beitingu
stærðfræði í daglegu lífi, framsetn-
ing efnis og verkefna byggist á því
að nemendur öðlist skilning á því
sem þeir eru að fást við hverju sinni.
Morgunblaðið/Kristinn
Sjálandsskóli Skólastjórnendur og nemendur Sjálandsskóla taka hér við menntaverðlaununum í gærkvöldi.
Íslensku menntaverð-
launin gefa drifkraft
Fern verðlaun veitt fyrir störf í grunnskólum landsins
Menntaverðlaunin
» Íslensku menntaverðlaunin
voru nú afhent í sjöunda skipti.
» Þau eru einkum bundin við
grunnskólastarfið og ætlað að
hvetja og verðlauna þá sem
stuðlað hafa að grósku í því
starfi.
» Lækjarskóli hlaut verðlaunin
í fyrra í flokki skóla.
FRÉTTIR 17Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. NÓVEMBER 2011
„Þetta er eins og að fá eitt risastórt
klapp á bakið,“ segir Karólína Ein-
arsdóttir, myndmenntakennari við
Akurskóla í Reykjanesbæ. Hún
fékk Íslensku menntaverðlaunin
2011 í flokki ungra kennara sem í
upphafi kennsluferils hafa sýnt
hæfileika og lagt alúð við starf sitt.
Karólína útskrifaðist frá Kenn-
araháskólanum vorið 2007 og hóf
myndmenntakennslu um haustið
við Akurskóla. Hún segist vera
gáttuð á að fá þessa viðurkenningu.
„Mér finnst eins og ég sé að keppa í
maraþonhlaupi og aðeins búin að
hlaupa tíu metra þegar ég fæ verð-
laun,“ segir Karólína. Hún stundar
nú mastersnám í listmenntun, lista-
sögu og verkmenntun.
Í umsögn dómnefndar Íslensku
menntaverðlaunanna segir að Kar-
ólína sé hugmyndaríkur frum-
kvöðull í kennslu. Hún hafi verið í
forsvari fyrir þróunarverkefni á
sviði útikennslu og tengist það
áhuga Karólínu á að samþætta
myndlist og útikennslu við aðrar
námsgreinar. „Með störfum sínum
og framgöngu hefur Karólína Ein-
arsdóttir sýnt að hún er verðugur
fulltrúi ungra kennara sem leggja
mikla alúð, fagmennsku og metnað
í störf sín nemendum, samstarfs-
mönnum og nærsamfélagi sínu til
heilla,“ segir í umsögninni.
Leiðarljós Karólínu í kennslunni
er að nemandanum líði vel og að
hann sjái námstækifæri í öllu. „Það
er afskaplega ánægjulegt þegar
nemendur finna sig í myndlist,
finna að hún gæti hentað þeim og
sjá nýjan heim opnast.“
Kennslustarfið hefur heillað Kar-
ólínu upp úr skónum. „Það er miklu
skemmtilegra en ég bjóst við að
kenna. Starfið er rosalega gefandi
og það gerir svo mikið fyrir mann
sjálfan að vinna með börnum.“
Hugmyndaríkur frumkvöðull
Morgunblaðið/Kristinn
Myndmennt Verðlaunasteinninn tók í þegar Karólína Einarsdóttir mynd-
menntakennari veitti sínum verðlaunum viðtöku úr hendi forseta Íslands.