Morgunblaðið - 10.11.2011, Blaðsíða 35
DAGBÓK 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. NÓVEMBER 2011
Sudoku
Frumstig
2 8 6
1 4
5 4
6 2
8 5 6 9
8 9 1
1 5 7
7 6 1
4 9 1 2
5 9
4 8
5 8 3 2
3
8 4
5 6
3 2 4 7 9
7 8 9
2 3 8 6
6
7 5 9
2 6 5 9
8 4
2 8 5
5 4
3 1 4
9 1 3 2
6 8
2 3 4 9 8 6 7 5 1
1 6 9 3 5 7 8 2 4
5 8 7 4 2 1 6 9 3
6 7 5 2 1 3 9 4 8
8 9 1 6 4 5 3 7 2
3 4 2 7 9 8 1 6 5
9 1 8 5 7 4 2 3 6
7 5 3 1 6 2 4 8 9
4 2 6 8 3 9 5 1 7
1 8 4 3 7 6 5 9 2
9 3 2 1 4 5 7 6 8
7 5 6 8 2 9 1 3 4
5 1 3 4 6 7 8 2 9
4 6 7 9 8 2 3 5 1
2 9 8 5 1 3 4 7 6
6 2 1 7 3 8 9 4 5
3 4 5 2 9 1 6 8 7
8 7 9 6 5 4 2 1 3
8 7 3 9 1 6 4 5 2
5 6 9 4 2 8 7 3 1
2 1 4 7 3 5 9 8 6
4 9 1 3 6 7 8 2 5
3 5 6 2 8 9 1 4 7
7 8 2 5 4 1 3 6 9
6 3 7 8 9 2 5 1 4
9 2 8 1 5 4 6 7 3
1 4 5 6 7 3 2 9 8
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er fimmtudagur 10. nóvember,
314. dagur ársins 2011
Orð dagsins: Já, gæfa og náð fylgja
mér alla ævidaga mína, og í húsi
Drottins bý ég langa ævi. (Sálm. 23, 6.)
Víkverji ekur reglulega framhjáHörpu, tónlistar- og ráðstefnu-
húsinu í Reykjavík, þakkar almætt-
inu fyrir framsýnina og lofar hvern
þann dag sem njóta má tónlistar í
Eldborginni á verði sem almúginn
setur ekki fyrir sig.
x x x
Verkefnin og viðburðirnir eruóþrjótandi, þegar Harpa er
annars vegar og tónleikar við allra
hæfi. Enginn vill til dæmis missa af
10 ára afmælistónleikum Frostrósa
eða hátíðartónleikum sama hóps og
öllum er gert það kleift með 6.990 -
13.990 kr. miðaverði, um 28 til 56
þúsund krónur fyrir fjögurra manna
fjölskyldu.
Miðinn á Biophiliu, sérstaka tón-
leika með Björk á Iceland Airwaves,
kostaði 9.900 - 12.900 kr., um 40 til
52 þúsund krónur fyrir fjölskylduna.
Það vafðist ekki fyrir nokkrum
manni auk þess sem skemmtilegast
er að sjá stjörnuna troða upp á
heimavelli.
Matur er mannsins megin og hver
vill ekki borga 11.900 fyrir Bolly-
wood, indverska dans- og mat-
arveislu, á milli tónleika, um 48.000
kr. fyrir fjögurra manna fjölskyldu?
Elvis Costello er enginn venjuleg-
ur Elvis og ekkert mál að snara út
6.900 - 12.900 kr. fyrir kvöldstund
með kappanum. Um 28 - 52 þúsund
kr. fyrir hópinn umrædda og svo má
fara í bíó á undan og eftir ef vill, því
kvöldið er langt.
Í Hörpu vakna bjartar vonir í til-
efni 100 ára afmælis Oddgeirs Krist-
jánssonar og hvern munar um 4.990
- 8.900 kr. fyrir það? Skitnar 20 til 32
þúsund krónur fyrir fjögurra manna
fjölskylduna. Tekur því varla að
nefna það.
x x x
Þetta er aðeins lítið sýnishorn afframboðinu og hver vill fá harð-
an pakka í jólagjöf þegar þennan
mjúka og ljúfa pakka má fá fyrir allt
að 240 þúsund krónur? Auk þess er
ekkert mál að leggja bílnum í bíla-
kjallara hússins fyrir aðeins 200 kr.
á klukkutímann og fari maður mín-
útu yfir tímann er sektin aðeins
5.000 krónur. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 lætur undan, 4
leyfi, 7 hreinsum, 8 kvendýr-
ið, 9 lamdi, 11 framkvæma,
13 svara, 14 glaður, 15 verk-
færis, 17 væna, 20 bók-
stafur, 22 klagar, 23 sárar,
24 gerði rólegan, 25 líffærið.
Lóðrétt | 1 djúp rödd, 2
óframfærni maðurinn, 3
raddar, 4 borg, 5 dáin, 6
snjóa, 10 messing, 12 keyra,
13 óhljóð, 15 bollok, 16
höggva smátt, 18 trylltar, 19
ákveð, 20 hrelli, 21 heiti.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 galsafull, 8 ástar, 9 loðin, 10 ill, 11 annar, 13 afann, 15
flakk, 18 fræða, 21 afl, 22 ragan, 23 Óðinn, 24 gamansaga.
Lóðrétt: 2 aftan, 3 sárir, 4 fella, 5 leðja, 6 fána, 7 unun, 12 ask,
14 fár, 15 ferð, 16 angra, 17 kanna, 18 flóns, 19 æfing, 20 asni.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Kóngsfórn svarað.
Norður
♠10743
♥62
♦ÁG8432
♣Á
Vestur Austur
♠G52 ♠9
♥D9753 ♥KG108
♦K5 ♦D96
♣764 ♣G10985
Suður
♠ÁKD86
♥Á4
♦107
♣KD32
Suður spilar 6♠.
Lew Stansby kom út með eitrað
hjarta gegn John Hurd í undanúrslita-
leik bandarísku sveitanna á HM. Hurd
drap á ♥Á, tók ♣Á, fór heim á tromp
og henti niður hjarta í hálauf. Hann
stakk svo hjarta, fór aftur heim á há-
tromp og stakk lauf. Nú var hann fros-
inn í borði með ♦ÁG sjötta og varð að
spila ás og meiri tígli. Stansby henti þá
♦K undir, sem varð til þess að makker
hans gat tekið á ♦D og uppfært slag á
trompgosann.
Hvað gat sagnhafi gert? Hann gat
lagt niður tígulásinn í þriðja slag. Ef
vestur heldur í tígulkónginn verður
ekkert af uppfærslunni á spaðagosa á
síðari stigum. En ef vestur af-
blokkerar? Ja, þá skiptir sagnhafi um
áætlun og fríar slag á tígul: aftrompar
vestur og spilar ♦10.
10. nóvember 1913
Alþingi samþykkti lög um
friðun fugla og eggja. Merk-
ustu nýmælin voru alfriðun
arna en það var í fyrsta sinn
sem örninn var friðaður í
nokkru landi.
10. nóvember 1967
Strákagöng við Siglufjörð
voru formlega tekin í notkun.
Þau voru þá lengstu veggöng-
in, um 800 metrar. Þar með
komst bærinn í vegasamband
allt árið. „Einangrun Siglu-
fjarðar rofin,“ sagði Morg-
unblaðið.
10. nóvember 1994
Eiður Smári Guðjohnsen gerði
samning við PSV Eindhoven í
Hollandi og varð þar með
yngsti íslenski atvinnumað-
urinn í knattspyrnu, rúmlega
16 ára.
10. nóvember 1999
Hiti mældist 22,7 stig á Dala-
tanga við Mjóafjörð. Þá var
slegið hitamet á landinu í þess-
um mánuði frá sama degi og
sama stað árið 1971.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist …
Gylfi Ægisson, tónlistarmaðurinn, er fæddur 10.
nóvember 1946 og er því 65 ára gamall í dag.
Gylfi er á kafi í undirbúningi fyrir tónleika sem
hann heldur í tilefni afmælisins í Salnum í Kópa-
vogi á laugardaginn. Þar mun hann flytja bestu
lögin sín í bland við gamanmál. „Ég verð þarna
einn á sviðinu en það koma leynigestir líka. Af-
mælisdagurinn fer að mestu í það að undirbúa tón-
leikana en ég og konan förum samt örugglega út
að borða um kvöldið,“ segir afmælisbarnið. Hann
segist yfirleitt ekki halda upp á afmælin sín enda
voðalega heimakær. Fjölskyldan hafi þó komið
saman þegar hann varð fimmtugur og þegar hann varð sextugur fór
hann í útsendingu á Rás 2. „Þá spiluðu Rúnar Þór vinur minn og Þórir
Baldurs og Tryggvi og fleiri undir og Guðni spjallaði við mig. Ég held
að það hafi verið spilað tvisvar í útvarpinu því það var hlegið svo mik-
ið,“ segir Gylfi og bætir við að afmælisdagurinn í dag yrði líklega
öðruvísi ef ekki væru tónleikar framundan.
Spurður hvort hann eigi von á pökkum er Gylfi viss um það. „Ég fæ
alltaf pakka en stærsti pakkinn var að frelsast frá víninu fyrir nærri
33 árum. Það var besta gjöfin af öllum gjöfum.“ ingveldur@mbl.is
Gylfi Ægisson er 65 ára
Heldur afmælistónleika
Flóðogfjara
10. nóvember Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 5.59 3,9 12.12 0,7 18.14 3,7 9.40 16.45
Ísafjörður 1.54 0,3 7.59 2,0 14.20 0,4 20.11 1,9 10.01 16.33
Siglufjörður 3.52 0,3 10.04 1,2 16.17 0,2 22.36 1,1 9.45 16.15
Djúpivogur 3.14 2,1 9.30 0,5 15.26 1,8 21.28 0,4 9.13 16.10
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Ekki láta sjálfsgagnrýni ná tökum á
þér, þó svo að orð séu látin falla sem staðfesta
þínar verstu grunsemdir um sjálfa/n þig.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þú ert eitthvað þung/ur núna svo
kannski er best að þú sért ekkert að reka horn-
in í aðra svona rétt á meðan. Skipuleggðu tíma
þinn eins vel og kostur er.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Það er gaman að gleðjast í góðra
vina hópi þegar aðstæður leyfa. Er einhver
samkeppni í gangi? Ógnar skynsemi þín yf-
irmanninum? Það gæti verið.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þetta er góður dagur til að skipuleggja
ferðalag með vini þínum. Þér hefur verið treyst
fyrir leyndarmáli og þú verður að standast all-
ar freistingar til að skýra frá því.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Það er óhjákvæmilegt að liðin atvik skjóti
upp kollinum, þegar þú þarft að fara í gegn um
pappíra frá fyrri tíð. Gefðu þér því tíma til þess
að ræða málin við rétta aðila.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Fólk virðist vilja fá svör frá þér sem þú
veist ekki hvernig á að gefa. Leyfðu þeim að
kynna hugmyndir sínar áður en þú leggur þín-
ar fram og talaðu svo fyrir málamiðlun.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Gerðu ráð fyrir auknu annríki á heimilinu á
næstu vikum. Þú þarft að halda vel á spöð-
unum til að ljúka við allt í tæka tíð.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Ekki er allt sem sýnist í sam-
skiptum við þína nánustu. Viljastyrkurinn er lít-
ill þessa dagana en ásetningurinn mikill.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Láttu ekki hanka þig á því að þú
hafir ekki unnið heimavinnuna þína. Gerðu
ekki ómannlegar kröfur til sjálfs/rar þín.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Það þarf mikinn kjark til þess að
viðurkenna að eitthvað sé ekki á manns færi.
Gefstu samt ekki upp, því fyrr eða síðar stend-
ur þú með pálmann í höndunum.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Þú fyllist ánægju yfir þeirri ást sem
umvefur þig dags daglega. Gleymdu því sem
ekki gekk upp hjá þér á síðasta ári.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þú heillast af einhverjum sem hentar
þér ekki vegna aldursmunar eða ólíks bak-
grunns. Brettu bara upp ermarnar og láttu
ekkert stöðva þig.
Stjörnuspá
Árni Gærdbo
klæðskerameist-
ari verður átt-
ræður 13. nóv-
ember
næstkomandi. Að
því tilefni verður
opið hús í sam-
komusalnum á
Skúlagötu 40 (gengið inn frá Bar-
ónsstíg), laugardaginn 12. nóv-
ember á milli kl. 17 og 19. Velunn-
arar velkomnir.
80 ára
1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rd2 dxe4 4. Rxe4
Rd7 5. Rf3 Rgf6 6. Rxf6+ Rxf6 7. Bg5
Be7 8. Bd3 c5 9. 0-0 0-0 10. dxc5 Da5
11. De2 Dxc5 12. Had1 h6 13. Bh4 Hd8
14. Re5 Hd5 15. Hfe1 Bd6 16. Bg3 b5
17. Bxb5 Bb7 18. Bd3 Hd8
Staðan kom upp í Evrópukeppni
taflfélaga sem lauk fyrir nokkru í Ro-
gaska Slatina í Slóveníu. Stórmeist-
arinn Zahar Efimenko (2.703) frá
Úkraínu hafði hvítt gegn Norðmann-
inum Fredrik Carl Ekeberg (2.270).
19. Rxf7! Bxg3 svartur hefði einnig
tapað eftir 19. …Kxf7 20. Dxe6+ Kf8
21. Bg6 Dc7 22. Bxd6 H5xd6 23. Hxd6
þar sem eftir 23. …Hxd6 mátar hvítur
eftir 24. De8+ Rxe8 25. Hxe8#. 20.
Rxd8 og svartur gafst upp enda taflið
tapað.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Hvítur á leik.
Nýbakaðir foreldrar?
Sendið mynd af barninu til birtingar
í Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda
mynd af barninu með upplýsingum
um fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig
má senda tölvupóst á barn@mbl.is