Morgunblaðið - 10.11.2011, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 10.11.2011, Qupperneq 38
38 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. NÓVEMBER 2011 Það tók mig dálítið langan tíma að losna út úr þessum karli. 40 » Árni Matthíasson arnim@mbl.is Næstkomandi laugardag opnar Sig- tryggur Bjarni Baldvinsson sýningu í Listasafni ASÍ sem hann nefnir Móðuna gráu – Myndir af Jökulsá á Fjöllum. Á sýningunni eru olíu- málverk, vatnslitamyndir og tölvu- unnar ljósmyndir af Jökulsá á Fjöll- um. Sigtryggur hefur aðallega málað straumvatn undanfarin ár og segir að sér hafi þótt tími til kominn að takast á við þessa stóru og miklu á „sem ég hef verið skíthræddur við frá því ég man eftir mér“, segir hann. Hann segist þó ekki vera bú- inn að fanga Jökulsá í myndum, réttast væri að nefna sýninguna fyrsta hluta, annað væri oflæti. Á sýningunni eru myndir unnar með þrennskonar tækni. „Meg- inþráður í verkum mínum hefur verið olíuverk, en svo hef ég líka unnið með vatnsliti, brýt ána upp með þeim og þétti litina, kemst næst því að finna hvernig áin hreyf- ir sig, kafa í þessa grámósku og finn litina sem eru í henni. Svo er ég með tölvuunnar ljósmyndir líka þar sem ég spegla iðurnar og straumköstin og ána og uppsker merkilega hluti því við það birtast náttúruvætti, allskonar furðulega fí- gúrur. Í seríunni, sem ég kalla „Jökulsárára“, Það er skemmtilegt hvernig það slær hinu náttúrulega annarsvegar og hinu yfirnáttúrlega hinsvegar; myndir af þessari gráu þungu iðu og síðan greinilegar and- litsmyndir af einhverskonar fyr- irbærum. Öðrum þræði er þetta fyndið og skemmtilegt en á hinn bóginn er þetta tilraun til að mynd- gera þessa náttúrutrú sem er svo djúp í lunganum af Íslendingum, eitthvað sem er okkur sameiginlegt. Það má segja að þetta sé tillaga að nýjum náttúruvættum, nú er góður séns að ná myndum af þessum kvikindum.“ Tillaga að nýjum náttúru- vættum í Móðunni gráu  Sigtryggur Bjarni Baldvinsson glímir við Jökulsá á Fjöllum Jökulsárárar Í iðum og straumköst- um birtast náttúruvætti – ein mynda Sigtryggs Bjarna Baldvinssonar sem sýndar verða í Listasafni ASÍ. Íslenska óperan heimsækir Hof á Akureyri í kvöld kl. 20.00 og flytur þá tónlist úr óperum á borð við Carmen, Gianni Schicchi, La trav- iata, Kátu ekkjuna, Rakarann í Se- villa og Perlukafarana í sviðsettri söngdagskrá. Í dagskránni, sem er eftir Ágústu Skúladóttur, er sagt frá heimilisleysingjum sem leita sér að mat í ruslatunnum en rek- ast þá á perlur óperubók- menntanna. Söngvarar í sýningunni eru Ágúst Ólafsson barítón, Gissur Páll Gissurarson tenór, Hulda Björk Garðarsdóttir sópran og Valgerður Guðnadóttir sópran. Antonía He- vesi leikur undir á píanó, leikstjóri er Ágústa Skúladóttir, sviðs- umgjörð annast Guðrún Öyahals, búningar eru í umsjá Katrínar Þorvaldsdóttur og Magnús Arnar Sigurðarson sér um lýsingu Íslenska óperan var síðast á ferð á Akureyri í vor með Svanasöng, þar sem einum af ljóðaflokkum Schuberts var fléttað saman við nútímadans og fluttu Ágúst Ólafs- son barítónsöngvari og Gerrit Schuil píanóleikari verkið með full- tingi Láru Stefánsdóttur dansara. Íslenska óperan Frá sýningu. Perluportið flutt í Hofi  Íslenska óperan heldur til Akureyrar Á morgun hefjast svonefndar Föstudagsfreistingar Tónlist- arfélags Akureyrar í samstarfi við Menningarmiðstöðina í Listagili og Goya Tapas bar. Um er að ræða hádegistón- leika sem fara fram í Ketilhús- inu í Listagilinu fyrsta föstu- dag í hverjum mánuði þar sem boðið er upp á súpu, brauð og kaffi á meðan hlýtt er á tónlist. Á fyrstu Föstudagsfreisting- unni, sem hefst kl. 12 á morgun, syngur Einar Clausen tenór sönglög eftir Sigfús Halldórsson í bland við ítölsk sönglög við undirleik Daníels Þor- steinssonar píanóleikara. Tónlist Föstudagsfreist- ingar í Gilinu Einar Clausen Á laugardagskvöld hyggjast nokkur skáld og aðrir lista- menn frá Akureyri, Siglufirði, Reykjavík og Belgíu leiða sam- an vindáttir norðurs og suðurs og kalla fram hrinu ljóða, tóna og myndverka. Uppákoman verður í Populus Tremula og hefst kl. 21. Fram koma: Ás- geir H. Ingólfsson, Bergþóra Snæbjörnsdóttir, Bragi Páll Sigurðarson, Gréta Kristín Ómarsdóttir, Hekla Björt Helgadóttir, Jón Bjarki Magnússon, Jón Örn Loðmfjörð, Nicolas Kunysz, Sindri Freyr Steinsson, Solveig Pálsdóttir og Þor- gils Gíslason. Aðgangur ókeypis. Ljóðtónmyndlist Vindáttir í Popu- lus Tremula Populus Tremula Þýska djasssöngkonan Winnie Brückner er nú stödd hér á landi vegna samstarfs hennar við myndlistarkonuna Kristínu Gunnlaugsdóttur. Hún er stofnandi kvartettsins ninwie og hefur unnið til margra við- urkenninga og komið fram víðsvegar í Evrópu. Sönghóp- urinn flytur a cappella tónlist en Winnie heldur einnig tón- leika ein og hefur sérhæft sig í að nota rödd sína í bland við rafeindatækni þar sem hún býr til eigin margradda flutning. Hún heldur tónleika í Fríkirkjunni næstkomandi sunnudag kl. 17. Tónlist Winnie Brückner í Fríkirkjunni Winnie Brückner Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Þetta verk fjallar um það hvernig líf okkar allra tengist á tímum síauk- innar hnattvæðingar,“ segir Kristín Eysteinsdóttir sem leikstýrir Gyllta drekanum eftir Roland Schimmel- pfennig í þýðingu Hafliða Arngríms- sonar sem Borgarleikhúsið frum- sýnir annað kvöld kl. 20.00. Að sögn Kristínar hverfist verkið í um íbúa í húsi einu þar sem rekinn er kínverskur veitingastaður sem nefnist Gyllti drekinn. Þar fær starfsmaður, sem er ólöglegur inn- flytjandi, heiftarlega tannpínu og í kjölfarið fer af stað tilviljunarkennd en jafnframt spennandi atburðarás. Brechtísk nálgun höfundar „Þetta er mjög spennandi verk og margverðlaunað, var t.d. valið besta nýja leikritið í Þýskalandi á síðasta ári,“ segir Kristín og tekur fram að sérlega skemmtilegt sé að vinna með þá brechtísku nálgun sem skrifuð sé inn í verkið. „Höfundur ögrar leik- húsforminu og teygir það eins langt og mögulegt er. Þarna eru 17 hlut- verk í höndum fimm leikara, en þeir leika aldrei rétt kyn, aldur eða kyn- þátt, heldur þjóna hlutverki sögu- manna sem stíga inn og út úr kar- akter án þess að notast við einhver sérstök gervi,“ segir Kristín. Tekur hún fram að með þessari aðferð sé höfundur líka að skoða samspil kynjahlutverka og valds og ögra við- teknum hugmyndum. „Þetta krefst því mjög mikils af leikurunum tæknilega séð þar sem þeir þurfa að búa yfir mikilli snerpu í tempóskipt- ingum á sama tíma og persónusköp- un þarf að byggjast á fullkominni einlægni,“ segir Kristín og bendir á að í aðalatriðum snúist sýningin um hluttekningu og samsömun, þ.e. að jafnt leikarar sem og áhorfendur geti sett sig í spor leikpersónanna. Aðspurð segist Kristín myndu lýsa verkinu sem tragíkómísku. „Þetta er vandasamt umfjöllunar- efni, þ.e. staða innflytjenda og hvernig við tengjumst öll þó við vilj- um ekki horfast í augu við það. Höf- undinum tekst með þessari skemmtilegu nálgunaraðferð og formtilraunum sínum að fanga áhorfendur. Þar sem gleðin og sorg- in eru aðeins tvær hliðar á sama peningi, þá eru áhorfendur mót- tækilegri fyrir sorginni þegar þeir eru fyrst búnir að opna hjarta sitt og tengja við það sem gerist á svið- inu.“ Ögrar leikhúsforminu með skemmtilegum hætti  Þýskt verðlauna- leikrit frumsýnt í Borgarleikhúsinu Ljósmynd/Grímur Bjarnason Handagangur Hanna María, Sigurður, Halldór, Dóra og Jörundur. Kristín Eysteinsdóttir leikstýrir Gyllta drekanum. Snorri Freyr Hilmarsson hannar leikmynd og búninga, Kjartan Þórisson lýs- ingu og Árdís Bjarnþórsdóttir leikgervi. Tónlist og hljóðmynd annast Björn Kristjánsson. Leik- arar eru Dóra Jóhannsdóttir, Hanna María Karlsdóttir, Hall- dór Gylfason, Jörundur Ragn- arsson og Sigurður Skúlason. Gyllti drekinn LISTRÆNIR STJÓRNENDUR Landgræðslan hefur gefið út bók- ina Healing the land eftir Roger Crofts sem fjallar um aldalangt landgræðslustarf á Íslandi. Í tilefni af útgáfunni efna Landgræðslan og Landvernd til hádegisverð- arfundar um alþjóðavæðingu land- græðslustarfsins á Nauthóli á föstudag kl. 12. Þar munu bók- arhöfundur og fulltrúar frá Land- græðslunni og Landvernd fjalla um landgræðslustarfið í alþjóðlegu samhengi. Rogert Crofts er fyrrverandi framkvæmdastjóri Scottish Nat- ural Heritage en við vinnslu bók- arinnar var stuðst við bók Friðriks Olgeirssonar, Sáðmenn sandanna. Crofts hefur ferðast mikið um Ís- land og kynnt sér vel íslensk um- hverfismál og haldið fyrirlestra. Hann hefur unnið með Land- græðslu ríkisins, Náttúruvernd ríkisins (nú Umhverfisstofnun), Landvernd og umhverfisráðuneyt- inu og veitt margvíslega ráðgjöf á sviði umhverfismála. Svandís Svavarsdóttir umhverf- isráðherra veitir Landgræðslu- verðlaunin 2011 í Gunnarsholti í dag og við það tækifæri verður henni afhent fyrsta eintakið af bókinni. Landgræðsla í al- þjóðlegu samhengi  Hádegisverðarfundur á Nauthóli Landgræðsla Roger Crofts, höf- undur bókarinnar Healing the land.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.