Morgunblaðið - 10.11.2011, Page 44
FIMMTUDAGUR 10. NÓVEMBER 314. DAGUR ÁRSINS 2011
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550
1. Stækkar brjóstin…
2. Gæti þetta aldrei án kókaíns
3. Leituðu að slysi í nótt
4. Eiga von á barni númer 20…
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Gamanmyndin Okkar eigin Osló
verður opnunarmynd alþjóðlegu kvik-
myndahátíðarinnar í Mannheim-
Heidelberg í Þýskalandi og hefur ver-
ið valin í aðalkeppni hátíðarinnar sem
hefst í dag og lýkur 20. nóvember.
Okkar eigin Osló opn-
ar hátíð í Mannheim
Önnur bók með
myndskreytingum
Hugleiks Dags-
sonar við ýmsar
dægurlagaperlur
er komin út og
nefnist hún Po-
pular Hits II. Í
bókinni gefur
Hugleikur ímynd-
unaraflinu og kolsvartri kímnigáfunni
lausan tauminn og má m.a. finna
teikningar við lög á borð við „Blowing
in the Wind“ og „Heartbreak Hotel“.
Dægurlagaperlur og
sótsvört kímnigáfa
Kvikmyndin Sumarlandið eftir
Grím Hákonarson var frumsýnd í Nor-
egi um sl. helgi og hefur hún fengið
jákvæða gagnrýni í norskum fjöl-
miðlum. Á vef norska
ríkisútvarpsins segir
m.a. að hún sé
ferskur blær frá
sögueyjunni og á
vefnum Natt&dag
fær myndin
fimm stjörnur
af sex mögu-
legum.
Sumarlandi Gríms vel
tekið í Noregi
Á föstudag Sunnan 5-10 m/s, en 8-13 vestast. Austlægari síðdeg-
is. Bjartviðri N- og A-lands, annars skýjað og stöku skúrir en rign-
ing S-til um kvöldið. Hiti 0 til 7 stig.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG 10-18 m/s með morgninum og rigning, tals-
verð um tíma SA-til. Suðaustan 8-15 og þurrt að kalla NA-til. Sunn-
an og suðvestan 8-15 í kvöld. Hiti 5 til 10 stig.
VEÐUR
„Ég er mjög ánægður með
þetta og hugsa ekki um að
fara eitthvað annað. Ég er
hjá toppliði,“ sagði Arnór
Atlason, landsliðsmaður í
handknattleik sem fram-
lengt hefur samning sinn
við danska stórliðið AG
Köbenhavn til ársins 2015.
Hann hefur verið fyrirliði
liðsins frá því að hann gekk
til liðs við það vorið 2010.
AG er bæði danskur meist-
ari og bikarmeistari. »1
Arnór framlengir
samning við AG
„Það liggur ljóst fyrir að vinstri
hornamaðurinn Henrik Lundström
heldur heim til Svíþjóðar eftir tíma-
bilið og við komum til með að fá leik-
mann í hans stað,“ segir Alfreð Gísla-
son, þjálfari þýska
handknattleiksliðsins Kiel,
sem vill sem minnst segja
um hugsanlega komu lands-
liðsmannsins, Guðjóns
Vals Sigurðssonar, til
félagsins. »3
Alfreð er að leita að
hornamanni
Tvenn óvænt úrslit voru í 6. umferð
úrvalsdeildar kvenna, Iceland Ex-
press-deildinni, í gærkvöldi. Annars
vegar unnu Haukar lið KR sem var
taplaust í deildinni fyrir leikina í gær.
Hins vegar lagði Hamar liðsmenn
Vals á Hlíðarenda en Hamarsliðið fór
afleitlega af stað í deildinni og tapaði
fyrstu fjórum leikjum sínum. Njarðvík
og Keflavík unnu sína leiki. »2
Tvenn óvænt úrslit í
kvennakörfunni
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Nóvember hefur verið fremur ljúfur
það sem af er, hitamet hafa verið sett
á nokkrum stöðum en auðvitað hafa
haustlægðirnar látið á sér kræla.
Sigurður Þór Guðjónsson er að öðr-
um ólöstuðum fremsti veðuráhuga-
maður á landinu og heldur úti vin-
sælli bloggsíðu, Allra veðra von, á
Moggablogginu. Þar kemur fram að
á elstu veðurstöð landsins, Stykk-
ishólmi, hafi hitinn nýlega farið í 12,8
stig og ekki fyrr mælst þar svo hár í
nóvember eða í um 150 ár. Og á
Skjaldþingsstöðum í Vopnafirði hafi
hann farið í 20,6 stig, nýtt nóv-
embermet þar á bæ.
Sigurður segir á blogginu að eftir
þessi hitamet verði hann að éta ofan í
sig „fyrri digurbarkalegar yfirlýs-
ingar um almenn veðurómerkileg-
heit“ nóvembermánaðar.
Á hverjum degi frá 1967
„Allir veðurdagar eru auðvitað
merkilegir en í nóvember er ekki
kominn almennilegur vetur og í
mars ekki farið að vora, þetta eru
svona millimánuðir,“ segir Sigurður
Þór. „Ég fékk áhuga á veðurfræði
1967 þegar ég var tvítugur. Sjón-
varpið var að byrja með veðurfréttir,
þar voru notuð veðurkort. Þetta hef-
ur kannski síast inn í mann og ég hef
fylgst með veðrinu á hverjum ein-
asta degi síðan þá.
Eiginlega er það mér ráðgáta að
ég skyldi fá þennan mikla veð-
uráhuga og að hann skuli hafa enst
svona lengi! En netið hefur
líka gert allt auðveldara og
nú getur maður fylgst með
veðrinu um allan heim á
rauntíma.“
Þótt Sigurður bjargi
sér á netinu segist hann
ekki hafa fundið gott for-
rit til að birta línurit og
aðra grafík á blogginu
og vonar að einhver leiðbeini sér.
Hann byrjaði snemma að viða að
sér fróðleik, notaði þá m.a. mán-
aðarrit Veðurstofu Íslands, Veðrátt-
una, sem komið hefur út frá 1920 en
þar á undan birti danska veðurstofan
upplýsingar alveg frá 1873. Sigurður
segist hafa sökkt sér niður í þessi
gömlu rit á Landsbókasafninu í heil-
an vetur og skrifað ýmislegt hjá sér.
Einnig las hann bækur um veð-
urfræði eftir Jón Eyþórsson og
Markús Á. Einarsson sem skrifaði
að sögn Sigurðar einu bókina sem
gefin hefur verið út um almennt veð-
urfar hérlendis.
„Ég man enn hvað ég varð glaður
þegar Markús, sem ég þekkti þá
ekki neitt, sendi mér rit sem hann
hafði skrifað um hitafar á landinu.“
Sumir mánuðir eru hvorki né
Sigurður Þór
Guðjónsson fylgist
vel með veðrinu
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Vetur? Blíðviðri var á Akureyri í gær. Anika Snædís fór að andapollinum með móður sinni og gaf öndunum brauð.
Sigurður Þór hefur mörg önnur
áhugamál en veðrið eins og sést á
bloggsíðunni, einkum bókmenntir,
tónlist, sagnfræði, heimspeki og
vísindi. Hann lærði á sínum tíma
nokkuð í bókmenntum og tónlist
og var tónlistargagnrýnandi á
blöðum í tvo áratugi, einnig hefur
hann kynnt sér margvíslegan
þjóðlegan fróðleik og birtir
sumt á síðunni sinni. Nefna
má frásögn af athafna-
sömu þjófagengi á Suðurlandi
sem var handsamað seint á 19.
öld. Og ekki má gleyma fréttum af
kettinum hans sem ber nafnið
Mali.
Sigurður Þór er ánægður með
áhuga Morgunblaðsins á veð-
urfari. „Mönnum sem eru með
dellu fyrir einhverju finnst gaman
þegar einhver sýnir dellunni
þeirra áhuga,“ segir hann hlæj-
andi.
„Menn sem eru með dellu …“
MÖRG OG FJÖLBREYTILEG ÁHUGAMÁL AUK VEÐURSINS
Sigurður Þór Guðjónsson
rithöfundur.