Morgunblaðið - 01.02.2012, Page 2
Morgunblaðið/Eggert
Lögreglan Búnaður frá henni
fannst í heimahúsi í höfuðborginni.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
fann á mánudag vopn og búnað frá
lögreglu á heimili konu á þrítugs-
aldri sem tengist vélhjólasamtök-
unum Vítisenglum. Konan hafði
verið stöðvuð í bíl sínum þá um
daginn.
Grunur lék á að hún væri undir
áhrifum vímuefna. Í bíl hennar
fundust um tvö hundruð grömm af
hvítu efni sem talið er að sé amfeta-
mín. Telur lögregla að konan hafi
ætlað að selja efnið.
Á heimili hennar fundust bæði
hnífar og hnúajárn en einnig bún-
aður frá lögreglunni. Friðrik Smári
Björgvinsson, yfirlögregluþjónn hjá
lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu,
vill ekki gefa upp hvers kyns bún-
aður þetta hafi verið en staðfesti þó
í samtali við Morgunblaðið í gær-
kvöldi að ekki hefði verið um vopn
að ræða. Verið væri að rannsaka
hvernig búnaðurinn komst í hendur
konunnar. Að sögn Friðriks Smára
telst konan ekki til góðkunningja
lögreglunnar.
kjartan@mbl.is
Búnaður frá lög-
reglu í heimahúsi
Fannst við húsleit hjá Vítisengli
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. FEBRÚAR 2012
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is
Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Víðir Sigurðsson,
vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Marta María Jónasdóttir fréttastjóri dægurmála martamaria@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
Gerðar hafa verið breytingar á rit-
stjórn og fréttastjórn Morgunblaðs-
ins og mbl.is í því skyni að skerpa
verklag og efla fréttaþjónustu
beggja miðla. Guðrún Hálfdán-
ardóttir og Sunna Ósk Logadóttir
hafa tekið við fréttastjórn á mbl.is og
Guðmundur Sv. Hermannsson er
orðinn fréttastjóri á Morgunblaðinu
ásamt Sigtryggi Sigtryggssyni sem
hefur stýrt fréttadeild Morgunblaðs-
ins í fjölda ára.
Guðrún hefur starfað á Morg-
unblaðinu frá árinu 1996 og síðustu
ár verið varafréttastjóri mbl.is.
Sunna Ósk hefur unnið á Morg-
unblaðinu frá árinu 1999 og verið
fréttastjóri frá 2008. Guðmundur
hefur starfað á Morgunblaðinu frá
árinu 1986 og verið fréttastjóri á
mbl.is frá upphafi eða árinu 1998.
Sigtryggur hóf störf á blaðinu árið
1974 og hefur verið fréttastjóri frá
1981.
Góð samskipti við lesendur
Styrkur fréttaþjónustu Morg-
unblaðsins og mbl.is byggist á því að
vera í mjög góðu sambandi við lands-
menn og eiga þau samskipti stærst-
an þátt í að þessir miðlar hafa hvor á
sínu sviði og sameiginlega veitt öfl-
ugustu fréttaþjónustu landsins. Les-
endur eru hvattir til að senda inn
ábendingar um hvaðeina sem þeir
telja að kunni að vera fréttnæmt eða
áhugavert. Netfang ritstjórnar
Morgunblaðsins er ritstjorn@mbl.is
og netfang ritstjórnar mbl.is er net-
frett@mbl.is. Sími fréttastjóra
Morgunblaðsins er 569-1317 og sími
fréttastjóra mbl.is er 569-1235.
Enn öflugri fréttaþjónusta
Morgunblaðsins og mbl.is
Guðrún
Hálfdánardóttir
Sigtryggur
Sigtryggsson
Guðmundur
Hermannsson
Sunna Ósk
Logadóttir
Beðið eftir Persónuvernd
Landlæknir vonast til að fá upplýsingar frá lýtalæknum um PIP-brjóstapúðana
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Geir Gunnlaugsson landlæknir bíður eftir áliti
Persónuverndar um það hvort lýtalæknum beri
að afhenda upplýsingar um þær 440 konur sem
fengið hafa ígrædda frönsku PIP-brjóstapúð-
ana umdeildu á undanförnum árum. Telja
læknarnir sig vera að brjóta lög um persónu-
vernd láti þeir umbeðnar upplýsingar í té, og
óskuðu af þeim sökum eftir áliti frá Persónu-
vernd.
Aðeins tveir læknar hafa sent landlækni um-
beðin gögn og í öðru tilvikinu reyndist um
ófullnægjandi gögn að ræða. Í hinu var að-
allega um að ræða upplýsingar um konur sem
höfðu farið í brjóstastækkanir á löngu tímabili
og langt frá því allar fengið umrædda púða.
„Við þurfum að fá mun fleiri upplýsingar,“ seg-
ir Geir og vonast til að álit Persónuverndar
liggi fyrir í næstu viku. Í framhaldinu verði
teknar ákvarðanir um næstu skref. Markmiðið
sé að safna þeim saman í „sátt og samlyndi við
alla“, eins og hann orðar það.
„Þetta er sá hluti heilbrigðisþjónustunnar
sem í langan tíma hefur verið erfitt að ná utan
um. Við erum að vinna í því að gera þetta þann-
ig að það styrki okkur til lengri tíma litið,“ seg-
ir landlæknir.
Ómskoðun hjá konum með PIP-púða hér á
landi hefst á morgun hjá leitarstöðvum Krabba-
meinsfélagsins í Reykjavík og á Akureyri. Nú
þegar hafa um 160 konur fengið bókaðan tíma
og fleiri hafa haft samband. Fengu konurnar
bréf frá velferðarráðuneytinu og viðkomandi
lækni, með boð um að þiggja ómskoðun og hafa
samband við Krabbameinsfélagið.
Skoðunin fer fram tvo daga í viku og gæti
tekið allt að fjóra mánuði að ljúka verkefninu.
Ragnheiður Haraldsdóttir, forstjóri Krabba-
meinsfélagsins, segir að ómskoðunin muni ekki
trufla aðra starfsemi leitarstöðvanna á nokkurn
hátt, eftir sem áður verði hægt að panta tíma í
krabbameinsleit.
Sílíkon Ómskoðun hjá konunum hefst á morgun.
„Það var haldinn fjögurra tíma fund-
ur þar sem oddvitar Samfylkingar
og VG hittu oddvita Sjálfstæðis-
flokks og flokksbróður hans að máli.
Það er samstaða um mörg mál en
ágreiningur um önnur. Nú þarf að
fara í vinnu við að jafna þann ágrein-
ing. Það ætti að skýrast á miðviku-
dag hvort úr samstarfi verður eða
ekki,“ sagði Hafsteinn Karlsson, 2. á
lista Samfylkingar í Kópavogi, um
stöðu meirihlutaviðræðna þar í bæ.
„Við gerum ráð fyrir að það verði
fundur á morgun [í dag] þar sem far-
ið verður betur ofan í málin, einkum
þau þar sem eitthvað ber í milli og
kannað hvernig leysa má úr því.“
Framhald
viðræðna
ræðst í dag
Fundað í Kópavogi
Umhleypingar síðustu daga hafa sums staðar skilið eftir sig
nýtt landslag í höfuðborginni eins og þetta snjófjall í Árbæn-
um í Reykjavı́k ber vitni um.
Vetur konungur hefur haldið borginni í snjó- og klakabönd-
um frá því í lok nóvember en um helgina fór hann hins vegar
að slaka á klónni með mikilli hláku.
Ekkert lát verður á umhleypingunum næstu daga og því er
líklegt að snjóhólar og hæðir sem þessar muni smám saman
hverfa, vegfarendum eflaust til mikils léttis.
Sérstaklega er spáð mikilli vætu á Suðausturlandi í dag.
Varar Veðurstofan við því að gera megi ráð fyrir vatnavöxt-
um frá Eyjafjöllum til Austfjarða af þeim sökum.
Snjófjall í Árbænum eftir vætutíð og umhleypingar
Morgunblaðið/RAX
Áfram spáð rigningu á landinu og varað við vatnavöxtum á Suðausturlandi