Morgunblaðið - 01.02.2012, Síða 14

Morgunblaðið - 01.02.2012, Síða 14
Miðvikudaginn 1. febrúar kl. 20 verður haldinn fræðslufundur um Sigurð Þór- arinsson jarð- fræðing í Volc- ano House, Tryggvagötu 11. Sigurður Steinþórsson jarðfræðipró- fessor og samverkamaður Sig- urðar Þórarinssonar til margra ára mun fjalla um vísindastörf hans og rannsóknir, einkum á sviði eldfjallafræði og jöklarann- sókna. Sigurður Þórarinsson hefði orð- ið 100 ára hinn 8. janúar síðastlið- inn hefði hann lifað. Sigurður Þórarinsson Fræðslufundur um störf Sigurðar 14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. FEBRÚAR 2012 –– Meira fyrir lesendur PANTAÐU AUGLÝSINGAPLÁSS . MEÐAL EFNIS: Viðtöl við fyrirlesara ráðstefnunnar. Viðtal við formann Ímark. Saga og þróun auglýsinga hér á landi. Neytendur og auglýsingar. Nám í markaðsfræði. Góð ráð fyrir markaðsfólk Tilnefningar til verðlauna í ár - Hverjir keppa um Lúðurinn? Fyrri sigurverarar íslensku markaðsverðlaunanna. Ásamt fullt af öðru spennandi efni. ÍMARK íslenski markaðsdagurinn Morgunblaðið gefur út ÍMARK sérblað fimmtudainn 23.febrúar og er tileinkað Íslenska markaðsdeginum sem ÍMARK stendur fyrir en hann verður haldinn hátíðlegur 24. febrúar.nk. PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA: Fyrir kl. 16, föstudaginn 17. feb. Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: S É R B L A Ð Í tilefni af fjögurra ára afmæli Holl- vinasamtaka Sjúkrahússins á Seyðisfirði(HSSS) færðu félagar úr samtökunum og Lionsklúbbi Seyðis- fjarðar sjúkrahúsinu góðar gjafir. Um er að ræða sjúklingalyftara, ungbarnavog, blóðþrýstingsmæli og súrefnismettunarmæli. Verð- mæti gjafanna er um 850.000 krón- ur. Þorvaldur Jóhannsson, formaður HSSS, afhenti gjafirnar og boðaði frekari stuðning við starfsemina. Rúnar Reynisson, yfirlæknir Sjúkrahússins, og Þórhallur Harðarson, deildarstjóri HSA, þökkuðu fyrir stuðninginn. Fram kemur í tilkynningu að sjúkrahúsið sé fjölmennasti vinnu- staður á Seyðisfirði sem hafi þurft að berjast við mikla fólksfækkun síðustu ár, töpuð fyrirtæki og at- vinnutækifæri í heimabyggð. HSSS hafi sérstaklega lagt áherslu á, með gjöfum sínum, að bæta aðstöðu og búnað fyrir starfs- fólk og sjúklinga. Því muni verða haldið áfram. Sjúkrahúsið á Seyðisfirði fékk góðar gjafir Framadagar háskólanna verða haldnir í dag, miðvikudaginn 1. febrúar, í Sólinni í Háskólanum í Reykjavík á milli klukkan 11 og 16. Stúdentasamtökin AIESEC standa að Framadögum og er þetta í 18. skipti sem þeir eru haldnir hér á landi. Framadagar eru ætlaðir há- skólamenntuðum, útskrifuðum sem og núverandi nemendum, þó að aðrir séu auðvitað velkomnir á staðinn. Á Framadögum kynna 35 fyr- irtæki, starfsemi sína, fjöldi örfyr- irlestra verður í boði og árleg spurningakeppni á milli kennara HÍ og HR verður á sínum stað. Markmið Framadaga er að há- skólanemar geti kynnst fyrirtækj- unum og kannað sína möguleika varðandi sumarstörf, framtíð- arstörf eða hvort í boði sé að vinna verkefni fyrir fyrirtækin. Einnig að fyrirtækin hafi möguleika á að hitta tilvonandi framtíðarstarfs- menn. Í ár verður viðburðurinn enn stærri en áður. Strætisvagnar ganga milli að- albyggingar HÍ og HR frá 10:45- 16:15 fólki að kostnaðarlausu. Framadagar Aðsókn hefur ætíð verið góð að viðburðinum. Í fyrra komu 2000 gestir. Árlegir Framadagar verða í HR í dag SAMFOK hefur hleypt af stokkunum verkefninu ,,For- eldrar gegn einelti.“ Markmið verkefnisins er að vekja foreldra til umhugsunar um með hvaða hætti þeir geta komið að fyrirbyggjandi aðgerðum gegn einelti í skólum barna sinna. Foreldrar geta haft áhrif á mörgum sviðum innan skólasamfélagsins í góðri samvinnu við skóla- stjórnendur. Foreldrafélög í grunnskólum Reykjavíkur geta sótt um þátttöku í verkefninu sér að kostn- aðarlausu. Þegar hafa sjö skólar skráð sig til leiks en nokkrar dagsetningar eru enn lausar. Umsóknir og fyrirspurnir sendist á samfok@samfok.is. Umsjónarmenn verkefnsins eru Bryndís Jónsdóttir, framkvæmdastjóri SAMFOK og Vanda Sigurgeirsdóttir, lektor við menntavísindasvið Háskóla Íslands. Vanda kemur nú til liðs við SAMFOK en hún hefur mikla reynslu úr starfi sínu með börnum og unglingum í íþróttahreyfingunni. Verkefnið „Foreldrar gegn einelti“ hafið Vanda Sigurgeirsdóttir Málstofa í stjórnskipunarrétti verð- ur haldin í dag, 1. febrúar, kl. 12,15 í stofu 101 í Lögbergi. Frummæl- endur verða Salvör Nordal for- stöðumaður Siðfræðistofnunar HÍ og Birgir Hermannsson stjórnmála- fræðingur. Fundarstjóri verður Björg Thorarensen prófessor. Fjallað verður um áhrif lýðræð- islegrar umræðu á mótun íslensku stjórnarskrárinnar í gegnum tíðina og vinnu stjórnlagaráðs við gerð frumvarps að nýrri stjórnarskrá. Þá verða ræddar hugmyndir um hlutverk stjórnarskrár og að hvaða marki er hægt að festa í hana leik- reglur stjórnmálanna, siðferði í stjórnmálum og samskipti þings og ríkisstjórnar, segir í tilkynningu. Að loknum erindum verða fyrir- spurnir og umræður. Allir eru vel- komnir. Stjórnarskráin rædd STUTT Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Farvegir ánna undir Eyjafjöllum eru sléttfullir af ösku og aur og árnar flæmast út á ræktunarlönd bænda. „Túnin blotna og verða að hálfgerðu mýrlendi,“ segir Sveinn Runólfsson landgræðslustjóri. Mikið efni berst með ánum á áhrifasvæði eldgossins í Eyjafjalla- jökli og er ekki séð fyrir endann á því. Byggðir hafa verið varnargarðar til að beina vatninu áfram og stöðugt hefur verið unnið að uppgreftri úr Svaðbælisá svo hún haldist undir brúnni og rjúfi ekki hringveginn. Askan rífur með sér jarðveg „Vandamálin stafa af öskunni í fjallshlíðunum. Hún er frekar gróf nálægt eldstöðinni. Þegar hún renn- ur niður lítt grónar heiðarnar tekur hún með sér mikinn jarðveg sem er að fylla alla árfarvegi,“ segir Sveinn Runólfsson landgræðslustjóri. Landgræðslan og Vegagerðin vinna að vörnum og hafa fengið sérstakar fjárveitingar til þess. Sveinn segir að vandamálin séu í öllum ám á svæðinu en sýnu alvar- legust undir Eyjafjöllum. „Þetta var slæmt fyrir gos en núna eru allar far- vegir sléttfullir. Vatnið flæmist út á ræktunarlönd bænda og er að breyta þeim í hálfgert mýrlendi. Túnin blotna og grasið hættir að spretta. Þetta er alvarleg staða hjá bænd- um,“ segir Sveinn. Ríkissjóður hefur keypt jörðina Önundarhorn sem varð einna verst úti í flóðunum eftir gosið. Sveinn segir að Vegagerðin sé að hanna skurð sem grafinn verður beint frá brúnni yfir Svaðbælisá, framhjá bænum og út í farveginn aftur. Það er gert til að ná meira rennsli á vatn- ið. Búskap hefur verið hætt á Ön- undarhorni. „Þessi framkvæmd sker jörðina ansi illa í sundur en þegar fram líða stundir verður hægt að hefja aftur búskap,“ segir Sveinn. Brýnt að grafa rásir Enn er mikil aska á heiðunum. „Vísindamenn okkar og sérfræðing- ar búast ekki við aurflóðum heldur að efnið berist stöðugt fram með án- um. Því er brýnt að grafa rásir í þessa árfarvegi til að lækka í þeim og varna því að meira tjón verði á gróð- urlendi,“ segir Sveinn en tekur fram að hús séu hvergi talin í hættu. Gríðarlegu magni af sandi hefur verið mokað upp úr ánum. Sveinn áætlar að það skipti hundruðum þús- unda rúmmetra, að minnsta kosti. Sandurinn hefur verið fluttur í burtu eða sléttaður út á staðnum. Sum svæðin hafa verið grædd upp og stefnt að því að gera þau aftur að túnum. Túnin blotna og verða að mýrlendi Ljósmynd/Sigurjón Einarsson Hringvegur Svaðbælisá hefur sleikt brúarbitana á brúnni oft í vetur.  Árnar undir Eyjafjöllum slétt- fullar af ösku Eldgos » Mikið öskufall varð í eldgos- inu sem hófst í Eyjafjallajökli aðfaranótt 14. apríl 2010. » Íbúar á svæðinu glíma enn við afleiðingar þess.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.