Morgunblaðið - 01.02.2012, Page 30
Morgunblaðið/Skapti
Söngvarinn Kristján Jóhannsson er
á leið til Stokkhólms að kenna.
Kristján Jóhannsson óperusöngvari
hefur síðustu misserin sagt íslensk-
um söngvurum til og miðlað þeim af
reynslu sinni við góðan orðstír. Nú
hefur Óperuskólinn við Drottn-
ingholm-óperuna í Stokkhólmi fal-
ast eftir kröftum hans í kennslu.
„Ég er ákaflega stoltur af því, að
góðar söng- og tónlistarakademíur
erlendis hafa verið í sambandi við
mig,“ segir Kristján. Hann heldur til
Stokkhólms í apríl og kennir nemum
bæði í einkatímum og meist-
araklassa þar í Óperuskólanum.
„Það verður gaman að kynnast
standardinum í skólanum þar og
bera saman við stöðuna hjá okkur, í
Söngskólanum í Reykjavík og
Söngskóla Sigurðar Demetz. Það
eru bestu söngdeildir landsins hér
og ég hef góða reynslu af þeim báð-
um.“ Kristján hefur kennt í meist-
araklassa í Söngskólanum og síð-
ustu tvo vetur í Söngskóla Sigurðar
Demetz.
„Mér finnst mjög skemmtilegt að
kenna og það kemur kannski eng-
um meira á óvart en mér sjálfum,
hvað ég á til mikla stóíska ró. Ég
hélt ég ætti þetta ekki til!“ segir
hann og hlær. „En mér finnst ynd-
islegt að umgangast yngri söngv-
ara, láta gott af mér leiða, og nýta
fjörutíu ára reynslu.
Ég er með framtíðarsöngvara
landsins í höndunum og ég ætlast
til mikils af þeim.“
Kristján hefur verið í viðræðum
við fleiri söngskóla erlendis um
væntanlega kennslu, meðal annars
Manhattan School of Music og óp-
erustúdíóið við Lyric Opera í Chi-
cago.
„Þar söng ég í ein 17 ár og þeir
eru með eitt besta óperstúdíó sem
þekkist. Það getur vel verið að ég
fari þangað að kenna; við erum að
bera víurnar hver í annan. En ég vil
ekki sleppa hendinni af skólanum
hér.“
Kristján er líka á leiðinni út að
syngja. Eftir kennsluna í Stokk-
hólmi í apríl liggur leiðin til Ve-
rona. „Ég syng þar í leikhúsinu
„mínu“, Teatro Filharmonico,
glæsilegu 2000 sæta húsi. Í sumar
syng ég síðan óperukonsert í Róm,
með hljómsveit Rómaróperunnar.“
Hann fer ekki einn til Verona,
með í för verða þrír nemendur hans
sem fara í prufusöng í óperuhúsinu.
„Maður reynir að koma þeim alla
leið upp á svið. Það má nýta gömul
sambönd,“ segir hann. efi@mbl.is
Kennir söngnemum í Stokkhólmi
Sóst eftir Kristjáni Jóhannssyni í kennslu Tónleikar framundan á Ítalíu
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. FEBRÚAR 2012
Frelsi er spurn
nefnist fyrir-
lestur sem Stefán
Snævarr heim-
spekingur heldur
á vegum Félags
áhugamanna um
heimspeki laug-
ardaginn 4. febr-
úar kl. 14.00 í
Reykjavíkur-
Akademíunni að
Hringbraut 121 á 4. hæð.
Í erindi sínu hyggst Stefán beina
sjónum mínum að hugtakinu frelsi,
ræða hvernig eigi að skilgreina hug-
takið og hvort það sé yfirleitt skil-
greinanlegt. „Ég ræði hugtök Isaiah
Berlins um jákvætt og neikvætt
frelsi og kynni kenningu mína um
neikvætt jákvætt frelsi.
Gagnrýni Charles Taylors á nei-
kvætt frelsi verður rædd, en einnig
kenning Philipp Pettits um frelsi frá
forræði. Niðurstaða mín er sú að
frelsishugtakið verði tæpast skil-
greint af neinu viti. Þó hafi hugtakið
kjarnamerkingu og til séu skóla-
dæmi um frjálsa og ófrjálsa menn,“
segir Stefán m.a. um erindi sitt.
Stefán Snævarr er prófessor í
heimspeki við Lillehammer-háskóla
í Noregi. Hann hefur gefið út fjölda
bóka á þremur tungumálum, ís-
lensku, ensku og norsku. Seinasta
bókin hans er Kredda í kreppu.
Frjálshyggjan og móteitrið við
henni sem út kom í fyrra.
Neikvætt
jákvætt
frelsi
Stefán Snævarr
ræðir um frelsi
Stefán
Snævarr
Minningartónleikar verða haldnir í
Víðistaðakirkju annað kvöld, 2. febr-
úar, kl. 20.00. Að tónleikunum stend-
ur kærleikshópur Ástjarnarkirkju
og eru þeir haldnir til minningar um
Arndísi Þórðardóttur.
Allur ágóði af miðasölu rennur til
Krabbameinsfélags Íslands.
Á tónleikunum koma fram margir
kunnir tónlistarmenn, þar á meðal
Diddú, Jóhann Friðgeir, Bjarni Ara,
Sigríður Beinteinsdóttir, Regína
Ósk og Jógvan, og eru þá ekki allir
upp taldir. Hljómsveit Hjartar How-
ser sér um allan undirleik. Þá syng-
ur Kór Ástjarnarkirkju undir stjórn
Helgu Þórdísar Guðmundsdóttur.
Allir tónlistarmennirnir sem koma
fram gefa vinnu sína.
Minningar-
tónleikar
Um komandi helgi lýkur sýn-
ingunni Bómullartuskur sem
Anna María Lind Geirsdóttir
sýnir í sal Íslenskrar grafíkur í
Hafnarhúsinu, Tryggvagötu
17, hafnarmegin. Sýningin er
opin frá og með morgundeg-
inum og til sunnudagsins
næsta milli kl. 13-18. Öll verkin
á sýningunni eru úr endur-
unnum bómullarfötum. Sýn-
ingin er unnin í samvinnu við listafræðinginn
Deborah Kraak frá Bandaríkjunum. Þess má geta
að hægt er að skoða verkin á vefslóðinni: www.bo-
mullartuskur.weebly.com. Tekið er fram að fót-
gangandi og hjólandi gestir eru sérstaklega vel-
komnir á sýninguna.
Myndlist
Bómullartuskur
hverfa senn
Anna María Lind
Ólöf Arnalds heldur tónleika
ásamt Skúla Sverrissyni á Rós-
enberg annað kvöld kl. 22.00.
Ólöf er sem stendur í miðju
upptökuferli á nýrri breiðskífu
sem nefnist Suddain Elevation
og væntanleg er með vorinu.
Skúli stýrir upptökunum, en
hann hefur lengi verið náinn
samstarfsmaður Ólafar og kom
einnig að gerð Við og við og
Innundir skinni. Ólöf vann einnig með Skúla að
plötunum hans Seríu I og Seríu II, en þess má
geta að Sería I hlaut íslensku tónlistarverðlaunin
sem besta plata ársins 2006 í flokki sígildrar og
samtímatónlistar. Ólöf og Skúli spiluðu saman á
opnunartónleikum Listahátíðar 2011.
Tónlist
Ólöf Arnalds og
Skúli Sverrisson
Ólöf Arnalds
Tinna Þórudóttir Þorvalds-
dóttir höfundur Þóru – Hekl-
bókar kynnir ullargraff og
grunnatriði í hekli á hand-
verkskaffi í Gerðubergi í kvöld
milli kl. 20 og 22. Sjálf lærði
Tinna ung að halda á prjónum
og heklunál, en fór fljótt að
hekla og prjóna af fingrum
fram og breyta uppskriftum
eftir eigin höfði. Ullargraff er
nýtt form götulistar sem hefur
verið iðkað víðs vegar um heiminn. Þá er hekl,
prjónles og útsaumur saumað upp út um borg og
bý. Ólíkt annarri götulist þá er ullargraffið mjúkt
og veldur því engum skemmdum þegar það er sett
upp. Aðgangur á handverkskaffið er ókeypis.
Handverk
Dúllur og graff í
Gerðubergi
Tinna Þórudóttir
Þorvaldsdóttir
Skapti Hallgrímsson
skapti@mbl.is
Víkingur Heiðar Ólafsson frum-
flytur sex píanólög eftir Jón Hlöðver
Áskelsson í Hofi á Akureyri nk.
sunnudag kl. 15. Auk þess flytur
hann m.a. Pathetique sónötu
Beethovens og sónötu í a-moll eftir
Mozart og eigin útsetningar á ís-
lenskum sönglögum. Þetta verða
fyrstu einleikspíanótónleikarnir í
Hamraborginni, stóra salnum í Hofi.
„Mér er það mikill heiður að Vík-
ingur Heiðar skuli frumflytja píanó-
lögin mín; fyrir mig er það eins og að
vinna stóra vinninginn í happ-
drætti,“ segir Jón Hlöðver í samtali
við Morgunblaðið. „Verkin tileinka
ég honum og framsæknum píanó-
nemendum við minn gamla skóla,
Tónlistarskólann á Akureyri.“
Jón Hlöðver segir píanólögin sex
hugsuð sem svolítið krydd á íslenska
píanóréttaborðið. „Von mín er sú að
lögin verði ungum píanistum áhuga-
verð tilbreyting við það fjölbreytta
efni, sem í boði er. Ég hafði sér-
staklega í huga unga, upprennandi
píanónemendur við gamla skólann
minn, Tónlistarskólann á Akureyri,
en á árinu 2010 flutti skólinn í ný og
glæsileg húsakynni í Hofi. Það voru
vissulega ein merkustu tímamót í
sögu skólans,“ segir hann.
Víkingur Heiðar kveðst ekki síður
stoltur, að frumflytja verk Jóns
Hlöðvers. „Hugmyndin er Jóns;
hann sendi mér þessi gullfallegu pí-
anóverk og mér finnst það mjög við-
eigandi að verk eftir hann skuli leik-
in á fyrstu píanótónleikunum í
Hamraborginni. Í mínum huga eru
tónleikarnir til heiðurs Jóni Hlöðver,
þessum frumkvöðli í akureyrsku
tónlistarlífi,“ sagði Víkingur Heiðar
við Morgunblaðið.
Píanóleikarinn ungi segir mjög
spennandi að flytja umrædd verk.
„Lögin eru stutt, tvær til þrjár mín-
útur hvert í flutningi; þetta eru
stemningar, tónaljóð,“ segir hann.
„Einleiksformið er krefjandi; þetta
langa eintal við áheyrendur,“ segir
Víkingur. Hann nefnir að ekki sé síð-
ur krefjandi að flytja hin stuttu verk
en þau lengri, „því í hverju og einu
þeirra er mikil saga sem þarf að
segja á stuttum tíma. Þetta eru ein-
læg verk og skýr, ljóðrænn þráður í
þeim öllum.“
Víkingur Heiðar segist greina
frönsk áhrif í verkum Jóns Hlöð-
vers, einnig áhrif frá ungverska tón-
skáldinu Bela Bartok. „Þau eru líka
dálítið djössuð,“ segir hann.
„Gullfalleg píanóverk“
Víkingur Heiðar Ólafsson í Hofi Fyrstu píanótónleikarnir í Hamraborginni
Frumflutt verða sex verk akureyrska tónskáldsins Jóns Hlöðvers Áskelssonar
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Höfundur og flytjandi Víkingur Heiðar Ólafsson og Jón Hlöðver Áskelsson við KEA-flygilinn í Hofi á dögunum.
Hver er Jón Hlöðver Áskelsson?
Hann fæddist á Akureyri 1945, son-
ur Áskels Jónssonar kórstjóra og
Sigurbjargar Hlöðversdóttur. Jón
var um árabil skólastjóri Tónlistar-
skólans á Akureyri.
Verður hægt að nálgast lögin?
Já, Jón Hlöðver gaf Tónlistarskól-
anum á Akureyri lögin í fyrra og
skólinn gefur þau nú út í samstarfi
við tónskáldið. Formlegur útgáfu-
dagur þeirra er næstkomandi laug-
ardagur.
Hefur Víkingur áður leikið í Hofi?
Já, hann kom fram vígsluhelgina
2010 með Sinfóníuhljómsveit Norð-
urlands og flutti þar hinn fræga pí-
anókonsert Griegs. Hann lék svo
aftur í Hofi í desember í fyrra með
Kristni Sigmundssyni.
Hafa Jón Hlöðver og Víkingur
Heiðar unnið saman áður?
Nei, en Jón söng með afa Víkings,
Víkingi Arnórssyni, síðar yfirlækni, í
Háskólakórnum undir stjórn Jóns
Þórarinssonar á sínum tíma!
Spurt&svarað
Ég hætti að treysta á
tónlistina sem tekju-
lind eftir að ég hætti á
sveitaballarúntinum ... 32
»