Morgunblaðið - 17.02.2012, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. FEBRÚAR 2012
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir
Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Nemendaráð Hagaskóla og Valhúsaskóla á Sel-
tjarnarnesi standa árlega fyrir sérstökum degi
til að efla samskiptin. Í hádeginu í gær mættu
Hagaskólanemendur í íþróttahús Seltjarnarness
til að keppa í ýmsum þrautum, þ. á m. brennó,
handbolta, reiptogi og kappáti. Síðar um daginn
var safnast saman í Hagaskóla og þar fór fram
ræðukeppni skólanna, umræðuefnið var – barn-
eignir! Á eftir var ball til klukkan 10.
Hamborgara sýnt í tvo heimana
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Hagaskóli og Valhúsaskóli kepptu í þrautum eins og kappáti
Skúli Hansen
skulih@mbl.is
Stefnt er að því að kalla stjórnlaga-
ráð aftur saman í fjóra daga í byrjun
mars, þetta var sú niðurstaða sem
meirihluti stjórnskipunar- og eftir-
litsnefndar Alþingis komst að á fundi
nefndarinnar sem haldinn var í gær-
kvöldi. Á fundi nefndarinnar var
fjallað um breytingartillögu við til-
lögu til þingsályktunar um meðferð
frumvarps stjórnlagaráðs til stjórn-
skipunarlaga. Í þingsályktunartil-
lögu um skipun stjórnlagaráðs var
kveðið á um ráðið hefði frest til loka
júnímánaðar 2011 til þess að skila af
sér frumvarpi til stjórnskipunarlaga,
en þessi frestur var síðan framlengd-
ur um einn mánuð. Aðspurð hvort
ekki sé nauðsynlegt að endurnýja
umboð ráðsins með nýrri þingsálykt-
unartillögu ef stjórnlagaráð verður
kallað saman að nýju segir Valgerð-
ur Bjarnadóttir, formaður nefndar-
innar, að svo verði gert og vísar til
tillögunnar sem rædd var á fundi
nefndarinnar. „Við kveðjum þessa
fulltrúa saman með þingsályktun og
biðjum þá um að mæta til fundar til
þess að fjalla um einhver álitamál
sem komið hafa upp og aðrar spurn-
ingar sem við ætlum að leggja fyrir
þá,“ segir Valgerður.
Samkvæmt tillögunni sem nefndin
samþykkti verða fulltrúar ráðsins
með laun sem samsvara hlutfallslega
þeim launum sem þeir höfðu á
starfstíma ráðsins. „Nei, ekki gríð-
arlegur, en þetta er smá kostnaður,
ætli þetta verði ekki um 4 til 5 millj-
ónir allt í allt,“ segir Valgerður, að-
spurð hvort í þessu sé ekki fólginn
mikill kostnaður fyrir skattgreiðend-
ur. Spurð út í umfang þeirra mögu-
legu breytinga sem ráðinu er ætlað
að ræða á fundum sínum í mars segir
Valgerður að hennar mat sé það að
nefndin eigi að óska eftir því að ráðið
fjalli um fáar en mikilvægar breyt-
ingar á frumvarpinu en ekki heildar-
endurskoðun á því. „Þegar maður er
búinn að sofa eina nótt, eða í þessu
tilviki hálfan vetur, og það hafa kom-
ið alls konar athugasemdir, þá er það
enginn áfellisdómur þó að maður
segi: Já, kannski hefði ég átt að
gera þetta svolítið öðruvísi,“
segir Valgerður, aðspurð hvort
það sé ekki áfellisdómur um
störf stjórnlagaráðs ef nú verða
gerðar veigamiklar breyting-
ar á því frumvarpi sem
ráðið skilaði af sér síðasta
sumar.
Stjórnlagaráð kallað saman
Á að ræða mögulegar breytingar á frumvarpi sínu til stjórnskipunarlaga
Fulltrúar ráðsins fá greidd laun fyrir fjögurra daga fundarhöld í mars nk.
Þetta er smá
kostnaður, ætli
þetta verði ekki
um 4 til 5 milljónir
Valgerður Bjarnadóttir
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Hringvegurinn um Breiðamerkursand er ekki lengur tal-
inn í bráðri hættu vegna ágangs sjávar. Fargi hefur verið
létt af landinu eftir því sem jöklarnir hafa þynnst og hop-
að á síðustu árum og hefur landið risið, samkvæmt upp-
lýsingum Vegagerðarinnar. Því hefur verið hætt við hug-
myndir um að færa veg og brú ofar í Jökulsárlónið.
„Við vorum komnir í þær stellingar að færa varnarlín-
una innar í lónið, þ.e. veginn og nýja brú,“ segir Hreinn
Haraldsson vegamálastjóri.
„Mannvirkin voru hugsuð til 30-40 ára þannig að
bráðahætta yrði ekki yfirvofandi. Í nokkur ár gekk jafnt
og þétt á ströndina og sjávarlína færðist nær og nær
mannvirkjunum. Síðustu ár hefur orðið breyting á þessu
og hætt hefur að ganga á landið, ekki síst vegna landlyft-
ingarinnar. Þessar aðgerðir eru því ekki lengur á döfinni
og eins og staðan er núna þá höfum við fyrst og fremst
eftirlit með hugsanlegum breytingum,“ segir vegamála-
stjóri.
Jafnframt er áfram til skoðunar að færa farveg Jökuls-
ár austar á sandinn ef aðstæður breytast til hins verra,
t.d. vegna aukins innstreymis sjávar í lónið. Það hefur á
undanförnum árum stækkað mjög eftir því sem jökullinn
hefur hörfað inn til landsins.
Vegurinn við Jökulsárlón
ekki lengur talinn í hættu
Morgunblaðið/Ómar
Ekki lengur á döfinni að
færa veg og brú innar í lónið
Kristín Ingólfsdóttir, rektor Há-
skóla Íslands, segir að ekkert hafi
komið fram í meðferð máls Bjarna
Randvers Sigurvinssonar, stunda-
kennara við guðfræði- og trúar-
bragðafræðideild skólans, sem
bendi til að hann hafi gerst brotleg-
ur í starfi. Kristín hefur skrifað
bréf til starfsfólks Háskóla Íslands
vegna þessa máls, en það hófst eftir
að Vantrú kærði kennslugögn
Bjarna Randvers til siðanefndar
skólans. Málið hefur verið umdeilt
inna og utan skólans. Engin efnis-
leg niðurstaða fékkst í málið af
hálfu siðanefndar.
Ekki brotlegur í
starfi í Vantrúarmáli
N1 hækkaði verð
á bensíni og dísil-
olíu í gær um
tvær krónur lítr-
ann. Önnur olíu-
félög höfðu í gær-
kvöldi, þegar
blaðið fór í prent-
un, ekki fylgt N1
eftir með hækkunum en skammt er
síðan Olís dró hækkun til baka þeg-
ar önnur félög gerðu ekki slíkt hið
sama. Algengt verð á bensíni hjá N1
var í gærkvöldi 250,60 krónur og
verð á dísilolíu 258,50 krónur.
Shell fylgdi fast á eftir og var al-
gengt verð á bensíni þar 250,40
krónur og 256,30 krónur fyrir dísil-
olíu.
N1 hækkaði lítrann
um tvær krónur
Komdu þér í gang!
l 2ja vikna námskeið 5x í viku í tækjasal með persónulegri leiðsögn og aðhaldi
l Tilvalið að mæta með vinkonunum – hámark 6 í hóp
l Leiðbeiningar um mataræði
l Mæling og vigtun í byrjun og enda námskeiðs
Verð aðeins kr. 10.000.
Barnagæsla - Leikland JSB
Velkomin í okkar hóp!
telpurS onuK r
Staðurinn - Ræktin
Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 581 3730 • Bréfasími 581 3732 • jsb@jsb.is • www.jsb.is
Stutt og strangt
Skráning alltaf í gangi
í síma 581 3730!
Frjáls
aðgangur að
opna kerfinu
og tækjasal
S&S
stutt ogstrangt
E
F
L
IR
a
lm
a
n
n
a
te
n
g
s
l
/
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
s
k
h
ö
n
n
u
n
„Í þjóðaratkvæðagreiðslunni
virðist eiga að spyrja bæði um
tillögur stjórnlagaráðs í heild,
með þá mögulega einhverjum
minniháttar breytingum, og svo
hugsanlega um nokkur afmörk-
uð álitaefni, sem snerta stjórn-
arskrána,“ segir Birgir Ár-
mannsson þingmaður, en
samkvæmt tillögu sem
meirihluti stjórnskipunar-
og eftirlitsnefndar sam-
þykkti verða greidd at-
kvæði um tillögur ráðsins
samhliða forsetakosn-
ingunum í
sumar.
Margþættar
spurningar
ÞJÓÐARATKVÆÐA-
GREIÐSLA Í SUMAR
Birgir
Ármannsson