Morgunblaðið - 17.02.2012, Page 6
BAKSVIÐ
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
„Aðalmálið er að þetta fór vel,“ sagði
Hafsteinn Hafsteinsson, skipstjóri á
Brúarfossi, en skipið rak vélarvana
undan veðri og vindi í átt að Garð-
skaga í fyrrinótt. Skipverjum tókst
að aftengja bilaðan ásrafal og gang-
setja vélina á ný. Brúarfoss hélt
áfram ferð sinni og kom til Vest-
mannaeyja um klukkan 14.00 í gær.
Um borð í Brúarfossi voru 12
manns, 11 manna áhöfn og einn far-
þegi. Hafsteinn sagði að allir hefðu
haldið ró sinni um borð. Skipið var á
siglingu í hefðbundinni siglingaleið,
um sjö sjómílur (13 km) frá landi,
þegar reykskynjari fór í gang klukk-
an 02.35 í fyrrinótt og vakti alla sem
voru sofandi. Hafsteinn sagði ekki
óalgengt að skynjarinn færi í gang af
litlu eða engu tilefni. Það gerðist
stundum í veðri eins og var í fyrri-
nótt. Hafsteinn, sem var í koju, vakn-
aði við reykskynjarann og fór upp.
Þá var búið að senda háseta niður í
vélarrúm þaðan sem boðin komu.
Vélstjórinn var einnig kominn niður.
Hafsteinn sagði að reykur og mikil
hitalykt af gúmmíi hefði verið í vél-
arrúminu. Loftið var svo vont að
menn ræddu hvort ráðlegt væri að
vera þar lengi í einu. Þeir voru með
súrefnistæki, svonefnd flóttatæki,
við höndina. Einnig voru tveir reyk-
kafarar um borð. Skipið var á sigl-
ingu og búið að leita að uppsprettu
reyksins í um 20 mínútur þegar dró
til tíðinda.
Glæringar og mikill reykur
„Vélstjórinn hringdi upp um
klukkan 02.54 og sagði að við yrðum
að stöðva,“ sagði Hafsteinn. Vélstjór-
anum leist ekki á ástandið í kringum
ásrafalinn, en hann er knúinn af að-
alvél skipsins og sér skipinu fyrir raf-
magni þegar það er á siglingu.
Skyndilega blossaði í kringum raf-
alinn og reykurinn jókst mikið. Vél-
stjórinn notaði neyðarstopp til að
stöðva vélina.
Hafsteinn kvaðst hafa verið að því
kominn að láta stjórnstöð Landhelg-
isgæslunnar vita af stöðu mála þegar
árvökull vörður á stjórnstöðinni kall-
aði og spurði hvað væri að gerast.
Hann hafði þá séð í ferilvökt-
unarkerfinu að skipið var farið að
reka. Hafsteinn hrósaði þeim á
stjórnstöðinni fyrir árveknina.
Landhelgisgæslan kallaði strax í
varðskipið Ægi, sem var statt suður
af Grindavík og hafði samband við
togarann Höfrung III AK sem var á
Stakksfirði og bað þau til öryggis að
hraða sér á vettvang. Þegar dróst að
koma aðalvél Brúarfoss í gang var
þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út
og beið hún í viðbragðsstöðu nálægt
höfninni í Sandgerði. Björg-
unarsveitir Slysavarnafélagsins
Landsbjargar á svæðinu voru kall-
aðar út og lögreglan á svæðinu látin
vita, samkvæmt upplýsingum Land-
helgisgæslunnar.
Vont veður og mikill sjór
En var ekki foráttuveður?
„Jú, það sló upp í 25-30 metra á
kafla og svo dúraði inni á milli. Þetta
var leiðinlegt veður. Vestanáttin er
svona,“ sagði Hafsteinn. Sjór fór
einnig vaxandi vestur af Garðskaga
þegar Brúarfoss var þar á reki. Öldu-
hæð var komin yfir sex metra klukk-
an þrjú um nóttina og var orðin 7,5
metrar um sexleytið samkvæmt
Garðskagadufli. Á Garðskaga var
16,3 m/s vestanátt klukkan þrjú og
25 m/s í vindhviðum. Heldur bætti í
vindinn eftir því sem á leið og klukk-
an 5.00 var kominn vestsuðvestan
17,7 m/s vindur og 25 m/s í vind-
hviðum.
Ekki var hægt að halda skipinu
upp í svo það flatrak undan vest-
anveðrinu og öldunni. Hafsteinn
sagði að mennirnir sem unnu að við-
gerðinni hefðu þurft að skorða sig af
neðst niðri og aftast í skipinu, þar
sem ásrafallinn er. Hann sagði að
þessar aðstæður hefðu ekki hjálpað
til.
Akkerið dró úr rekinu
„Við vorum fyrst á reki í tvo tíma.
Þá var komið að því að láta akkerið
detta. Það var ekki hægt fyrr en við
vorum komnir inn á 50 metra dýpi.
Þá dró úr rekinu,“ sagði Hafsteinn
skipstjóri. Hann sagði að eftir að
akkerið var látið fara hefði verið far-
ið að styttast í að vélstjórinn gæti
upplýst hvort viðgerðin tækist.
„Þá var Höfrungur kominn og við
orðnir rólegri. Ég held pottþétt að
hefði hann ekki farið í gang á þessum
tímapunkti þá hefðum við farið í að-
gerðir til að taka við endum frá Höfr-
ungi til þess að láta hann allavega
slefa okkur eitthvað. Ægir átti það
langt eftir að við hefðum ekki getað
beðið eftir honum. Höfrungur hefði
að minnsta kosti getað haldið okkur
frá rekinu. Einnig kom til greina að
gangsetja aðalvélina og valda meiri
skemmdum á ásrafalnum en orðnar
voru. En það tókst að aftengja raf-
alinn og koma vélinni í gang,“ sagði
Hafsteinn.
Um leið og vélin fór í gang var
akkerið tekið upp, gengið frá drátt-
artrossu og stefnan tekin frá landi
klukkan 06.00. Varðskipið Ægir
fylgdi Brúarfossi þar til komið var
fyrir Reykjanes. Brúarfoss sigldi svo
einn síns liðs og kom til Vest-
mannaeyja um klukkan 14.00 í gær.
Framundan er flokkunarviðgerð á
skipinu og þá verður rafallinn vænt-
anlega lagaður, að sögn Hafsteins.
Siglingaleiðin bjargaði miklu
Umhverfisstofnun vakti athygli á
því í gær að árið 2008 var skilgreint
svæði í kringum Reykjanes sem
skipum ber að forðast. Það var m.a.
gert í framhaldi af strandi Wilsons
Muga við Hvalsnes 2006. Að sögn
Landhelgisgæslunnar kvað reglu-
gerðin frá 2008 einnig á um afmörk-
un siglingaleiða og tilkynninga-
skyldu skipa fyrir Suðvesturlandi.
Brúarfoss var á þessari afmörkuðu
siglingaleið og þykir ljóst að verr
hefði getað farið ef skipið hefði verið
á gömlu leiðinni sem var einungis 2,5
sjómílur (4,63 km) frá landi. Brúar-
foss rak um fjórar sjómílur (7,4 km) í
átt til lands, að sögn Landhelg-
isgæslunnar. Þegar Brúarfoss var
næst landi í fyrrinótt átti skipið eftir
tvær sjómílur (3,7 km) í flasir sem
eru undan Sandgerði og innan við
tvær mílur í grunnsævi. Þá var rekið
orðið aðeins norður með landinu en
ekki beint í austur, að sögn Hafsteins
skipstjóra.
Í gær var stefnt að því að Brúar-
foss héldi áætlun, þótt bilunin hefði
tafið för skipsins nokkuð frá áætlun.
„Aðalmálið að þetta fór vel“
Bilun í ásrafal olli því að Brúarfoss rak stjórnlaust undan óveðri í átt að Garðskaga í fyrrinótt
Mikill öryggisviðbúnaður var viðhafður en skipverjum tókst að gangsetja vélina og sigla til Eyja
Ljósmynd/Óskar Pétur Friðriksson
Brúarfoss Skipið á leið inn í Vestmannaeyjahöfn í gær, eftir að hafa fengið fylgd lóðsins frá Eyjum.
Ferill Brúarfoss
Heimild. www.sigling.is
22:40
Brúarfoss leggur af
stað frá Reykjavík.
06:00
Brúarfoss leggur
aftur af stað.
02:55
Vél Brúarfoss
stöðvuð.
14:00
Brúarfoss leggst að
bryggju í Eyjum.
02:35
Brunaviðvörunar-
kerfi fer í gang.
4:30
Höfrungur kemur
að Brúarfossi.
03:00
Haft er samband
við Höfrung
Tími Vindátt styrkur Hviður ölduhæð
03:00 V 16,3m/sec 24,9 6,1
04:00 V 15,8m/sec 23,5 6,6
05:00 VSV 17,7m/sec 25,0 7,0
06:00 VSV 16,3m/sec 21,8 7,4
Veður og ölduhæð á vettvangi
Afmarkaðar skipaleiðir
Brúarfoss
Höfrungur
7,7 mílur
2 mílur
Byggt m.a. á upplýsingum frá landhelgisgæslunni
Grunnkort: Landmælingar Íslands
Ljósmynd/Óskar Pétur Friðriksson
Skipstjóri Hafsteinn Hafsteinsson.
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. FEBRÚAR 2012
„Þessar aðstæður voru náttúrlega
erfiðar, en við hefðum bara tekið
hann í tog,“ sagði Þórður Magn-
ússon, skipstjóri á skuttogaranum
Höfrungi III, AK-250.
Stjórnstöð Landhelgisgæsl-
unnar hafði samband við Höfrung
rétt fyrir klukkan þrjú í fyrrinótt
og bað þá að sigla í átt að Brúar-
fossi. Höfrungur hafði farið frá
Reykjavík um svipað leyti og Brú-
arfoss en Þórður ákvað að bíða í
vari undan Leirunni.
„Það voru 25 m/s og suðvestan
haugasjór, ekkert veiðiveður. Ég
ætlaði að bíða þarna aðeins,“
sagði Þórður. Hann sagði að það
hefði ekki verið neitt mál fyrir þá
að fara fyrir Garðskagann, þrátt
fyrir bræluna. Þeir væru á öflugu
skipi og ýmsu vanir. Siglingin að
Brúarfossi tók rúman klukkutíma.
„Ég lét reka með honum í hálf-
tíma og var búinn að meta að-
stæður. Við vor-
um búnir að gera
allt klárt, með
togvíra klára og
ofurtóg. Ég ætl-
aði að fara að
læðast að honum
og skjóta yfir línu
þegar hann fór í
gang. Það var
ekki hætta á einu
eða neinu. Það hefði aldrei komið
neitt til,“ sagði Þórður. Hann hafði
hugsað sér að hafa Brúarfoss á
kulborða og læðast við stefnið á
honum. Þórður sagði að Brúarfoss
væri það stórt skip að rekið hefði
verið fyrirsjáanlegt. Hann taldi að
það hefði gengið auðveldlega að
koma taug á milli skipanna.
„Það var ekkert mál að draga
hann beint í norður og vera með
veðrið á hornið aftanvert. Við
hefðum alveg ráðið við það.“
„Hefðum tekið hann í tog“
HÖFRUNGUR III, AK VAR Í NÁMUNDA VIÐ BRÚARFOSS
Þórður
Magnússon