Morgunblaðið - 17.02.2012, Side 7
FRÉTTIR 7
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. FEBRÚAR 2012
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Hæstiréttur Niðurstaða komin í
máli starfsmanns Isavia.
Hátterni yfirmanns hjá Isavia ohf.
að fara í heitan pott án sundfata í
vinnuferð í sumarbústað var með
öllu óviðeigandi, að mati Hæsta-
réttar Íslands. Hins vegar geti það
ekki talist kynferðisleg áreitni.
Isavia var því sýknað af bótakröfu
konu sem starfaði hjá fyrirtækinu
og taldi á sér brotið.
Áður hafði Héraðsdómur Reykja-
ness dæmt félagið til að greiða kon-
unni tæplega 1,8 milljónir króna.
Taldi héraðsdómur að upplifun
konunnar af háttsemi yfirmanns
hennar í sumarbústaðnum hefði tví-
mælalaust verið sú að um kynferð-
islega áreitni hefði verið að ræða.
Þá hefði konan orðið fyrir miska
vegna þessa og athafnaleysis fyr-
irtækisins, að búa ekki svo um
hnútana að konunni væri fært að
sinna starfi sínu áfram.
Tók kvörtunina alvarlega
Hæstiréttur segir í dómi sínum
að Isavia hafi tekið kvörtun starfs-
mannsins alvarlega. Leitað hafi
verið til tveggja lögmanna sem
gáfu álit sitt á því hvort um væri að
ræða kynferðislega áreitni og
hvort atvikið varðaði fyrirvara-
lausri uppsögn yfirmannsins. Var
hvorugu til að dreifa að mati
þeirra. Þrátt fyrir það áminnti
Isavia yfirmanninn og var sér-
staklega tekið fram í áminningunni
að ætlast væri til að maðurinn tæki
hana alvarlega og tryggði að slíkt
endurtæki sig ekki.
Hæstiréttur segir að ekki hafi
verið færð fyrir því haldbær rök að
Isavia hafi brotið á starfsmanni sín-
um í kjölfar kvörtunar vegna yfir-
mannsins, heldur bendi gögn máls-
ins til þess að félagið hafi lagt sig
fram um að gera það sem í valdi
þess stóð til að starfsmaðurinn gæti
sinnt starfi sínu eins og best varð á
kosið.
Því hafi ekki verið leitt í ljós að
konan hafi verið beitt óréttlæti í
starfi með tilliti til starfsöryggis og
starfskjara. Þá hafi konan ekki sýnt
fram á að hún ætti rétt á greiðslu
launa fyrir það tímabil sem hún
kaus að mæta ekki til vinnu.
Isavia sýknað af miskabótakröfu
Hátterni yfirmanns talið óviðeigandi
en ekki kynferðisleg áreitni
Örn Bárður Jóns-
son, sóknar-
prestur í Nes-
kirkju, hefur
ákveðið að bjóða
sig fram í bisk-
upskjöri sem
fram fer í apríl.
Alls hafa nú átta
prestar tilkynnt
framboð.
Í yfirlýsingu
frá Erni Bárði segir að hann hafi
eftir langa umhugsun og hvatn-
ingu, bæði leikra og lærðra, ákveð-
ið að gefa kost á sér til kjörs í emb-
ætti biskups Íslands. Hann hafi
fjölþætta starfsreynslu innan kirkj-
unnar, hafi t.a.m. verið leikmaður í
kirkjunni, djákni, aðstoðarprestur,
sóknarprestur o.fl. „Ég þekki því
flest af því sem snýr að hinu innra
starfi kirkjunnar og var starfs-
maður á Biskupsstofu í níu ár,“ seg-
ir hann og bætir við að í félagsstarfi
þar sem hann hafi verið þátttak-
andi hafi hann verið valinn til for-
ystu.
Örn Bárður býður
sig fram til biskups
Örn Bárður
Jónsson
Samtök sveitar-
félaga á Norður-
landi vestra segj-
ast enn bíða
svars frá Jó-
hönnu Sigurð-
ardóttur for-
sætisráðherra
við að finna leiðir
til nýtingar at-
vinnutækifæra
sem eru til staðar
á Norðurlandi vestra, íbúum svæð-
isins og landsmönnum öllum til
heilla. Í yfirlýsingu frá stjórn SSNV
segir að stjórnin hafi sent erindi til
forsætisráðherra og fjármálaráð-
herra fyrir tæpum þremur mán-
uðum og enn hafi engin formleg
svör borist. Norðanmönnum var
boðið að funda með embættis-
mönnum en í umræðu á Alþingi í
gær sagðist Jóhanna hafa ætlað að
koma að viðræðunum á síðari stig-
um. Bjarni Jónsson, formaður
SSNV, segir engin slík svör hafa
borist frá ráðuneytinu og ekkert
heyrst frá ráðherra beint.
Bíða enn eftir svari
frá Jóhönnu
Jóhanna
Sigurðardóttir
Samþykkt var heimild á hluthafa-
fundi Greiðrar leiðar ehf. í gær til
að auka hlutafé félagsins upp í allt
að 400 milljónir króna. Þetta var
gert vegna mögulegrar aukningar
hlutafjár í Vaðlaheiðargöngum hf.
sem nú vinnur að gerð ganganna.
Greið leið ehf. á 49% hlutafjár í
Vaðlaheiðargöngum hf. en Vega-
gerðin 51%. Eigendur Greiðrar
leiðar ehf. eru öll sveitarfélögin á
Norðausturlandi, átta fyrirtæki og
Eyþing, samband sveitarfélaga í
Eyjafirði og Þingeyjarsýslu. Sam-
kvæmt samþykkt fundarins er
heimilt að bjóða nýjum aðilum
hlutafé til kaups, nýti ekki allir nú-
verandi hluthafar forkaupsrétt.
Hlutafé aukið vegna
Vaðlaheiðarganga
Marteinn Áki
Ellertsson
• Stúdent frá MH 2007
• Lagadeild, 3. ár
• Áhersla í námi: Fjármunaréttur,
félagaréttur og Evrópuréttur
• Áhugamál: Flug, útivera og
félagslíf
Ragnhildur Helgadóttir
• Prófessor í lagadeild
• Doktorspróf frá Háskólanum
í Virginíu
• Sérsvið: Stjórnskipunarréttur
• Situr í samninganefnd Íslands
við ESB
HÁSKÓLA
DAGURINN
Háskólinn í Reykjavík og Listaháskóli Íslands verða í HR. Í HÍ kynnir Háskóli Íslands starfsemi sína. Háskólinn á Akureyri,
Landbúnaðarháskóli Íslands, Háskólinn á Hólum, Listaháskólinn, Keilir og danskir og sænskir háskólar verða í Háskólabíói
og Bifröst í Norræna húsinu.
Skoðaðu dagskrá Háskóladagsins á www.hr.is
Saman látum við hjólin snúast
Háskóladagurinn 18. febrúar
Velkomin í HR