Morgunblaðið - 17.02.2012, Blaðsíða 11
Bolluvöndur Þessi unga stúlka er vand-
virk við föndrið.
Fuglar fljúgandi yfir Hörður með gítarinn sem hann smíðaði sjálfur.
jafnvel þó að það sé bara að herða
skrúfu sem ég finn lausa. Ég fer yf-
ir allt.“
Smíðaði sér gítar
„Ef ég sé einhvers staðar gít-
ara sem þarfnast yfirhalningar
klæjar mig í puttana að taka þá og
hreinsa þá. Reyndar finnst sumum
að það sé meira líf í þeim skítugum
og vilja alls ekki láta hreinsa þá. En
flestir vilja að gítararnir sínir líti
vel út, enda eru þetta dýr tæki.
Ódýrir gítarar geta reyndar verið
ótrúlega góðir, ef maður meðhöndl-
ar þá rétt. Það er í raun rosalega
einfalt að gera ódýra gítara miklu
betri, bæði hljóm þeirra og útlit,
með því að skipta um rafkerfi og
„pikköppa“ og ýmislegt fleira. Allir
mínir gítarar flokkast til dæmis
undir frekar ódýra en af því ég
þekki þá vel þá er ég er búinn að
gera þá þannig að mér og flestum
öðrum finnst þeir frábærir. Margir
frægir tónlistarmenn hafa notað
ódýra gítara allan sinn feril en þeir
hafa látið breyta þeim í góða.“
Hörður fór á námskeið hjá gít-
arsmiðnum Gunnari Erni Sigurðs-
syni og smíðaði sér rafmagnsgítar
frá grunni sem honum fannst rosa-
lega gaman. „Allt sem ég lærði hjá
Gunnari hefur gagnast mér mikið.
En ég hef líka sótt mér vitneskju
með því að vafra um á netinu. Þar
hef ég lært mikið um gítara yf-
irleitt, um mismunandi smíði á gí-
törum og ótal margt fleira. Ég hef
alltaf lagt áherslu á að læra hvernig
gítarinn virkar sem tæki. Ég bý vel
að reynslunni sem ég hef fengið í
gegnum árin með því að gera við
mína eigin gítara, prufa mig áfram í
öllum smáatriðunum, skipta um
hluti, bæta, breyta, laga. Mér finnst
þetta spennandi atvinnufarvegur
og draumurinn er að læra gít-
arsmíði í framtíðinni í einhverju út-
landinu.“
Klárar á tveimur dögum
Þó að áhugasvið Harðar sé gít-
arinn sjálfur sem tæki frekar en
það að spila á hann, þá gerir hann
heilmikið af því líka. Hann hefur
spilað í þónokkrum böndum og
hann er með æfingahúsnæði þar
sem hann „djammar“ reglulega
með félögum sínum.
Hörður á ágætt gítarasafn en
segist ekki vera viss um töluna,
enda sé hún mjög breytileg. Honum
finnst líklegt að hann eigi 10-15 raf-
magnsgítara í augnablikinu. Hann
eignaðist sinn fyrsta gítar ári áður
en hann fermdist og hefur spilað
allar götur síðan. „Maður á aldrei
nóg af gítörum, það er alltaf gaman
að skipta út og prófa nýja. En ég
kaupi aldrei annað en notaða gítara
og enginn af mínum gítörum er í
upprunalegu ástandi. Ég er búinn
að breyta þeim öllum, bæta þá og
laga,“ segir Hörður sem hefur
skapað sér ágætisorðspor í gít-
arviðgerðum og margir sem hafa
komið til hans einu sinni, koma til
hans aftur. Hann situr líka við og
klárar yfirleitt verkefnin á tveimur
dögum. Þó að hann sé aðallega að
gera við rafmagnsgítara þá tekur
hann líka bassa og kassagítara.
Varahlutir Hillur fullar af nauðsynjavörum.
Þeir sem vilja fara með gítarana
sína til Harðar í yfirhalningu eða
viðgerð, geta haft samband við
hann í gegnum Facebook: Hörður
Jónsson. Eða í s. 666-0781.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. FEBRÚAR 2012
Íþessum pistli segir af tveimurmætum konum, þeim Bryn-hildi Sæmundsdóttur og AuðiEinarsdóttur. Þær fæddust
báðar árið 1928, Auður að Nýjabæ
undir Eyjafjöllum en Brynhildur að
Kletti í Kollafirði á Barðaströnd.
Lengi vel vissu þessar konur ekki
hvor af tilvist annarrar, né að fyrir
þeim báðum ætti að liggja að verða
ömmur mínar. Auður amma og
Binna amma.
Auður amma dó í lok janúar. Þess
vegna hafa ömmur verið mér sér-
staklega hugleiknar síðustu vikur og
að maður eigi ekki að bíða með að
þakka fyrir ömmur sínar þar til í
minningargrein.
Ég var svo heppin að eiga tvær
ömmur fram á fullorðinsaldur og
Binna amma er enn í fullu fjöri, enda
hálfgert náttúruafl. Báðar stóðu þær
sig með eindæmum vel í ömmu-
hlutverkinu og uppfylltu öll þau fyr-
irframgefnu skilyrði sem maður í
huganum setur ömmum sem barn.
Þær voru góðar og ástúðlegar og
þær dekruðu við barnabörnin sín,
gáfu okkur fallegar flíkur sem þær
höfðu unnið í höndunum, sungu fyrir
okkur og kenndu okkur. Og það sem
er kannski mikilvægast af öllu í
ömmufræðunum: Hvor um sig höfðu
þær fullkomnað ákveðna tegund
bakkelsis sem barnabörnin fengu að
gæða sér á í heimsóknum.
Auður amma á Hellu steikti
heimsins bestu kleinur. Það verður
aldrei af henni tekið. Flatkökurnar
hennar þóttu líka algjört met, en ég
borðaði mig aðallega sadda af klein-
unum. Binna amma gerir enn bestu
randaköku sem ég hef smakkað.
Hún saumaði líka jólaföt í stíl handa
öllum barnabörnunum, svo hópurinn
varð mjög myndrænn á
stórhátíðum, en Auður
amma prjónaði tátiljur
í metravís í öllum
stærðum og gerðum
handa afkomendum
sínum og hverjum
þeim sem átti leið
hjá.
Þessar minningar
hafa satt að segja orðið
svolítið áhyggjuefni
því mér þykir ein-
sýnt að ég
muni ekki
standa sjálf
undir
þessum
ömmu-
skilyrðum þegar fram í sækir, með
mína 10 þumalputta. Eftir því sem
maður eldist lærist manni samt að
kunna að meta ömmur sína sem
meira en bara ömmur, ef maður er
svo heppinn að fá að eiga þær nógu
lengi að. Smám saman áttaði ég mig
á því að ömmur mínar væru ekki
bara frábærar ömmur heldur líka
frábærar konur og fyrirmyndir.
Auður amma mín var skemmtileg
og lífleg, alltaf hress en líka prinsipp-
manneskja því hún slúðraði ekki um
nokkurn mann, jafnvel þótt hún
byggi í smáþorpi þar sem eflaust var
nóg af kjaftasögum. Hún vann um
tíma fyrir barnaverndarnefndina,
sem henni fannst erfitt, og var stofn-
félagi í hestamannafélaginu, sem
henni fannst skemmtilegt. Það er því
kannski ekkert skrítið að hún Auður
amma hafi verið vinsæl, en samt kom
það mér ánægjulega á óvart að sjá að
fullt var út úr dyrum í jarðarförinni
hennar. Binna amma mín er eins og
áður sagði hálfgert náttúruafl. Það
kemur mér sífellt á óvart hvað hún
er klár og skemmtileg og hvað við
tvær eigum margt sameiginlegt í
skoðunum og áhugamálum. Ekki
vegna þess að ég sé svona gam-
aldags, heldur vegna þess að amma
er svo opin og víðsýn og lifandi.
Jafnvel þótt ég læri aldrei að
prjóna eða sauma og setji
ekki kennimark mitt á
neitt bakkelsi þá held ég
samt að mér gæti
lukkast að verða
ágætis amma ein-
hvern daginn, ef ég
bara tek mér þessar
tvær heiðurskonur til
fyrirmyndar.
»Mér þykir einsýnt aðég muni ekki standa
sjálf undir þessum ömmu-
skilyrðum þegar fram í sæk-
ir, með mína 10 þumal-
putta.
HeimurUnu
Una Sighvatsdóttir
SMÁRALIND FACEBOOK.COM/SELECTEDICELAND
Bolur
3.790
Buxur
6.990
Peysa
16.900
Frakki
39.900
Kjóll
10.900
Kjóll
6.990
Fæst í gylltu
og svörtu