Morgunblaðið - 17.02.2012, Side 18
FRÉTTASKÝRING
Hörður Ægisson
hordur@mbl.is
„Áhrifin af þessum dómi eru ekki
ógnvekjandi fyrir fjármálastöðug-
leika í landinu. Það er alveg á
hreinu,“ segir Gunnar Andersen,
forstjóri Fjármálaeftirlitsins, í sam-
tali við Morgunblaðið.
Að sögn Gunnars er töluvert svig-
rúm til staðar hjá viðskiptabönkun-
um til að mæta þeim kostnaði sem
bankarnir standa nú frammi fyrir
vegna væntanlegra endurgreiðslna
vaxta á gengislánum í kjölfar dóms
Hæstaréttar í fyrradag. Hann segir
að erfitt sé að meta nú hver verður
endanlegur kostnaður fyrir bank-
ana. „Það þurfa að líða einhverjir
dagar áður en við fáum betri yfirsýn
yfir hvað þetta þýðir fyrir eiginfjár-
stöðu fjármálafyrirtækjanna.“
Eiginfjárhlutfall stóru viðskipta-
bankanna – Landsbankans, Arion
banka og Íslandsbanka – var mjög
hátt í lok þriðja ársfjórðungs 2011 og
nam á bilinu 22 til 29%. Samtals nam
því eigið fé bankanna 463 milljörðum
króna. Fjármálaeftirlitið hefur gert
kröfu um 16% lágmarkseiginfjár-
hlutfall bankanna og því er ljóst að
þeir hafa tölouvert svigrúm til að
mæta þeim fjárhagslega skelli sem
dómurinn hefur í för með sér fyrir
bankana án þess að þörf verði á frek-
ara eiginfjárframlagi. Eigið fé bank-
anna, sem er umfram 16% lágmarks-
eiginfjárhlutfallið, nemur tæplega
160 milljörðum króna.
Meira borð fyrir báru
Í svörum frá Seðlabankanum
kemur fram að hann telji slíkt svig-
rúm nægjanlegt. „Lausleg athugun
Seðlabankans bendir til þess að
áhrifin verði ekki meiri en svo að
helstu fjármálafyrirtæki verði vel yf-
ir lágmarkskröfum Fjármálaeftir-
litsins. Það hjálpar einnig til að staða
fjármálafyrirtækjanna hefur batnað
verulega frá því að fyrsti gengislána-
dómurinn féll sumarið 2010. Þau
hafa hagnast verulega og ekki verið
heimilað að greiða út arð. Því er nú
meira borð fyrir báru en áður var.“
Í lok júní 2010 kynntu Seðlabank-
inn og FME tilmæli til fjármálafyr-
irtækja um að endurreikna ólögmæt
gengislán með óverðtryggðum vöxt-
um Seðlabankans. Már Guðmunds-
son, seðlabankastjóri, lét í kjölfarið
þau orð falla að fjármálakerfið væri í
bráðri hættu ef lánin yrðu endur-
reiknuð miðað við samningsbundna
vexti. Í upplýsingum frá Seðlabank-
anum er bent á að mat sem fram fór
á vegum FME í kjölfar dómsins frá
16. júní 2010 gaf til kynna að eig-
infjárhlutfall sumra fjármálafyrir-
tækja gæti farið niður fyrir tilskilin
lágmörk færu dómar á versta veg
fyrir fjármálafyrirtækin og ríkis-
sjóður hefði líklega þurft að leggja
bönkunum til aukið eiginfé.
Þola áföll af þessu tagi
Þeirri hættu var hins vegar af-
stýrrt með dómi sem féll í Hæsta-
rétti 16. september 2010. „Dómur
Hæstaréttar nú breytir ekki þeirri
meginniðurstöðu enda er ljóst að
þeir vextir sem gilda til framtíðar
verða lægstu vextir Seðlabankans.“
Í svörum frá Seðlabankanum
kemur jafnframt fram að hann hafi
metið það svo að eiginfjárstaða
bankanna hafi verið nægilega sterk
til þess að þola áföll af því tagi sem
nýr dómur Hæstaréttar felur í sér.
„Lausafjárstaða bankanna er með
ágætum, en það er jafnan helsta
áhyggjuefni Seðlabanka á tímum
óstöðugleika. Líkur á verulegum til-
færslum innistæðna eru hverfandi í
ljósi innstæðutryggingar, gjaldeyr-
ishafta og fyrri reynslu.“
Ekki ógnvekjandi fyrir
fjármálastöðugleika
Samanlagt eigið fé bankanna umfram lögbundið lágmarkshlutfall 160 milljarðar
73
m
a.
89
m
a.
Sterk eiginfjárstaða viðskiptabankanna
Samtals
Heimild: árshlutauppgjör bankanna fyrir 3. fjórðung 2011
463 milljarðar 304 milljarðar 159 milljarðar
28
,8
%
23
,6
%
21
,8
%
13
2
m
a.
21
0
m
a.
12
1
m
a.
14
2
m
a.
68
m
a.
32
m
a.
59
m
a.
Eiginfjárhlutfall Eigið fé Eigið fé m.v. 16% Svigrúm
73
m
a.
89
m
a.
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. FEBRÚAR 2012
Börkur Gunnarsson
borkur@mbl.is
Dómur Hæstaréttar hinn 15. febr-
úar 2012 í máli Sigurðar Hreins Sig-
urðssonar og Mariu Elviru Mendez
Pinedo gegn Frjálsa fjárfestingar-
bankanum mun hafa víðtæk áhrif ef
hann verður talinn fordæmisgefandi
fyrir svipuð mál. Í Vísbendingu, sem
er undir ritstjórn Benedikts Jóhann-
essonar, segir að erfitt sé að segja til
um hver áhrif dómsins verði á ein-
stök lán. Þar skipti miklu hvenær
lánin voru tekin og hve mikið hafi
verið greitt af þeim. En samkvæmt
útreikningum Vísbendingar ættu
lán sem tekin voru í upphafi árs 2005
og greitt var af samkvæmt skilmál-
um að lækka um allt að 30% frá fyrri
útreikningum bankanna, frá 2006
væri talan svipuð en lán sem tekið
var í upphafi árs 2007 ætti að lækka
um 23% og lán frá upphafi árs 2008
um 13%, en Vísbending biður fólk
um að hafa fyrirvara á útreikning-
unum, en ljóst er að um verulegar
upphæðir er að ræða.
Viðbrögð úr fjármálageiranum
Dómur Hæstaréttar í gær virðist
hafa komið mörgum á óvart og vilja
fæstir í fjármálageiranum láta nokk-
uð hafa eftir sér um málið á meðan
lögfræðingar fara yfir það.
Þegar rætt er við Guðnýju Helgu
Herbertsdóttur hjá Íslandsbanka
segir hún að þau leiti ráða hjá sér-
fræðingum sem stendur, enda ljóst
að óvissa ríki um hvernig skuli túlka
dóminn. Aðspurð segist hún ekki
óttast um afdrif bankans, þótt túlk-
un dómsins væri bankanum mest í
óhag verður eiginfjárhlutfall áfram
yfir þeim lágmörkum sem Fjármála-
eftirlitið setur.
Haraldur Eiðsson hjá Arion
banka talar á svipuðum nótum en
hann segir ekki liggja ljóst fyrir
hvert fordæmisgildi dómsins er
gagnvart þeim gengistryggðu lánum
sem Arion banki hefur endurreiknað
og að málið sé í skoðun innan bank-
ans.
Gæti lækkað lán fólks verulega
Menn ringlaðir eftir dóm Hæsta-
réttar Lán gætu lækkað um 30%
Vextir Seðlabankans miðað við LIBOR vexti
25
20
15
10
5
0
Króna Dollar Evra Jen
Munur Á grafinu sem tekið er úr vikuritinu Vísbendingu má sjá muninn á
LIBOR-vöxtum og vöxtum Seðlabankans.
Malcolm Walker, forstjóri Iceland
Foods, fær lán víða að til að fjár-
magna kaupin á 77% hlut slit-
astjórna Landsbankans og Glitnis á
verslunarkeðjunni, fyrir 1,55 millj-
arða punda, jafnvirði liðlega 300
milljarða íslenskra króna. Meðal
annars munu slitastjórnir Lands-
bankans og Glitnis lána Walker 250
milljónir punda, um 48 milljarða
króna.
Walker kvaðst fagna þessari nið-
urstöðu í samtali við Morgunblaðið í
gærkvöld og lýsti sérstakri ánægju
sinni með samningana við slit-
astjórnirnar. Walker stofnaði Ice-
land Foods árið 1970 og rak allt til
ársins 2001, með stigvaxtandi hagn-
aði fyrstu 29 árin, en hraktist svo frá
fyrirtækinu árið 2001.
Þegar Baugur Group og Pálmi
Haraldsson, þá kenndur við Fons,
eignuðust meirihluta í Iceland Foods
snemma árs 2005 var Walker ráðinn
að nýju til keðjunnar og hefur stýrt
henni síðan. Hann á, ásamt fleiri
stjórnendum Iceland Foods, 23%
hlut í keðjunni fyrir. Landsbankinn,
með 66%, og Glitnir, með 10%, eign-
uðust hlutinn í Iceland eftir að Baug-
ur varð gjaldþrota.
Tilboð Walkers upp á 1,55 millj-
arða punda, verður að vera að fullu
fjármagnað innan 42 daga. Sam-
kvæmt fréttum breskra fjölmiðla og
Dow Jones-veitunnar eru Landmark
Group í Dubai, suðurafríska fjárfest-
ingafélagið Brait og fleiri á bak við
tilboðið með Walker. agnes@mbl.is
Tryggði sér Iceland Foods
með hækkun tilboðs síns
Malcolm Walker, stofnandi Iceland, eignast keðjuna á ný
Morgunblaðið/Agnes
Eigandinn Malcolm Walker, stofnandi Iceland, við búgarð sinn í Chester
● Tsuyoshi Kikukawa, fyrrverandi for-
stjóri Olympus og tveir fyrrverandi
framkvæmdastjórar fyrirtækisins voru
teknir fastir í gær. Eins og sagt var frá í
Morgunblaðinu í haust komst upp um
svik innan fyrirtækisins þegar Michael
Woodford var rekinn frá því fyrir að
spyrja óþægilegra spurninga. Við rann-
sókn kom í ljós að stjórnendur Olympus
höfðu falið uppsafnað tap árum saman
sem er talið nema um 1,7 milljörðum
dollara eða 212 milljörðum íslenskra
króna. Þegar upp um þetta komst féll
virði félagsins á markaði um 50%.
Fyrrverandi forstjóri
Olympus fangelsaður
● WOW air mun
hefja áætlunarflug
til Kaunas í Litháen
í júní. Kaunas er
næststærsta borg
Litháens með tæp-
lega 400 þúsund
íbúa. WOW air
verður með tilboð
á flugi til Kaunas til
að byrja með á
23.900 kr. aðra leið. Alls mun WOW air
fljúga til 13 áfangastaða í Evrópu frá og
með 1. júní.
„Við erum mjög ánægð og stolt að
kynna til sögunnar nýjan áfangastað og
áætlunarflug til Kaunas. Það eru mikil
og góð tengsl á milli Íslands og Lithá-
ens,“ segir Baldur Baldursson, fram-
kvæmdastjóri WOW air, í tilkynningu.
WOW flýgur til Litháen
Baldur Baldursson
● Sigurður Helgason, stjórnarformaður
Icelandair, keypti í gær hlutabréf í fyr-
irtækinu fyrir andvirði 13,7 milljóna
króna. Keypti hann 2,5 milljónir hluta á
genginu 5,48, samkvæmt tilkynningu
Icelandair til Kauphallarinnar um við-
skipti innherja. Eftir kaupin á Sigurður
nærri sjö milljónir hluta í félaginu og
markaðsvirði þeirra tæpar 40 milljónir
króna, miðað við gengi gærdagsins.
Alls skiptu fjórar milljónir hluta í Ice-
landair um eigendur í gær.
Keypti í Icelandair
Stuttar fréttir…
!"# $% " &'( )* '$*
+,-./0
+/1.,+
+,-.--
,+.00-
,+.-+2
+3.,3-
+--.1-
+.24+4
+/5.1-
+0+.5-
+,1.,0
+/1.03
+,-.0/
,+.4,0
,+.-43
+3.--4
+--.3
+.240-
+-+
+/+.13
,5/.40,1
+,1.20
+/2.+2
+,1.52
,+.43/
,+.11+
+3.-/+
+-1.+4
+.235/
+/+.24
+0+./-
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á