Morgunblaðið - 17.02.2012, Blaðsíða 35
DAGBÓK 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. FEBRÚAR 2012
Sudoku
Frumstig
5 4 7 2
7 1 9 3
9
9 2 1
5 3
5 4
2 4 8 9
2 7 5 3
5
6 5
1 3 6 7 2
2 9 1 4
3 9
1 2 4 5
7
3 7 2
9 2 7
5 6
8 3
1 2
7 2 6
5 9 8
4
2 6 1 3
9 3 8
9 6
7 5 1 4
8 2 4 5 6 9 1 3 7
1 3 5 4 7 2 6 8 9
9 7 6 8 1 3 5 2 4
6 4 9 7 8 5 3 1 2
3 1 7 9 2 6 4 5 8
2 5 8 3 4 1 9 7 6
4 9 1 2 3 7 8 6 5
7 8 3 6 5 4 2 9 1
5 6 2 1 9 8 7 4 3
7 9 3 5 2 8 1 6 4
1 8 4 9 7 6 5 3 2
5 2 6 1 3 4 7 8 9
8 7 5 2 6 3 4 9 1
9 6 2 4 5 1 3 7 8
4 3 1 8 9 7 2 5 6
3 5 9 6 4 2 8 1 7
2 1 7 3 8 9 6 4 5
6 4 8 7 1 5 9 2 3
4 7 8 6 3 5 2 1 9
9 2 1 4 7 8 3 5 6
3 6 5 9 1 2 4 8 7
5 4 6 8 9 7 1 2 3
7 1 9 3 2 4 5 6 8
2 8 3 1 5 6 7 9 4
6 3 2 7 8 1 9 4 5
1 9 4 5 6 3 8 7 2
8 5 7 2 4 9 6 3 1
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður
að gerast þannig að hver
níu reita lína bæði lárétt
og lóðrétt birti einnig töl-
urnar 1-9 og aldrei má tví-
taka neina tölu í röðinni.
Í dag er föstudagur 17. febrúar, 48. dag-
ur ársins 2012
Orð dagsins: Ef einhvern ykkar brest-
ur visku, þá biðji hann Guð, sem gefur
öllum örlátlega og átölulaust, og hon-
um mun gefast. (Jak. 1, 5.)
Undarlegt er að horfa upp á vinnu-brögð meirihlutans í borgar-
stjórn, hugtakið sjálfstortíming kem-
ur upp í huga Víkverja dagsins. Eru
þau strax orðin svo leið á pólitík að
ekki megi sleppa neinu tækifæri til að
tryggja að lægstvirtir kjósendur segi
örugglega NEI í næstu kosningum?
Listinn er langur, öskutunnurnar og
snjómoksturinn eru ógleymanleg mál
og eiga eftir að fara í bækur fræði-
manna um furðustjórnmál.
x x x
Nú er reynt að klófesta nokkrarkrónur með því að hækka bíla-
stæðagjöld í miðborginni. Kaupmenn
eru auðvitað bálvondir, þeir berjast
dag hvern um bisness við verslunar-
eigendur í Kringlunni og Smáralind
þar sem nóg er af ókeypis bílastæð-
um. Þeim finnst að Samfylkingin og
hinn flokkurinn, þessi með voðalega
drepfyndna nafnið, hafi ákveðið að
miðbærinn eigi bara að vera fyrir
suma.
x x x
Nú ætlar Víkverji ekki að verja of-notkun einkabílsins. Vafalaust
eru margir of latir við að nota annan
ferðamáta, til dæmis fæturna. Og
stundum er hallærislegt að heyra
fullfrískt fólk kvarta undan því að
þurfa að leggja í stæði í meira en
hundrað metra fjarlægð frá staðnum
sem það ætlaði að heimsækja.
x x x
En hættan er sú að síðustu kaup-mennirnir við Laugaveginn gef-
ist endanlega upp þegar þeir fá það á
tilfinninguna að þeir séu illa séðir í
ráðhúsinu. Miðborgin eigi að mati
meirihlutans að vera krúttlegt og
sætt athvarf fyrir menningarlega
sinnaða vinstrimenn á reiðhjólum,
skjól fyrir kapítalismanum, með
kaffihúsum og regnhlífavæddum úti-
listamönnum.
x x x
Getur borgarstjórnarmeirihlutinnekki komið sér upp eigin sýnd-
armiðborg í netheimum? Þá er hún
ekkert að flækjast fyrir okkur hinum.
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 hraustmenni, 8 út-
gerð, 9 skjálfa, 10 forskeyti,
11 tígrisdýr, 13 líkamshlut-
ann, 15 karlfugl, 18 ólmur,
21 blóm, 22 andvarps, 23
gleðin, 24 álf.
Lóðrétt | 2 alfarið, 3 eldar, 4
stóð við, 5 notaði, 6 ójafna, 7
skora á, 12 ekki gömul, 14 að-
stoð, 15 sæti, 16 voru í vafa,
17 grasflöt, 18 biðjum um, 19
raklendið, 20 bráðum.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 hnáta, 4 hnupl, 7 ýlfur, 8 afnám, 9 ill, 11 ilma, 13 erja,
14 súpum, 15 hopi, 17 meis, 20 ósk, 22 úðinn, 23 refur, 24 ansar,
25 tuðra.
Lóðrétt: 1 hlýri, 2 álfum, 3 akri, 4 hjal, 5 unnur, 6 lemja, 10
lepps, 12 asi, 13 emm, 15 hnúta, 16 prins, 18 erfið, 19 sárna, 20
ónar, 21 kryt.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Fyrirvinnan. V-NS.
Norður
♠K10
♥10942
♦ÁKG7
♣KG6
Vestur Austur
♠ÁD964 ♠G872
♥K3 ♥Á65
♦532 ♦98
♣1042 ♣9753
Suður
♠53
♥DG87
♦D1064
♣ÁD8
Suður spilar 4♥.
Einn af spilafélögum Zia í Cavend-
ish-klúbbnum í New York er Kínverj-
inn Chang. Um hann er fátt vitað,
nema hvað hann er „harður nagli“ að
sögn Zia „og enn einbeittari eftir að
konan ól honum son nýlega, enda hef-
ur hann nú þrjá munna að metta“.
Chang var austur, Zia í norður. Vestur
vakti á 2♠, veikum, Zia doblaði og
Chang … ja, hvað skyldi hann hafa
gert?
Chang sagði 3♦ á tvílitinn! Suður
stökk í 4♥, allir pass og tígull út.
Sagnhafi drap og spilaði trompi yfir á
kóng vesturs, sem kom með annan tíg-
ul. Chang tók næsta slag á ♥Á, spilaði
makker sínum inn á ♠Á og fékk fjórða
varnarslaginn á tígulstungu.
Zia var stórhrifinn: „Chang veit að
fórn í 4♠ kostar sitt og velur að búa
frekar í haginn fyrir vörnina.“
17. febrúar 1866
Kristján Jónsson Fjallaskáld
orti hið þekkta kvæði Þorra-
þrællinn 1866 en það hefst á
orðunum „Nú er frost á
Fróni“.
17. febrúar 1943
Vélskipið Þormóður frá Bíldu-
dal fórst á Faxaflóa, á leið frá
Vestfjörðum til Reykjavíkur.
Með skipinu fórst 31 maður,
þar af voru 22 frá Bíldudal.
17. febrúar 1954
Áætlunarbíll fór út af veginum
í Bröttubrekku og niður í Mið-
dalsgil. Bílstjórinn komst út á
síðustu stundu en fimm far-
þegar sluppu ómeiddir þrátt
fyrir sextíu metra fall.
17. febrúar 1968
Kolakraninn sem staðið hafði
við Reykjavíkurhöfn síðan
1927 var rifinn. Hann var um
25 metra hár og setti mikinn
svip á umhverfið.
17. febrúar 1982
Miklir vatnavextir voru í Ell-
iðaánum. Sagt er að vatns-
magn þeirra hafi tvöhundr-
uðfaldast.
17. febrúar 2007
Sýningar hófust á „Laddi 6-
tugur,“ skemmtidagskrá í til-
efni af sextugsafmæli Þórhalls
Sigurðssonar, Ladda. Sýning-
arnar urðu 130 á tveimur ár-
um og var uppselt á þær allar.
Einnig voru seldir 25 þúsund
mynddiskar.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist …
Einar Öder Magnússon, landsliðseinvaldur í hesta-
íþróttum, reiðkennari, hrossabóndi og tamn-
ingamaður, er fimmtugur í dag og fagnar um leið
þrjátíu ára starfsafmæli sem reiðkennari.
„Ég kenni mest erlendis,“ sagði Einar. Hann
sagði reiðkennsluna hafa verið sitt aðalstarf und-
anfarinn aldarfjórðung. Einar kennir mest í
Skandinavíu, en líka mikið í Austurríki og Sviss og
einnig í Þýskalandi og Hollandi. Ýmist eru það
hestamannafélög eða einstaklingar sem fá hann til
að kenna. „Við erum nokkur sem erum í þessu,
þetta er hálfgert sjómannslíf,“ sagði Einar. Hann
segir að útflutningur íslenska hestsins virðist vera eina útrásin sem
hafi gengið hjá Íslendingum. Kreppunnar gætir í hrossasölu erlendis
og víða gætir varkárni. Ástandið hefur þó lítið breyst í Noregi.
Einar á ættir að rekja til Danmerkur og afmælisveislan verður svo-
lítið að dönskum sið. „Við verðum með veglegt morgunkaffi. Ég ætla
að bjóða vinum og vandamönnum upp á rúnnstykki, osta, afmæl-
iskringlu og Gammel Dansk. Ég á von á mörgum gestum og hef feng-
ið margar kveðjur og gjafir frá nemendum mínum í útlöndum. Ég er
ekki ríkur að peningum en að vinum er ég ríkur.“ gudni@mbl.is
Einar Öder Magnússon, 50 ára
„Að vinum er ég ríkur“
Söfnun
Salka Sverris-
dóttir og Embla
María Atladóttir
gengu í hús og buðu
til kaups prjónavöru
sem þær höfðu putta-
prjónað og myndir
sem þær höfðu teikn-
að. Þær söfnuðu
6.170 krónum sem
þær styrktu Rauða
krossinn með.
Flóðogfjara
17. febrúar Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 2.24 3,2 8.56 1,3 14.59 2,9 21.20 1,2 9.18 18.06
Ísafjörður 4.42 1,7 11.11 0,6 17.06 1,5 23.29 0,6 9.33 18.02
Siglufjörður 0.23 0,5 6.47 1,1 13.07 0,3 19.49 1,0 9.16 17.44
Djúpivogur 5.45 0,6 11.44 1,4 18.00 0,5 8.50 17.33
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Einhver kemur auga á hæfileika
þína. Finndu þér athvarf þar sem þú getur
legið og látið þreytuna líða úr þér.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þú leggur samstarfsfólki lið í dag.
Einbeittu þér að því sem þú veist að þér
ber að gera. Hlustaðu á þitt innra sjálf,
þar liggja svörin við spurningunum.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Tækifærið bíður þín handan
hornsins. Hægðu á þér og taktu tíma til
að meta allt það sem er að gerast í lífi
þínu.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þú finnur líklega frekar fyrir innri
stöðugleika og rausnarskap í dag. Einvera
og fallegt umhverfi munu endurnæra þig.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Það færi best á því að þú sýndir
hlutleysi í deilu vina þinna. Einhvers konar
heppni kemur þér í opna skjöldu í dag.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Það er engin ástæða til þess að
láta hugfallast þótt eitthvað blási á móti.
Undantekningin sannar regluna.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Sættu þig við að það er grundvall-
armunur á þér og þeim sem þú ert að
kljást við. Flýttu þér hægt því tilboðin eru
margvísleg og margt að varast.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Þú þarft að viða að þér mikl-
um fróðleik til þess að geta hagað máli
þínu svo að áheyrendur þínir snúist á sveif
með þér.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Það er sjálfsagt að leita ráða
hjá öðrum, þegar maður sjálfur er á báð-
um áttum. Skemmtanalífið og ástamálin
eru í blóma.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þér tekst einhvern veginn ekki
að ná til þeirra sem þú vilt að kynnist
málstað þínum. Þú heyrir krassandi kjafta-
sögu sem snertir manneskju sem þú þekk-
ir.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Gleymdu því að reyna að vera
mest skapandi. Tryggðu að allt sé í lagi
svo innstæðulausar ávísanir eða yfirdrátt-
ur komi þér ekki á óvart.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Veltu hlutunum fyrir þér því oft er
það farsælast sem ekki liggur í augum
uppi. Hvað sem þú gerir gerðu það þá vel.
Stjörnuspá
1. d4 Rf6 2. Rf3 e6 3. Bg5 c5 4. e3 Db6
5. Dc1 Re4 6. Bf4 cxd4 7. exd4 Rc6 8. c3
Be7 9. Rbd2 Rxd2 10. Dxd2 d6 11. Bd3
Dc7 12. De2 Bd7 13. O-O h6 14. Hfe1
g5 15. Bc1 O-O-O 16. b4 Hdg8 17. b5
Ra5 18. Ba3 Kd8 19. Hac1 g4 20. Rd2
Bg5 21. Hc2 h5 22. c4 f5 23. Bb4 h4 24.
Bxa5 Dxa5 25. Rb3 Dc7 26. c5 b6 27.
cxd6 Dxd6 28. De5 Bf4 29. Df6+ Ke8
Staðan kom upp á Skákþingi
Reykjavíkur, Kornax-mótinu, sem lauk
fyrir skömmu í húsakynnum Taflfélags
Reykjavíkur. Þór Valtýsson (1984)
hafði hvítt gegn Oliveri Jóhannssyni
(1699). 30. Hc6! og svartur gafst upp.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Hvítur á leik.