Morgunblaðið - 17.02.2012, Blaðsíða 40
40 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. FEBRÚAR 2012
Geturðu lýst þér í fimm orðum?
Tónlistarmaður, ljúflingur, bróðir, vinur og
frændi.
Hvaða árstíð finnst þér mest spennandi? (spyr
síðasti aðalsmaður, Sigvaldi Kaldalóns)
Íslenska sumarið hlýtur að vera mest spenn-
andi tími ársins. Það er einn langur draumur.
Hver er fremsti leikari allra tíma?
Ég er að horfa á Sopranos frá A-Ö þessa dag-
ana og er að tryllast yfir James Gandolfini.
Hann er rosalegur. Hann leikur svo mikið með
nefinu. Það er galdurinnn. Erfitt að segja
hvort hann sé fremsti leikari allra tíma
samt. En hann er asskoti góður.
Hver er uppáhaldsrithöfundurinn
þinn?
Einar Kárason.
En hver er uppáhaldstónlist-
armaðurinn þinn?
Bob Dylan.
Hvað fær þig til að skella upp úr?
Gott grín með góðum vinum eða
ókunnugum. Svo sá ég Tim &
Erics Billion Dollar Movie um
daginn og hló mikið. Mæli með
því.
Getur þú lýst dansstíl þínum á
djamminu?
Þetta er einhvers konar blanda af
drykkjukrampa og einhver „ran-
dom“ hopp inn á milli. Oft-
ast samt reyni ég að
standa svona til
hliðar við
dansgólfið
og kinka
kolli í
takt við
tónlist-
ina og langa til þess að dansa en gera það helst
ekki.
Hvað færðu ekki staðist?
Unna kjötvöru. Brakandi pepperóní-slísu eða
löðrandi pullu í minn munn! Og góðan bjór.
Basic.
Ertu A- eða B-manneskja?
Ég hef verið að færast frá A til B á síðustu ár-
um og líkar vel. Ég held það eigi betur við mig.
B með dassi af A-i er held ég málið.
Syngurðu í sturtu?
Jáhá. Hiklaust ef mér dettur eitthvað í hug.
Fleetwood Mac eða Van Morrison?
Bæði.
Hrútspungar eða hákarl?
Hvorugt.
Trópí eða Svali?
Svali.
Hvert væri tökunafn þitt ef þú
værir heimsfrægur rappari?
Baldie.
Hver er besti vinur þinn?
Ég er heppinn að eiga marga
bestu vini. Það er næs. En síð-
astliðna mánuði hef ég svona
mest hangið með Gumma og
Sillu í hljómsveitinni minni og
Hildu kærustunni minni.
Áttu þér leyndan hæfileika og ef
svo er þá hvern?
Ég geri trylltan bolog-
nese.
Hvers viltu
spyrja næsta
aðalsmann?
Scottie
Pippen
eða Diet
Pepsi?
Scottie Pippen
eða Diet Pepsi?
Aðalsmaður vikunnar er söngvaskáldið, sjarmörinn og
lífskúnstnerinn mikli Snorri Helgason. Pylsur og pepperóní er
á meðal þess sem er honum hugstætt.
Vilhjálmur Andri Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
Seint verður sagt að Hallgrímur Oddsson
vandi ekki til verka enda tók hann sér góð 17
ár í að vinna og fínpússa plötu sína „Einfald-
lega flókið“. Sjálfur segir hann ýmsar ástæður
fyrir þeim tíma sem tók að koma plötunni út.
„Hugmyndin að plötunni er 17 ára gömul en
ég fékk hana þegar ég var nýhættur í rokk-
hljómsveitinni Stripshow og var að setja upp
söngleik fyrir Fjölbrautaskólann í Ármúla.
Mig langaði að gera þemaplötu og hafa ein-
hverja sögu á bak við en síðan hefur platan
þróast og tekið töluverðum breytingum, t.d.
ætlaði ég í upphafði að tengja við hana ljóð en
svo fannst mér það ekki svo skemmtileg hug-
mynd þegar leið á.“ Helstu ástæðuna fyrir töf-
unum segir Hallgrímur þó vera peningaleysi.
„Það komu tímabil þar sem ég saltaði plötuna
alveg en þegar ég var búinn að vinna mér inn
einhverja peninga átti ég það til að fara fram
úr mér. Þetta hélst því í hendur; peningarnir
og peningaleysið. Þegar ég átti peninga fannst
mér platan ekki tilbúin en þegar ég var blank-
ur fannst mér hún tilbúin. Núna á ég hins veg-
ar peninga og mér finnst platan vera tilbúin og
því ekki eftir neinu að bíða með að gefa hana
út.“ Platan, sem komin er á bílprófsaldurinn,
kemur í verslanir 20. febrúar og ætlar Hall-
grímur að vera með útgáfutónleika 4. mars í
Fríkirkjunni. Þá geta þeir sem kjósa að nota
tæknina nálgast plötuna á gogoyoko.
Bland í boka fyrir tónlistarunnendur
Platan er ansi skemmtilegt samansafn af
tónlistarstefnum og sækir Hallgrímur inn-
blástur víða. „Tónlistin á plötunni er þjóðlaga-
kennd rokktónlist, vísnakennd með djassívafi
og blús. Þetta er því illflokkanlegt en það
mætti segja að platan væri bland í poka af
góðri tónlist.“
Ásamt því að gefa út eigin tónlist syngur
Hallgrímur með karlakórnum Fjallabræðrum
sem gæti þótt sérkennilegt fyrir rokkara eins
og hann ef ekki væri fyrir þær sakir að kórinn
er sannkallaður rokkkór. „Við erum margir
rokkarar í kórnum og við tókum t.d. lagið
Thunderstrike með ACDC í Vestmannaeyjum í
sumar og á Akureyri. Fjallabræður er kór fyr-
ir þá sem vilja eitthvað meira en klassísk kór-
lög.“
Hallgrímur er um þessar mundir að vinna
að plötu með kórnum sem hann segist vona að
verði komin í verslanir fyrir næstu jól. „Upp-
tökur eru byrjaðar og við stefnum að því að
koma plötunni út fyrir jólin.“ Sjálfur segist
hann ekki vera byrjaður á nýrri sólóplötu en
lofar því að næsta plata verði eitthvað skemur
í vinnslu en „Einfaldlega flókið“. „Ætli við
séum ekki að horfa á eitt til tvö ár í næstu
plötu. Ég geri ráð fyrir að sú plata verði með
öðru sniði, til að mynda textar í öðrum tón en
eru á þessari plötu.“
Einfaldlega
flókið í sautján ár
Afrakstur sautján ára vinnu á leið í verslanir
Lokið Einfaldlega flókið kemur senn í búðir.
ÍSLENSKUR TEXTI
t.v. kvikmyndir.is
FÓR BEINT Á TOPPINN Í USA!
4 T I LN E FN INGAR T I LÓSKARSVERÐLAUNAM.A. BESTA MYNDIN
ÁLFABAKKA
10
10
10
10
10
10
12
12
12
12
12
12
VIP
EGILSHÖLL
12
12
12
16
14
16
L
L
L
L
L
L
AKUREYRI
16
LFRÍÐA OG DÝRIÐ m/ísl tali kl. 6 3D
EXTREMELY LOUD & INCREDIBLY CLOSE kl. 5:20 - 10:10 2D
A FEW BEST MEN kl. 8 - 10:40 2D
HUGO kl. 5:20 - 8 2D
ONE FOR THE MONEY kl. 5:50 - 8 - 10:20 2D
UNDERWORLD: AWAKENING kl. 10:10 2D
MAN ON A LEDGE kl. 8 2D
A FEW BEST MEN kl. 5:50 - 8 - 10:10 2D
A FEW BEST MEN Luxus VIP kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:10 2D
EXTREMELY LOUD INCREDIBLY CLOSE kl. 5:40 - 8 - 10:40 2D
BEAUTY & THE BEAST - 3D (FRÍÐA OG DÝRIÐ) M/ ísl. Tali kl. 4 - 6 3D
HUGO Með texta kl. 3 - 5:20 - 8 2D
HUGO Ótextuð kl. 10:40 3D
ONE FOR THE MONEY kl. 8:20 2D
CONTRABAND kl. 8 - 10:20 2D
PRÚÐULEIKARARNIR kl. 3:20 - 5:40 2D
SHERLOCK HOLMES 2 kl. 10:40 2D
FJÖRFISKARNIR M/ ísl. Tali kl. 3:40 2D
STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN M/ ísl. Tali kl. 3:40 2D
16
L
L
L
L
L
10
10
12
12
KRINGLUNNI
EXTREMELY LOUD AND INCREDIBLY CLOSE kl. 8 - 10:40 2D
A FEW BEST MEN kl. 8 - 10:10 2D
SHAME kl. 8 - 10:10 2D
BEAUTY & THE BEAST - 3D (FRÍÐA OG DÝRIÐ) M/ ísl. Tali kl. 6 3D
WAR HORSE kl. 5 2D
THE HELP kl. 5 2DA FEW BEST MEN kl. 8 - 10:30 2D
FRÍÐA OG DÝRIÐ ÍSL TAL Í 3D kl. 6 3D
EXTREMELY LOUD AND INCREDIBLY CLOSE kl. 8 - 10:30 2D
PRÚÐULEIKARARNIR enskt tal ísl texti kl. 6 2D
A FEW BEST MEN kl. 8 - 10:20
CONTRABAND kl. 8
MISSION IMPOSSIBLE 4 kl. 10:20-
SELFOSS
KEFLAVÍK
EXTREMELY LOUD AND INCREDIBLY CLOSE kl. 8 2D
FRÍÐA OG DÝRIÐ M/ ísl. Tali kl. 6 3D
A FEW BEST MEN kl. 8 - 10:10 2D
THIS MEANS WAR kl. 10:30 2D
PUSS IN BOOTS M/ ísl. Tali kl. 6 2D
MÖGNUÐ SPENNUMYND!
NÝTT Í BÍÓ
NÝJASTA MEISTARAVERK
STEVEN SPIELBERG.
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI
hollywood reporter
boxoffice magazine
blurb.com
at the movies
TILNEFNiNGAR TIL ÓSKARSVERÐLAUNA
BESTA MYND
BESTI LEIKARI Í AUKAHLUTVERKI – MAX VON SYDOW
MEISTARAVERK DISNEY Í FYRSTA SKIPTI Í BÍÓ Í
sýnd í takmarkaðan tíma
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI
er sýnd á undan
stuttmyndin
Frá höfundi Death at a Funeral.Frábær
gamanmynd
með
sótsvörtum
húmor
2
TOM HANKS OG SANDRA BULLOCK
ERU STÓRFENGLEG Í ÞESSARI ÁHRIFARÍKU MYND
BYGGÐ Á METSÖLUBÓK.