Morgunblaðið - 17.02.2012, Side 41
MENNING 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. FEBRÚAR 2012
Vilhjálmur Andri Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
Uppistandshópurinn Mið-Ísland hef-
ur sprengt utan af sér hvern staðinn
á fætur öðrum og er uppistand
þeirra orðið svo vinsælt að nú dugir
ekkert minna en stóri salurinn í
Þjóðleikhúsinu. „Trixið er að byrja á
litlum stað sem auðvelt er að fylla og
vinna sig svo smátt og smátt upp í
stærri sali landsins,“ segir Halldór
Halldórsson, einn uppistandara Mið-
Íslands. Að sögn Halldórs var það
fyrir hálfgerða slysni að hópurinn
hefur í tvígang fyllt stóra sal Þjóð-
leikhúsins. „Við erum búnir að vera í
Leikhúskjallaranum í eitt og hálft ár
en skyndilega losnaði stóri salurinn
og Þjóðleikhúsið bauð okkur hann ef
við vildum prófa. Það var síðan upp-
selt á fyrstu sýninguna áður en við
vissum af og síðan þá næstu svo nú
stefnum við á þriðju sýninguna á
föstudaginn.
Frumkvöðlar sem ryðja veginn
Ég vil ekki ganga svo langt að full-
yrða að Mið-Ísland séu frumkvöðlar í
uppistandi á Íslandi. Það hafa ýmsir
komið á undan okkur þó svo ég viti
ekki hver ber ábyrgð á fyrsta uppi-
standinu hér á landi. Sjálfir lítum við
líka mikið til Skandinavíu en frænd-
ur okkar eru að gera mjög góða hluti
og uppistand búið að vera mjög vin-
sælt í Skandinavíu um nokkurt
skeið.“ Halldór segir að Jón Gnarr sé
eflaust sá íslenski grínisti sem hefur
haft mest áhrif á hópinn enda var
hann með vinsælar sýningar eins og
„Ég var einu sinni nörd“ sem hafi
slegið í gegn á þeirra uppvaxt-
arárum. „Ég man þegar hann kom í
félagsmiðstöðina mína þegar ég var
yngri og sagði nokkra brandara. Það
var ekki talað um annað í margar
vikur á eftir. Hann hafði því vissu-
lega mikil áhrif á okkur.“ Þrátt fyrir
hógværð Halldórs er víst að Mið-
Ísland hefur rutt veginn fyrir aðra
uppistandara og er í vissum skilningi
hópur frumkvöðla í uppistandi á Ís-
landi.
Sparka ekki í liggjandi menn
„Það er kannski klisja að segja
þetta en efni okkar er mjög fjöl-
breytt og breiddin mikil í hópnum
þannig að það er eitthvað fyrir alla í
uppistandinu.“ Aðspurður um sjálfa
brandarana segir Halldór að strax í
upphafi hafi þeir sett sér þá vinnu-
reglu að sparka aldrei í liggjandi
menn. „Við gerum ekki grín að litla
manninum eða þeim sem eiga bágt.
Okkar skotmörk eru mennirnir með
breiðu bökin og þeir sem eru að gera
það gott. Til að mynda gerum við grín
að stjórnmálamönnum og listamönn-
um eins og Mugison sem nýlega seldi
30 þúsund plötur.“ Til að koma í veg
fyrir ósmekklegt grín segir Halldór
að þeir áminni hver annan þegar ein-
hver kemur með ósmekklegan
brandara. „Í þeim tilfellum þegar
einhver er með háð sem gæti sært
spyrjum við okkur alltaf hvort það
muni ekki enda illa fyrir okkur og
hvort það sé smekklegt. Línan á milli
þess að vera kvikindislegur og fynd-
inn er ekki alltaf skýr og þess vegna
nálgumst við hana ekki.
Frægðin og útrásin
Í mars hefst sjónvarpsþáttur okk-
ar sem ber heitið Mið-Ísland og svo
erum við að fara að taka upp næsta
uppistand og það verður sýnt á Stöð
2 ásamt þættinum.“ Frægðin er
nokkuð sem Halldór er ekki of upp-
tekinn af. „Það gengur rosalega vel
núna en ég er alltaf hræddur við það
þegar eitthvað gengur vel á Íslandi
að þá fari allt í rugl stuttu seinna. Við
erum ekki viðskiptamenn og þorum
ekki að taka of mikla áhættu t.d. með
að flytja inn stórar stjörnur.“ Þá seg-
ir Halldór í léttum tón að endalaust
fall krónunar sé þeirra helsta fyr-
irstaða í að flytja inn stjörnur frá
Bandaríkjunum en nú bíði þeir hins
vegar spenntir eftir að allt fari fjand-
ans til í Grikklandi svo hægt verði að
fara í útrás til Evrópu þegar evran
hrynur. „Ætli við flytjum þá ekki
uppistandið út og opnum innistæðu-
reikninga á Bretlandi,“ segir Halldór
með bros á vör.
Fylla Þjóðleikhúsið
Ætla að flytja út uppistandið og opna innlánsreikninga á
Bretlandi í sannkölluðum Gleðibanka Stútfullt á hverja
sýningu í stóra sal Þjóðleikhússins á uppistand Mið-Íslands
Mið-Ísland
Uppistand Mið-Ísland hópurinn er kominn með eigin sjónvarpsþátt og fyllir
stóra salinn í Þjóðleikhúsinu, sem tekur 500 í sæti, á hverri sýningu.
Þrjár nýjar myndir verða frum-
sýndar um helgina og þar að auki
þrívíddarútgáfa af teiknimyndinni
Fríða og dýrið sem kom út 1991.
This Means War
Heimsfrumsýning verður á þessari
grínhasarmynd á föstudaginn.
Myndin er um tvo leyniþjón-
ustumenn sem beita öllum brögðum
til að klekkja hvor á öðrum þegar
þeir verða ástfangnir upp fyrir
haus af sömu konunni. Í aðal-
hlutverkum í myndinni eru Chris
Pine,Tom Hardy, og Reese Wit-
herspoonMyndin er í leikstjórn
McG
Rotten Tomatoes: 72%
Imdb: Einkunnagjöf ekki komin
Extremely Close &
Incredibly Loud
Þegar hinum unga og uppfinninga-
sama Óskari verður ljóst að faðir
hans er á meðal þeirra sem látið
hafa lífið þegar tvíburaturnarnir
hrundu ákveður hann að á bak við
föðurmissinn hljóti að leynast ein-
hver sérstök ástæða sem hann verð-
ur að uppgötva. Dularfullur lykill
sem faðir hans hafði átt leiðir Ósk-
ar síðan áfram í leit sinni að
skránni sem lykillinn gengur að
enda sannfærist hann um að þar sé
að finna þau svör sem hann leitar.
Rotten Tomatoes: 65%
Imdb: 64/100
A Few Best Men
Félagarnir David, Graham, Tom og
Luke eru af þeirri gerð sem tekur
lífið og tilveruna ekkert of alvar-
lega enda sjá þeir ekki tilefni til
þess.
Þegar einn þeirra, David, tilkynnir
að hann hafi hitt hina einu réttu og
ætli sér að kvænast henni koma
hins vegar vöflur á hina þrjá enda
þurfa þeir að ferðast alla leið til
Ástralíu til að geta verið viðstaddir
þessi merku tímamót í lífi Davids.
Þeir láta sig samt hafa það en um
leið er búið að tryggja að brúð-
kaupið sjálft á eftir að snúast upp í
farsa eins og allt annað sem þessir
kumpánar koma nálægt.
Rotten Tomatoes: 72%
Imdb: 69/100
Fríða og dýrið í 3D
Myndin er sígild Disney-teikni-
mynd sem margir Íslendingar ættu
að muna eftir úr barnæsku. Myndin
var frumsýnd fyrst árið 1991 og
ætti því að gleðja bæði eldri aðdá-
endur myndarinnar og nýja kyn-
slóð sem fær tækifæri til að njóta
myndarinnar með foreldrum sínum
sem eitt sinn sátu sjálfir spenntir
sem börn yfir myndinni.
Rotten Tomatoes: 92%
Imdb: 80/100
Bíófrumsýningar
Gamanmyndir og þrívídd
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%NÁNAR Á MIÐI.ISGLERAUGU SELD SÉR 5%
THIS MEANS WAR KL. 5.45 - 8 - 10.15 14
THIS MEANS WAR LÚXUS KL. 5.45 - 8 - 10.15 14
STAR WARS EPISODE 1 3D ÓTEXTUÐ KL. 5 10
SAFE HOUSE KL. 5.30 - 8 - 10.30 16
SKRÍMSLI Í PARÍS 3D KL. 3.30 L
CHRONICLE KL. 6 - 8 - 10 12
CONTRABAND KL. 8 - 10.30 16
ALVIN OG ÍKORNARNIR 3 KL. 3.40 L
TOPPMYNDIN Á ÍSLANDI Í DAG!
FRÉTTABLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS
THIS MEANS WAR KL. 8 - 10 14
SAFE HOUSE KL. 10 16
STAR WARS EPISODE 1 3D ÓTEXTUÐ KL. 5.40 10
CHRONICLE KL. 6 12
FRÁBÆR GRÍNHASARMYND SEM ENGIN MÁ MISSA AF!
FT/SVARTHÖFÐI.IS
N.R.P., BÍÓFILMAN.IS A.E.T, MORGUNBLAÐIÐ
H.V.A. FRÉTTABLAÐIÐ
THIS MEANS WAR KL. 5.45 - 8 - 10.15 14
STAR WARS EP1 3D ÓTEXTUÐ KL. 6 - 9 10
SAFE HOUSE KL. 8 - 10.30 16
THE DESCENDANTS KL. 5.30 L
LISTAMAÐURINN KL. 6 - 8 - 10 L
TOTAL FILMBOXOFFICE MAGAZINE
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
THIS MEANS WAR Sýnd kl. 6 - 8 - 10
SAFE HOUSE Sýnd kl. 5:45 - 8 - 10:20
SKRÍMSLI Í PARÍS Sýnd kl. 4 (750kr.)
SKRÍMSLI Í PARÍS 3D Sýnd kl. 4 (950kr.)
THE GREY Sýnd kl. 8 - 10:20
IRON LADY Sýnd kl. 5:50
ALVIN OG ÍKORNARNIR 3 Sýnd kl. 4 (750kr.)
M Ö G N U Ð S P E N N U M Y N D !
ÞEGAR FLUGVÉLIN HRAPAÐI
VAR FERÐALAGIÐ RÉTT AÐ BYRJA
V.J.V.
-SVARTHÖFÐI
HHHHH
ÞRÆLMÖGNUÐ SPENNUMYND!
TOTAL FILM
HHH
BOXOFFICE
MAGAZINE
HHH
FRÁBÆR GRÍNHASARMYND SEM
ENGINN MÁ MISSA AF!
-bara lúxus sími 553 2075Miðasala og nánari upplýsingar
www.laugarasbio.is
ÍSLENSKT
TAL
TOPPMYNDIN Á ÍSLANDI Í DAG!
Tilboð í bíó GILDIR Á ALLAR SÝNINGARMERKTAR MEÐ RAUÐU