Morgunblaðið - 17.02.2012, Page 44
FÖSTUDAGUR 17. FEBRÚAR 48. DAGUR ÁRSINS 2012
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550
1. Flugstjórinn dó
2. Ef ég lendi í helvíti rotna ég þar …
3. Brúarfoss rak stjórnlaust
4. Ein skammvinn stroka inn á kyn…
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Popphljómsveit Íslands, Sálin hans
Jóns míns, ætlar að slá sér upp á
Nasa á morgun eins og segir í frétta-
tilkynningu. Þar kemur og fram að fá-
heyrð lög fái að fljóta inn á sett
kvöldsins.
Sálin hans Jóns míns
á Nasa á morgun
Hollenski plötu-
snúðurinn Tiësto
mun koma fram í
Vodafonehöllinni
10. mars næst-
komandi. Um er
að ræða einn
þekktasta plötu-
snúð heims í dag
og hefur vegur
hans vaxið gríðarlega á undanförnum
árum. Hann er margverðlaunaður og
þess má geta að Jónsi okkar söng inn
á plötu hans frá 2009, Kaleidoscope.
Tiësto spilar í
Vodafonehöllinni
Aðstandendur Lollapalooza í Síle
hafa nú tilkynnt helstu listamennina í
ár. Foo Fighters eru aðalnúmerið 1.
apríl en degi fyrr er það Björk sem
mun ráða ríkjum. Mun hún flytja lög
af Biophiliu en einnig eldra efni. Fram
kemur að um 50
manns muni taka
þátt, tónlist-
armenn,
kór
og
dans-
arar.
Björk flytur Biophiliu
í Síle í lok mars
Á laugardag NV 8-18 m/s, hvassast á NA-horninu. Snýst í vestan
8-13 seinnipartinn en styttir upp austantil. Frost 2 til 12 stig.
Á sunnudag SV 5-10 m/s með dálítilli snjókomu. Hlýnar í veðri.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG NA 13-20 m/s norðantil á landinu með snjó-
komu. Mun hægari vindur sunnantil og stöku él, en hvessir einnig úr
norðri þar seinnipartinn og styttir upp. Frost 0 til 7 stig.
VEÐUR
Mikil spenna er á Sauðár-
króki fyrir fyrsta bikarúr-
slitaleik Tindastóls í körfu-
bolta, og líka í Keflavík þar
sem heimamenn vonast eft-
ir sínum fyrsta sigri í bik-
arnum um árabil. Sauð-
krækingurinn Helgi Rafn
Viggósson segir að lítið sé
talað um annað en leikinn
fyrir norðan og Magnús Þór
Gunnarsson úr Keflavík
segir að Facebook-brjálæði
sé komið af stað syðra. »4
Spenna og Face-
book-brjálæði
Alfreð Gíslason, þjálfari þýska topp-
liðsins Kiel, kveðst hlakka mikið til að
fá einn besta handboltamann heims,
Guðjón Val Sigurðsson, í sínar raðir í
sumar. Hann er líka ánægður með
gengi sinna manna en Kiel hefur unn-
ið fyrstu 20 leiki sína í
þýsku 1. deildinni og
er með þrjá stóra
titla í sigtinu. »1
Alfreð ánægður og
hlakkar til að fá Guðjón
Hafnarfjarðarliðin Haukar og FH eru
áfram í tveimur efstu sætunum í N1-
deild karla í handboltanum eftir sigra
í gærkvöld. Haukar fóru furðulétt
með Fram í Safamýri en FH lenti í
mesta basli með Aftureldingu í
Kaplakrika. Valsmenn komu fram
hefndum gegn HK og sigruðu í Kópa-
vogi og Akureyri innbyrti tvö stig á
Seltjarnarnesi. »2-3
Haukar og FH unnu
bæði en á ólíkan hátt
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
„Ég hef átt mér þann draum að
keppa fyrir hönd Kanada á Ólympíu-
leikum alveg síðan ég fylgdist með
leikunum í Salt Lake City árið 2002.
Þó að ég sé ung að aldri stefni ég
ótrauð á Ólympíuleikana í Sochi árið
2014,“ segir Kate Hanly, 18 ára
skautadrottning í Kanada, fullu nafni
Katherine Laufey Hanly, en móður-
ætt hennar er komin af íslenskum
vesturförum í Winnipeg.
Kate hefur skipað sér í hóp efni-
legustu skautahlaupara Kanada og
varð nýlega Kanadameistari í sínum
aldursflokki. Þá hefur hún sett
heimsmet í unglingaflokki í 500, 1.000
og 1.500 metra skautahlaupi. Um síð-
ustu helgi vann hún í 1.000 m hlaupi á
meistaramóti N-Ameríku í skauta-
íþróttum og var 0,4 sekúndum frá því
að setja nýtt Kanadamet í þeirri
grein. Með þessum árangri hefur
hún unnið sér keppnisrétt á heims-
meistarmóti unglinga í skautahlaupi,
sem fram fer í Japan eftir hálfan
mánuð. Stefnir hún að því að komast
í kanadíska landsliðið í skautahlaupi,
en segir samkeppnina harða.
Æfir við bestu aðstæður
Kate segist hafa verið níu eða tíu
ára þegar hún byrjaði að æfa skauta-
hlaup, þá búsett með fjölskyldunni í
Toronto. Nú búa þau í Calgary og
æfir Kate íþrótt sína við bestu að-
stæður í skautahöllinni sem byggð
var vegna Ólympíuleikanna þar í
borg 1988. Hún hefur ekki langt að
sækja skautahæfileikana en móðir
hennar, Joann Margaret John-
son, og móðursystir, Gillian
Kristin Johnson, voru með
fremstu skautahlaupurum
Kanada á sínum tíma. Stund-
ar móðirin íþróttina ennþá og
varð nýverið í fjórða sæti á sterku al-
þjóðlegu móti fyrir hlaupara eldri en
50 ára.
Foreldrar Kate eru bæði læknar
og starfa í Calgary, faðirinn Patrick
Hanly er fæddur á Írlandi. Móðirin
er Vestur-Íslendingur; dóttir George
Johnsons, sem var læknir, ráðherra
og fylkisstjóri í Manitoba, og Doris
Blöndal. Börn þeirra sex hafa verið
áberandi í störfum sínum, m.a. Janis
Gudrun, sem er öldungadeildar-
þingmaður í Kanada, Gillian Kristin
er kunnur rithöfundur og Jón Blön-
dal er athafnamaður í viðskiptalífinu.
Dauðlangar til Íslands
„Ég hef aldrei komið til Íslands en
dauðlangar að fara. Foreldrar mínir,
frændsystkini, afi og amma hafa
heimsótt Ísland og haldið góðum
tengslum við landið,“ segir Kate, sem
skírð er í höfuðið á langömmu sinni,
Laufeyju. „Því miður náði ég aldrei
að kynnast henni en mamma segir að
ég sé mjög lík henni. Hún var stór-
kostleg kona og bakaði gómsætar
kleinur,“ segir Katherine Laufey að
endingu.
Stefnir ótrauð á Ólympíuleikana
Kanadameistari í skautahlaupi
Með þrjú heimsmet í unglingaflokki
Vesturíslensk Katherine Laufey Hanly á harðaspretti á skautasvellinu, nýorðin Kanadameistari í sínum flokki og er á leið á HM unglinga í Japan.
Afi Katherine Laufeyjar; George
Johnson, var sonur Laufeyjar
Benediktsdóttur og Jónasar
Georges Johnsons, sem voru
bræðrabörn. Feður þeirra voru
Benedikt og Halldór Jónssynir,
synir Jóns Benediktssonar, pró-
fasts á Hólum í Hjaltadal, Hóla-
Jóns, er fluttist vestur
ásamt fjórum sonum
1887. Amman; Doris
Blöndal, var dóttir
Ágústs Blöndals
læknis og Guðrúnar
Stefánsdóttur í
Winnipeg, frænka
Halldórs Blön-
dals, fyrrv. ráð-
herra.
Hóla-Jón og
Blöndalsætt
VESTUR-ÍSLENDINGUR