Morgunblaðið - 09.03.2012, Síða 14

Morgunblaðið - 09.03.2012, Síða 14
14 | MORGUNBLAÐIÐ K rakkar í dag eru allt öðruvísi en þegar ég byrjaði í ljósmyndun árið 1993. Þau eru opin og frjálsleg í myndatökum; einfaldlega miklu ánægðari með sig en áður,“ segir ljósmyndarinn Krissý. „Krakkar í dag eru einnig dugleg að taka myndir sjálf og mynda hvert annað. Eru fyrir vikið ekki jafn stressuð að koma í myndatöku og var oft raunin hér áður. Þau eru upplitsdjörf, kát og glöð og slíkt smitar alltaf út frá sér,“ segir Krissý. Ekki er einasta að krakkar séu upplitsdjarfari en áður; starf ljós- myndarans hefur einnig breyst og er að sumu leyti orðið auðveldara. Stafræn tækni ljósmyndunar hefur breytt miklu. Áður komu foreldrar með börnin á fermingardeginum sjálfum þegar spennan var í há- marki og kannski erfitt fyrir krakk- ana að slaka á og vera þau sjálf. Fanga persónuleikann Auðvitað tíðkast enn í dag að myndirnar séu teknar á ferming- ardaginn. Hitt er þó miklu algeng- ara að myndirnar séu teknar tveim- ur til þremur vikum áður, segir Krissý. „Algengt er að stelpurnar komi í myndatökuna sama dag og prufugreiðslan er tekin og taki þá jafnvel með sér eitthvað sem teng- ist áhugamálinu. Það getur verið hvað sem er; svo sem skíði, fim- leikaföt, hljóðnemi og svo fram- vegis. Úrval mynda verður fyrir vikið margfalt meira og verkefni ljósmyndarans er að fanga persónu- leika hvers og eins og gleðiglamp- anum í augunum,“ segir Krissý og heldur áfram „Krakkarnir eiga að fá að njóta sín til fulls á myndunum, enda er fermingin stór áfangi og þau stödd á þeim tímapunkti þegar lífið allt er að breytast. Æskuárin senn að baki og fullorðinsárin framundan.“ Fermingartískan er alltaf ný Tískan breytist frá einu misseri til annars og þess sér eðlilega stað á myndum. Fermingartískan er alltaf ný. Krissý, í samvinnu við Elsu Nielsen, býður meðal annars upp á flotta bakgrunna fyrir ferm- ingarmyndirnar. Myndin sjálf er tekin í hlutlausu umhverfi mynd- vers en svo er fermingarbarnið fært, ef svo má segja, inn í nýtt um- hverfi. Í þessu sambandi bjóðast margir mismunandi bakgrunnar sem hægt er að velja úr. „Við seljum hins vegar og aðeins takmarkað magn af hverjum bak- grunni þar sem við höfum alls ekki hugsað okkur þetta sem fjöldafram- leiðslu. Þessar myndir eru seldar sér og fylgja ekki með í myndatök- unni; þær eru sjálfstætt listaverk. Nú er í fyrsta sinn boðið upp á fjóra mismunandi bakgrunna. Í hverri möppu er alls 21 mynd og einnig er hægt að fá þær á diski í þeirri upplausn sem óskað er.“ Mynda kannski í kirkjunni Fermingarmyndirnar eru oftast teknar á stofu, enda tæpast hægt að treysta á veður í íslenskum að- stæðum, segir Krissý. Í dag er einnig vinsælt að taka myndirnar úti – slíkt fer einfaldlega eftir ósk- um fólks og segist Krissý jafnan og glöð mæta þeim. „Til dæmis kom ungur strákur um daginn með skíðabrettið sitt með sér og þá tókum við myndirnar bara úti sem kom ofsalega vel út. Hins vegar hefur aldrei komið til þess að fermingarmyndirnar séu teknar í kirkjunni sjálfri. En hug- myndin er skemmtileg, myndir teknar þar gætu vafalaust orðið virkilega skemmtilegar þar sem umhverfið þar er skemmtilegur og tignarlegur bakgrunnur.“ sbs@mbl.is Listamaður Stíllinn í fermingarmyndunum getur verið með ýmsu móti. Margir leyfa sköp- unargleðinni að njóta sín á veggjum eins og sést á þessari mynd af Kjartan Sævarssyni. Blómarós Krakkarnir eru opin og frjálsleg og einfaldlega miklu ánægðari með sig en áður, segir ljósmyndarinn Krissý. Þessi fallega stúlka á myndinni heitir Athena Neve Leex. Tímarnir breytast og mennirnir með, er inntak orða Kristínar Þorgeirs- dóttur. Hún er best þekkt sem Krissý og hefur starf- að sem ljósmyndari í bráð- um tuttugu ár. Ferming- armyndatökur eru stór hluti af starfi hennar því allir vilja myndir frá myndir frá merkisdeginum. Morgunblaðið/Ómar Myndasmiður Krakkar eiga að fá að njóta sín til fulls á myndunum, enda er ferming stór áfangi, segir Krissý. ’Krakkarnir eiga aðfá að njóta sín tilfulls á myndunum,enda er fermingin stóráfangi. Þau þá stödd á þeim tímapunkti þeg- ar lífið allt er að breyt- ast. Æskuárin senn að baki og fullorðinsárin framundan. Ná gleðiglampanum í augunum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.