Morgunblaðið - 09.03.2012, Blaðsíða 46
46 | MORGUNBLAÐIÐ
G
ott nýtt rúm er sígild
fermingargjöf og mikill
annatími að renna up hjá
Rekkjunni í Faxafeni.
„Ætli þetta sé ekki næst-
stærsti sölutími ársins á eftir jól-
unum,“ segir Steinn Kári Ragn-
arsson, framkvæmdastjóri
verslunarinnar, og bætir við að ef
eitthvað sé hafi salan aukist síðustu
ár. „Þar er sennilega skýringarinnar
að leita í breyttum áherslum í kjölfar
kreppu. Fólk leitar í að gefa gagn-
legar gjafir sem endast og nýtast
fermingarbarninu vel.“
Steinn segir algengast að það séu
foreldrarnir sem gefi barninu ferm-
ingarrúmið og tekur öll fjölskyldan
þátt í valinu saman. „Rúm er gjöf sem
ætti ekki að gefa óvænt, því þiggjand-
inn þarf að fá að taka þátt því að finna
réttu dýnuna í takt við sínar þafir.
Máta þarf rúmin og velja dýnu sem
passar við stærð, lögun og óskir
hvers og eins.“
Algengast er að fermingarbörn fái
rúm sem eru „ein og hálf“ breidd.
Verðbilið segir Steinn að spanni svo
allt frá ódýrustu valkostunum upp í
dýrustu og vönduðustu dýnurnar.
„Vitaskuld skiptir máli að gjöfin end-
ist lengi og er þá gott að hafa að leið-
arljósi að kaupa vandaða vöru frá við-
urkenndum framleiðanda. Við hér
hjá Rekkjunni seljum dýnur frá King
Koil sem framleitt hefur dýnur í 114
ár og er fyrirtæki sem þekkt er fyrir
vandaða smíði.“
Ólíkir líkamar
Síðan þarf að máta rúmin vel og
vandlega og Steinn segir ekki óvit-
laust að fermingarbarnið taki jafnvel
með sér uppáhaldskoddann í búðina
og prófi sig svo áfram. „Reyndur
sölumaður getur veitt vandaða leið-
sögn við valið og á að þekkja vel
hvaða dýnugerðir henta fólki með
mismunandi líkamsvöxt og þarfir.
Rúmið þarf að aðlagast líkamanum
vel, styðja við á réttum stöðum, en
mikilvægast er að leyfa tilfinning-
unum að ráða för og velja sér það
rúm sem líkamanum finnst gott að
liggja í.“
Ekki þarf að örvænta ef það kemur
svo í ljós að dýnan er ekki eins þægi-
leg og hún virtist í fyrstu. „Á öllum
okkar dýnum er skiptiréttur, svo ef
rúmið hentar ekki þá einfaldlega
skiptum við því út fyrir dýnu sem við-
skiptavininum líkar betur.“
Stöðugar framfarir verða í hönnun
og smíði dýna. Flestir þekkja t.d. í
dag hversu miklu skiptir að gorm-
arnir séu góðir, hvorki of stífir né of
harðir, og mörgum þykir ómissandi
að sofa ofan á lagi af þrýstijöfnunars-
vampi. Tækninýjungin er gel sem
jafnar hitann í rúminu yfir nóttina. „Í
dýnunni er þá gellag ofarlega í rúm-
inu, ofan á gormunum, en gelið getur
dregið í sig hita frá líkamanum og
getur bætt svefn hjá þeim sem finnst
þeir hitna og svitna yfir nóttina.“
ai@mbl.is
Fjölskyldan velur dýnuna saman
Það þarf að gefa sér
góðan tíma og fá fag-
lega aðstoð þegar leit-
að er að nýrri dýnu
handa fermingar-
barninu. Ekki galið að
taka með sér uppá-
halds koddann í búðina
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Svefn Steinn Kári Ragnarsson segir áhugaverðar nýjungar komnar á markaðinn, eins og dýnur með gel-lagi sem jafnar hitann yfir nóttina.
’Í dýnunni er þá gellagofarlega í rúminu, of-an á gormunum, en geliðgetur dregið í sig hita frálíkamanum og getur bætt
svefninn hjá þeim sem
finnst þeir hitna mikið og
svitna yfir nóttina.“
Góð dýna er undirstaða góðs nætursvefns, en það skiptir líka máli að eiga
góðan kodda, góða sæng og vönduð sængurföt. „Val á kodda er mikið
smekksatriði og fer allt eftir svefnvenjum og smekk hvers og eins. Sama er
með sængurnar, en gaman er að sjá þá þróun sem er að verða í gerð þeirra
og leysir ýmis vandamál sem margir kannast við,“ segir Steinn. „Við selj-
um t.d. svokallaðar hitajöfnunarsængur frá þýska framleiðandanum
Kauffman, en í þeim er að finna efni sem ýmist tekur til sín eða bægir frá
sér hita og nær fram mjög jöfnu hitastigi undir sænginni í gegnum alla
nóttina.“
Rúmfötin segir Steinn að þurfi að vera úr góðri bómull, en neytendur
skiptist í tvo hópa þegar kemur að vali á lit og mynstrum: sumir vilja hvítt
og hreint á meðan aðrir eru hrifnastir af litum og mynstrum. „Dýnuhlíf er
svo góð fjárfesting. Með henni getur dýnan verið eins og ný í fjölda ára og
hægt að koma í veg fyrir að matur sem sullast niður og önnur óhöpp skilji
eftir leiðinlega bletti.“
Koddinn og sængin þurfa
líka að vera í lagi