Morgunblaðið - 09.03.2012, Side 47

Morgunblaðið - 09.03.2012, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ | 47 RB-rúm rum@rbrum.is Dalshraun 8 220 Hafnarfirði Sími 555 0397www.rbrum.is Alþjóðleg viðurkenning fyrir framúrskarandi árangur í framleiðslu í rúmum og springdýnum. ÚRVAL FYLGIHLUTA Rúmteppi, púðar, pífur, sængurverasett, dýnuhlífar, náttborð og fleira. EFT IR Þ ÍNU HÖF ÐI RB-rú min o g gafl ar eru sérsm íðuð eftir þ ínum ósku m. RB-rúm eru í heims- samtökunum ISPA, sem eru gæðasamtök fyrirtækja sem sérhæfa sig í framleiðslu og hönnun springdýna. GJÖFINFÆST HJÁ RB FERMINGAR INNB ORG UN F YLGI R HVE RJU F ERM INGA RRÚM I 5.000 KR. Opið alla virka daga frá 8 - 18 og á laugardögum frá 10 - 14 Það er vandasamt að finna fermingargjöf sem endist vel og nýtist vel. Tískuvörur verða orðnar hallærislegar áður en langt um líður, tjöld og svefn- pokar slitna og skemmast og raftæki úreldast með ógn- arhraða. Falleg og sígild leðurtaska getur verið rétta gjöfin ef ætl- unin er að fermingarbarnið eigi og noti gjöfina sína alla ævi. Allir þurfa að eiga góða og hæfilega sparilega tösku sem hentar vel undir farangurinn eða fyrir stuttan skreppitúr út í sumarbústað, nú eða sem hálfgert herbergisstáss uppi á skáp. Leðrið er sterkt og ending- argott, en ef taskan er vönduð og gerð úr góðum efnum ætti hún bara að verða fallegri með aldrinum. Hver veit nema mörgum áratugum eftir ferm- inguna muni leðurtaskan vera alsett fögrum rispum sem minna á ferðalög um framandi slóðir. ai@mbl.is Verður bara fallegri með aldrinum Alla jafna er ekki hægt að mæla með því að gefa gælu- dýr, en stundum getur verið viðeigandi að nánustu ætt- ingjar láti draum ferming- arbarnsins um heimilishund eða feitan kött verða að veru- leika. Að eignast gæludýr kallar á þroska og mikla vinnu, og for- eldrar barnsins þurfa að vera tilbúnir að standa straum af fóðrun, þjálfun, bólusetn- ingum, gjöldum, tryggingum og tilfallandi sjúkrakostnaði. En ef allir eru sáttir við að bæta við nýjum heimilismeð- lim og hugsa vel um hann í 15 ár eða svo, þá er auðvitað ekk- ert sem jafnast á við að eiga góðan hund að vini, eða kisu til að knúsa og kela. Langbest er svo auðvitað að velja fullorðin og heimilislaus dýr, t.d. frá Kattholti eða Dýra- hjálp, enda er dýrið þá komið með þroskaðan persónuleika og búið að temja sér góða hegðun. ai@mbl.is Morgunblaðið/RAX Ábyrgð og vinátta Unga kynslóðin hefur alla burði til að leggja heiminn að fótum sér, og sakar ekki að byrja snemma. Útlandaferð getur verið bráðsniðug gjöf. Að bjóða fermingarbarninu til ættingja í útlöndum, nú eða splæsa í ferð með öðru for- eldrinu, getur verið leið fyrir barnið til að byrja að læra á heiminn, upplifa menningu ólíkra landa og tileinka sér að sýna hæfilega aðgát meðan ferðast er um ævintýralega staði. Flugfélögin bjóða flest upp á handhæg gjafakort og í sam- ráði við foreldra eða aðra ætt- ingja má deila kostnaðinum við flug, gistingu og uppihald á nokkrar hendur. Hver veit svo nema ferða- bakterían hreiðri um sig og þegar komið er fram á fullorð- insár verði fermingarbarnið á þeytingi til fjarlægra heims- horna, sannkallaður heims- borgari. ai@mbl.is Morgunblaðið/Brynjar Gauti Fyrstu skref heims- borgarans

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.