Morgunblaðið - 09.03.2012, Blaðsíða 49
Það tíðkaðist hér áður fyrr að fermingarbörn fengju reiðhjól að
gjöf og þótti mikill fengur að. Hjólið veitti einstakt ferðafrelsi til
að skjótast á milli bæja og bæjarhluta.
Í dag liggja leiðir strætisvagna um allar byggðir og krakkar
hafa fullkomnað þá list að láta skutla sér, en það þýðir ekki að
vandað reiðhjól komi ekki í góðar þarfir.
Vitaskuld er kjörið að stuðla að því að barnið hreyfi sig
reglulega, og ef krakkinn temur sér t.d. að hjóla til og frá skóla
er næsta víst að það skilar sér í betri heilsu og bættri líðan.
Hver veit svo nema hjólið verði notað í leiðangra um nátt-
úruperlur í nágrenni borgarinnar, og jafnvel einn daginn í langa
reiðtúra út fyrir bæjarmörkin.
ai@mbl.is
Ferðafrelsi og hreyfing
MORGUNBLAÐIÐ | 49
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
Þessar uppskriftir finnur þú á gottimatinn.is, ásamt fjölda girnilegra
uppskrifta fyrir fermingarveisluna. Kíktu á gottimatinn.is og finndu
þína rétti fyrir veisluna.
gottimatinn.is
uppskrift að
fermingu
kjúklingavængir
með gráðaostsídýfu
Tortilla með klettasalati,
fetaosti og rjómaosti
bruschettur með
mozzarella
súkkulaðimús
með jarðarberjaskyri
Muna að gera nóg, ha
nn
Gústi frændi át 20 væ
ngi
í veislunni í fyrra!
Þessa er hægt að gera
2 dögum
áður og geyma bara í
kæli.
Súkkulaði-
kaffikaka
Ef fermingarbarnið sýnir vís-
indum áhuga þá gæti vandaður
stjörnukíkir mögulega verið þúfan
sem veltir hlassinu og varðar leið-
ina að ævintýralegum rannsóknum
við krefjandi háskóla og stofnanir.
Komandi kynslóðir munu upp-
götva ótrúlegustu leyndarmál til-
verunnar og velgengni þeirra og
val byggist á þeim stuðningi sem
þau fá á yngri árum.
Stjörnukíkirinn á myndinni er
frá Meade, er með innbyggðan
staðsetningarbúnað og getur leit-
að að fyrirbrigðum á himninum á
mjög einfaldan hátt. Að vísu er
hér á ferð rándýr græja, sem kall-
ar á sterkefnaða ættingja eða að
heill hópur leggi rausnarlega í
púkk, en svo má líka alltaf finna
ódýrari tegundir, eða jafnvel
gleðja fermingarbarnið með gjafa-
korti á námskeið sem tengist
áhugasviðinu.
ai@mbl.is
Horft til
himins með
höfuðið hátt
Tónlist er einhver besta gjöf
sem hugsast getur, og ósk-
andi væri að allir kynnu að
leika á hljóðfæri. Margan
unglinginn dreymir um að
eignast kannski trommu-
sett, rafmagnsgítar, nú
eða píanó. Hljóðfærin eru
auðvitað misdýr og
draumarnir ekki þeir
sömu hjá öllum börnum,
en það er vel hægt að
finna skemmtilegt og
gott hljóðfæri fyrir
hæfilega fjárhæð og al-
veg öruggt að kveikja einhvern
neista.
Það má reyna að giska á hvað fell-
ur best í kramið. Kassagítar er auð-
vitað nokkuð öruggt val, en svo má
reyna eitthvað frumlegra eins og t.d.
klarinettu. Klarinettan er líka þann-
ig hljóðfæri að ekki fer mikið fyrir
henni ofan í skólatösku, í svefn-
herbergisskúffu nú eða í farangr-
inum á leið út í nám við erlendan há-
skóla.
Ef hljóðfæri er gefið sem gjöf er
svo vitaskuld gráupplagt að bæta við
nokkrum kennslustundum í tónlist-
arskóla, en annars er merkilegt hvað
börnin geta lært af sjáfsdáðum með
því að prufa sig áfram og horfa á
nokkur myndskeið á YouTube.
ai@mbl.is
Aldrei of
seint að
læra á
hljóðfæri