Morgunblaðið - 09.03.2012, Síða 50
50 | MORGUNBLAÐIÐ
B
aldvina Karen Gísladóttir segir
útivistarvörur vera fermingargjöf
sem geti haft mikil og góð áhrif á
fermingarbarnið. „Ég held að ef
fólk reynir það einu sinni að fara í
skemmtilega útilegu og upplifa íslenska
náttúru á góðum degi, þá sé ansi erfitt að
smitast ekki af bakteríunni fyrir lífstíð.“
Karen er sölumaður hjá Ellingsen og seg-
ir mjög mikið um að útivistarvarningur rati í
fermingarpakkann. „Það er sígilt að gefa
svefnpoka, tjald nú eða bakpoka á ferming-
ardaginn, en svo sjáum við líka sölu í vörum
eins og ullarnærfötum og ýmsum tólum og
tækjum sem auðvelda útivistina.“
Þannig virðast sjónaukar einnig vera mjög
spennandi fermingargjöf og svo fjölnotatólin
frá Leatherman. „Mér sýnist algengt að
strákar fái sjónauka, en við eigum þá til í
öllum stærðum og gerðum. Leatherman-
fjöltólin eru svo tæki sem hæglega geta
fylgt eigandanum ævina á enda, ekki bara í
útileguna heldur líka út í nám eða þegar
byrjað er að búa.“
Auðvelt að finna rétta stærð
Að velja svefnpoka, tjald eða útivist-
arfatnað segir Karen að sé ekki mikill vandi.
Sölumennirnir séu þaulreyndir og ansi
lunknir við að hjálpa til við að giska á réttu
stærðina, en svo sé líka alltaf hægt að hafa
samband við foreldra fermingarbarnsins til
að fá að vita hvaða stærð af jakka, buxum
eða skóm á að velja. „Þegar velja þarf liti er
auðvitað mjög gott að leita í sterka liti eins
og rauðan, bláan eða grænan, enda öryggis-
atriði að vera vel sýnilegur á fjöllum. En það
er líka hægt að velja svart enda litur sem fer
flestum vel og gerir flíkina enn hentugri til
daglegs brúks innanbæjar.“
Ekki þarf heldur að hafa miklar áhyggjur
af því að gjöfin falli ekki í kramið, jafnvel
þótt unglingar kunni oft að virðast ansi mikl-
ir innipúkar. „Þetta er einmitt sá tími í lífinu
sem barnið byrjar að ferðast meira á eigin
spýtur, fara í útilegur með vinum og jafnvel
á útihátíðir og þá ómissandi að eiga gott
tjald og hlýjan svefnpoka. Síðan er góður
bakpoki til margs nytsamlegur,“ segir hún og
bætir við að lítið sé um að fermingarbörn
komi í verslunina til að skila eða skipta gjöf-
um.
Langsniðugast segir Karen ef ættingjar
stilla saman strengi sína og gefa ferming-
arbarninu heilt sett til útivistar. „Vissa und-
irstöðuhluti þarf til að geta byrjað að stunda
útivist af fullu kappi, og ef einn kaupir svefn-
pokann getur annar séð um tjaldið og þriðji
keypt góða gönguskó. Fermingarbarnið van-
hagar þá ekki um neitt.“
ai@mbl.is
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Útilega Viðlegubúnaður er sígild fermingargjöf og raunar allt sem þarf í ferðalagið. „Mér sýnist algengt að strákar fái sjónauka,“ segir Baldvina Karen Gísladóttir í Ellingsen.
„Ómissandi að eiga
tjald og svefnpoka“
Bakpokar, sjónaukar og fjölnotatól
eru vinsæl gjöf á fermingardaginn.
Góð gjöf getur komið innipúka á
bragðið og útivistarbakterían er
fljót að gera vart við sig í kjölfarið. ’Ekki þarf heldur að hafamiklar áhyggjur af því aðgjöfin falli ekki í kramið, jafnvelþótt unglingar kunni oft að virð-ast ansi miklir innipúkar. „Þetta
er einmitt sá tími í lífinu sem
barnið byrjar að ferðast meira á
eigin spýtur, fara í útilegur með
vinum og jafnvel á útihátíðir og
þá ómissandi að eiga gott tjald
og hlýjan svefnpoka