Morgunblaðið - 09.03.2012, Side 52
Fágað Ballettskór og
tjullspils gefa til
kynna að hér sé ball-
erína að fermast.’Iðulega hverfist þáskreytingin um ein-hvern hlut sem hefurmeð áhugamál viðkom-andi að gera.
Margs konar borðar
og skraut má fá til
að lífga upp á
veisluborðin.
Þ
að svífa sígildir andar yfir vötnum þegar borðskreytingarnar fyr-
ir fermingar í ár eru annars vegar, segir Jóhanna M. Hilm-
arsdóttir, deildarstjóri í blóma- og gjafavörudeild hjá Garð-
heimum. Sem fyrr eru það bláir tónar sem strákarnir kjósa og
bleikir hjá stelpunum. Jóhanna, eða Ninna eins og hún er jafnan
kölluð, bendir þó sérstaklega á einn lit sem henni þykir áberandi í ár. „Sá
túrkísblái kemur mjög sterkur inn í ár, myndi ég segja.“ Þarf engan að
undra þar sem túrkísblár hefur löngum þótt með fallegri tónum blás litar.
„Annars hallast strákarnir að dökkbláum í vor og stelpurnar um leið hrifn-
ar af sterkbleikum. Þær hafa svo annan vinsælan valkost þar sem fjólublár
er,“ bætir Ninna við.
Áhugamálin fléttuð saman við
Það gerist sífellt algengara að skapa tengingu milli áhugamála ferming-
arbarnanna og svo skreytinganna í veislunni. Í þeim efnum hefur Ninna
séð margar skemmtilegar útfærslur. „Iðulega hverfist þá skreytingin um
einhvern hlut sem hefur með áhugamál viðkomandi að gera. Fótbolti,
takkaskór, ballett-tjullpils ásamt ballettskóm, og froskalappir eru allt dæmi
um íþróttaiðkun viðkomandi sem er gert hátt undir höfði í skreytingunum“
segir Ninna. „Einnig er algengt að hljóðfærum sé fléttað inn í skrautið og í
því sambandi má nefna bæði lúðra og bongótrommur. Í rauninni er hægt
að nota allt, því alltaf er hægt að flétta viðkomandi hlut inn í skreytinguna.
Snjóbretti væri engin undantekning, það væri mjög gaman að sjá það ger-
ast,“ bætir hún við.
Fersk blóm í aðalhlutverki
Þegar kemur að aðalskreytingum segir Ninna fersk blóm spila stærstu
rulluna. „Fersk afskorin blóm eru mest notuð í aðalskreytinguna, en ým-
islegt annað er með á borðunum þar sem gestirnir sitja. Þar er meira um
gerviskraut á borð við fiðrildi, kúlur ýmiskonar og allra handa renninga og
borða sem setja ákaflega fallegan svip á borðin sem þeir prýða. Litirnir
sem eru í boði eru af öllu mögulegu tagi og því ættu allir að geta fundið
renning við sitt hæfi. En hver sem útfærslan er þá erum við meira en
tilbúin að aðstoða og ráðleggja fólki við að ákveða skreytingarnar í ferm-
ingarveislunni,“ segir Ninna í Garðheimum að endingu.
jonagnar@mbl.is
Túrkísblár kemur sterkur inn
Það er af nógu að taka í Garðheimum þegar borðskreyt-
ingar eru annars vegar. Ekki veitir af þar sem útfærsl-
urnar verða sífellt eintaklingsbundnari.
Sportlegt Þannig
gæti ferming-
arskreytingin litið
út hjá sundkappa.
Froskalöpp nouð
sem kertastjaki.
Morgunblaðið/Ómar
52 | MORGUNBLAÐIÐ