Morgunblaðið - 09.03.2012, Side 55

Morgunblaðið - 09.03.2012, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ | 55 Tilvalin fermingargjöf M yndavélar eru vinsæl fermingargjöf og segir Halldór Jón Garðarsson, vöru- stjóri Canon- neytendavara, að ferming- artímabilið sé einn annasamasti tími ársins í verslun Nýherja í Borgartúni. „Við erum með ýmsar vörur sem henta vel sem ferming- argjafir, s.s. tölvubúnað, sjónvörp, hljómtæki og prentara, en mynda- vélarnar eru áberandi vinsæll kostur og um leið alls kyns auka- hlutir sem þeim fylgja s.s. töskur, þrífætur, minniskort og ljósa- stúdíó.“ Í fermingarpakkann rata myndavélar í öllum verðflokkum, frá hagkvæmum og nettum va- samyndavélum yfir í dýrari og veglegri vélar sem mæta ýtrustu kröfum fagljósmyndara. „Vinsæl- ustu tegundirnar eru á verðbilinu 16.900 kr. upp í 32.900 kr. Má t.d. nefna Canon Powershot A2200 sem kostar 21.900 kr. og er með 14 megapixla myndflögu, 28 mm gleiðlinsu og getur tekið upp myndskeið í háskerpu. Þar fær fólk mjög mikið fyrir peninginn og getur í ofanálag valið um ólíka liti. Síðan fylgir minniskort með vél- inni,“ útskýrir Halldór. Canon EOS-línan er svo fyrir metnaðarfyllstu og kröfuhörðustu ljósmyndara. „Þar sjáum við verð á bilinu 94.900 kr. og upp í u.þ.b. 160.000 kr. Vélar eins og Canon EOS 1100D og EOS 600D eru kostir sem óhætt er að mæla með fyrir fermingarbörn og gefa ótal- marga notkunarmöguleika. Með þeim vélum fylgir einnig minn- iskort en að auki ljósmynd- anámskeið.“ Hægt að leggja í púkk Halldór segir kjörið fyr- irkomulag að ættingjar ferming- arbarnsins taki saman höndum um að kaupa vandaða myndavél, en svo er líka hægt að gefa unga áhugaljósmyndaranum ýmsa gagnlega aukahluti sem bæta við notagildi nýju vélarinnar, eða þeirrar vélar sem hann á fyrir. „Það er t.d. afar mikilvægt að eiga góða tösku fyrir myndavélina, sem jafnvel er með pláss fyrir auka- hluti. Þrífótur er líka mjög snið- ugur kostur, fæst í mörgum verð- flokkum og býður upp á skemmtilega möguleika við myndatökuna. Síðan má alltaf kaupa gott flass, nú eða spennandi linsu.“ Að velja réttu vélina getur samt virst æði flókið. Fyrir óinnvígða getur verið erfitt að skilja hvaða tæknilegu eiginleikar og mælitölur skipta mestu máli. Eru það mega- pixlarnir sem gera útslagið, ör- gjörvinn eða kannski linsan? „Besta skrefið held ég að sé að leita í vörumerki sem óhætt er að treysta og þekkt eru fyrir gæði. Ekki þarf að kaupa dýrustu vél- arnar til að fá mjög góða græju sem tekur prýðisgóðar myndir og er með skemmtilegum eiginleikum til að skapa við mismunandi að- stæður. Í minni og ódýrari vél- unum er gott að leita að vél með vandaðri innbyggðri linsu, góðum örgjörva sem tryggir hraða og góða myndatöku og hæfilega stórum og skörpum skjá.“ ai@mbl.is Morgunblaðið/Sigurgeir S. Filmverk Það er vandi að velja myndavél. Halldór Jón Garðarsson hjá Nýherja segir að líklega skiptimestu að velja vörumerki, þekkt að gæðum. „Ekki þarf dýrustu vélarnar til að fá græju sem tekur prýðisgóðar myndir.“ Leitað að réttu myndavélinni Góð myndavél þarf ekki að vera dýr gjöf. Við valið borgar sig að hafa í huga að linsan sé góð og ör- gjörvinn snöggur að vinna. Margir eiga í dag snjallsíma með innbyggðri myndavél og gætu hugsað sem svo að óþarfi sé að fjárfesta sérstaklega í myndavél. Halldór bendir á að þótt allra bestu snjallsímarnir geti margir tekið ágætar ljósmyndir jafnist gæði þeirra mynda ekki á við myndirnar úr jafnvel ódýrustu va- samyndavélum Canon. „Það verð- ur að hafa í huga að miklu getur skipt fyrir myndgæðin að hafa bæði góða linsu, kröftugan ör- gjörva og myndflögu. Þannig fæst mynd sem hægt er að stækka og eiga betur við eftir á. Þótt myndir úr snjallsímum komi oft ágætlega út á tölvuskjánum koma takmark- anirnar í ljós þegar stækka þarf myndirnar, skera til eða prenta út. Þegar við tökum myndir viljum við fanga minningarnar og það er auðvitað leiðinlegt ef myndin er þá ekki nægileg góð.“ Myndavél eða snjallsími? Spurning um hvað gera má við myndina

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.