Morgunblaðið - 09.03.2012, Síða 64
64 | MORGUNBLAÐIÐ
Þ
að væri ofsagt að inntak ferming-
arfærðslunnar hefði höfðað sér-
staklega til mín. Með tímanum hef ég
þó lært að meta hana og séð hvað þau
siðferðilegu gildi sem kristin trú
byggist á eru mikilvæg í daglegu lífi og í raun
nauðsynleg. Fermingin er einn af stóru áföng-
unum í lífi mínu og mjög eftirminnileg,“ segir
Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsókn-
arflokksins.
Foreldrar Höskuldar eru þau Þóra Steinunn
Gísladóttir og sr. Höskuldur Þórhallsson, prest-
ur á Akureyri, sem nú er látinn. „Faðir minn
var lengi prestur á Möðruvöllum í Hörgárdal og
bæði í sveitinni og síðar inni á Akureyri fylgd-
um við systkinin pabba mikið eftir í hans dag-
legu störfum. Fórum mjög gjarnan með honum
í messur og fyrir vikið kunni ég kynstrin öll af
sálmum, ritúalið og auðvitað trúarjátninguna
þegar að fermingarfræðslunni kom haustið
1986. Pabbi leit svo á að ég hefði þokkalegan
bakgrunn og gaf því eftir að ég þyrfti að mæta í
hvern einasta tíma í fermingarfræðslunni, en
þeir voru einmitt á sama tíma og handboltaæf-
ingar hjá KA. Íþróttirnar fengu sem sagt að
hafa forgang. Einhverja eftirþanka hafði pabbi
víst vegna þessa, fannst erfitt að skikka aðra til
að mæta, en vonandi hef ég ekki haft minni
skilning en aðrir þeir krakkar sem fermdust í
Akueyrarkirkju vorið 1987,“ segir Höskuldur.
Tískan endurspeglar tíðarandann og Hösk-
uldur segir fermingarmyndirnar af sér nánast
broslegar í dag.
Ljósblá föt og lindaborði
„Björg systir mín fékk að velja á mig blá
fermingarfötin; stuttan jakka, ljósbláan linda-
borða og slaufu í stíl. Ég man ekki eftir því að
hafa notað fötin nema í þetta eina skipti, en ein-
hvers staðar eru þau þó til inni í skáp,“ segir
Höskuldur. „Svo var haldin hin fínasta veisla á
heimili foreldra minna við Hamarstíginn á Ak-
ureyri þangað sem mætti allt það fólk sem fjöl-
skyldunni er kærast. Fermingargjöfin frá for-
eldrum mínum var væn peningaupphæð sem
var eyrnamerkt kaupum á hljómflutnings-
tækjum, sem ég eignaðist reyndar aldrei og
aurarnir fóru fljótt í freistingar þessara ára.“
sbs@mbl.is
Er einn af stóru áföngnunum í lífinu
Prestssonurinn kunni sálmana og
ritúalið. Fékk að sleppa ferming-
arfræðslunni fyrir handboltaæf-
ingar. Kristin gildi mikilvæg í dag-
legu lífi, segir Höskuldur
Þórhallsson.
Höskuldur Siðferðileg gildi trúarinnar eru
mikilvæg í daglegu lífi og eru í nauðsynleg.
Feðgar Höskuldur Þórhallsson þingmaður við altari Akureyrarkirkju á fermingardegi sín-
um 1987 með föður sínum, sr. Þórhalli Höskuldssyni sem lengi þjónaði Akureyringum.
M
eð klunnalegri hendi
skrifaði ég nafn mitt
í allar þær góðu bæk-
ur sem ég fékk í
fermingargjöf. Flest-
ar þeirra á ég enn í dag og því er
fermingardagurinn í raun alltaf að
minna á sig. Frá föðurbróður mín-
um, Eysteini Jónssyni ráðherra,
og hans fjölskyldu fékk ég Sturl-
ungu. Einnig fékk ég Heims-
kringlu og Njálu frá öðrum ætt-
ingjum og fyrir aura sem mér
áskotnuðust keypti ég Íslend-
ingasögurnar,“ segir Þór Jak-
obsson veðurfræðingur.
Lærði sálma og ritning-
argreinar
Þór var fermdur 14. maí 1950 af
föður sínum, sr. Jakob Jónssyni,
sem þá var prestur við Hallgríms-
kirkju í Reykjavík. „Ég á líka enn
Passíusálmana í litlu broti sem
foreldrar mínir gáfu mér „til
minningar um fermingardaginn
með bæn til Guðs um fagra fram-
tíð – frá mömmu og pabba,“ eins
og ritað var á saurblað,“ segir Þór.
Um miðja 20. öldina var aðeins
búið að byggja kjallarahvelfingu
Hallgrímskirkju, sem er undir nú-
verandi kór kirkjunnar. Þetta var
ágæt og rúmgóð bygging á vísu
síns tíma og þarna fermdust stórir
árgangar barna úr Hlíðum, Norð-
urmýri og af Skólavörðuholti.
„Nei, ég tel mig á engan hátt hafa
notið þess að vera sonur fræð-
arans. Faðir minn lagði mikið í
fermingarfræðsluna og samdi
meira að segja sérstaka bók sem
við fylgdum þennan vetur, 1949 til
1950,“ segir Þór. „Bókin nefndist
Vegurinn – námskver i kristnum
fræðum til undirbúnings ferm-
ingar og samkvæmt henni man ég
að við áttum að fletta upp einstaka
Fékk Sturlungu, Heimskringlu og Njálu
Prestsonur Tel mig ekki hafa notið þess að vera sonur fræðarans, segir
Þór Jakobsson. Fékk kynstur af kjörbókmenntu í fermingargjöf.
Jakobssynir Bræðurnir Jón Einar og Þór, til hægri. Myndin var tekin af
Vigfúsi Sigurgeirssyni sem myndaði jafnt forseta sem fermingarbörn.
Þór Jakobsson veður-
fræðingur fermdist hjá
föður sínum í kjallara-
hvelfingu Hallgrímskirkju.
Íslendingasögurnar fyrir
aurana. Í myndatöku ári
síðar með bróður sínum
hjá Vigfúsi.
Fermingardagurinn
er að minna á sig
Í vitund flestra er fermingardagurinn sem vörðubrot
og áningarstaður á langri leið. Eftir vetrarlanga
fræðslu játast ungt fólk hinum kristna sið og því fagna
ættingjar og vinir með barninu. Minningar sem fólk á
um þennan dag eru með ýmsu móti – og almennt end-
urspegla þær viðhorf líðandi stundar. Prestssynirnir
tveir segja hér sögu sína og útvarpsdrottningin sem
las kverið við ljósastaur og hélt svo með foreldrum
sínum í leiðangur um breiðstræti Lundúnaborgar.