Morgunblaðið - 21.04.2012, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. APRÍL 2012
Polarolje
Við Hárlosi
Mýkir liðina
Betri næringarupptaka
Fyrirbyggir exem
Betri og sterkari fætur
Pöntunarsímar 698 7999 og 699 7887
„Hundurinn minn var búinn að
vera í meðferðum hjá dýralækni
í heilt ár vegna húðvandamála
og kláða, þessu fylgdi mikið
hárlos. Hann var búinn að vera á
sterum án árangus. Reynt var að
skipta um fæði sem bar heldur ekki
árangur. Eina sem hefur dugað
er Polarolje fyrir hunda. Eftir að
hann byrjaði að taka Polarolje
fyrir hunda hefur heilsa hans tekið
stakkaskiptum. Einkennin eru horfin
og hann er laus við kláðann og
feldurinn orðinn fallegur.“
Sigurlín Birgisdóttir, hundaeigandi
FRÉTTASKÝRING
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
Tveggja daga opinber heimsókn
Wen Jiabao, forsætisráðherra Kína,
hófst í gær og átti ráðherrann bæði
fundi með Jóhönnu Sigurðardóttur
forsætisráðherra og öðrum ráð-
herrum úr ríkisstjórn Íslands og
forseta Íslands, Ólafi Ragnari
Grímssyni. Aðalefni fundanna voru
viðskipta- og efnahagsmál, fjárfest-
ingar og samstarf, en bæði Jóhanna
og Ólafur ræddu einnig um stöðu
mannréttindamála í Kína við for-
sætisráðherrann. Heimsóknin hefur
þegar skilað sínu þar sem skrifað
var undir sex samninga að loknum
fundi forsætisráðherranna og ann-
arra embættismanna í Þjóðmenn-
ingarhúsi í gær en á morgun mun
Wen kynna sér jarðhitanýtingu á
Íslandi og skoða Þingvelli, Gullfoss
og Geysi.
Forsætisráðherrann kínverski
lenti ásamt fríðu föruneyti í Kefla-
vík laust fyrir hádegi í gær en með
honum í för var hundrað manna
fylgdarlið, þeirra á meðal ellefu
ráðherrar, tuttugu og átta hátt-
settir embættismenn og tuttugu
blaðamenn frá tveimur stærstu
ríkisfjölmiðlum Kína. Jóhanna Sig-
urðardóttir forsætisráðherra og
Össur Skarphéðinsson utanríkis-
ráðherra tóku á móti Wen undir
hljóðfærablæstri lúðrasveitar, sem
lék þjóðsöngva landanna við til-
efnið.
Þakkaði góðar móttökur
Talsverð öryggisgæsla er í kring-
um heimsókn forsætisráðherrans
og var hluta Hverfisgötu m.a. lokað
á meðan forsætisráðherrarnir og
embættismenn funduðu í Þjóð-
menningarhúsi eftir hádegi.
Við upphaf fundarins, þar sem
m.a. var rætt um tvíhliða samstarf
ríkjanna, viðskiptatækifæri og
starfsemi íslenskra fyrirtækja í
Kína, sagðist Jóhanna fagna því að
fundurinn væri haldinn á þeim
tímamótum þegar 40 ár væru liðin
frá því að Ísland og Kína tóku upp
stjórnmálasamband. Þá sagði hún
ánægjulegt að aukin samstarfs-
tækifæri hefðu skapast fyrir fyrir-
tæki í löndunum tveimur og einnig
að það hefði komið henni á óvart við
undirbúning heimsóknar forsætis-
ráðherrans hversu mörg íslensk
fyrirtæki væru með hluta starfsemi
sinnar í Kína.
Forsætisráðherrann kínverski
þakkaði ríkisstjórn Íslands og ís-
lensku þjóðinni góðar móttökur og
sagðist m.a. samgleðjast Íslend-
ingum sem hefðu verið að fagna
fyrsta degi sumars.
Að fundi loknum var skrifað und-
ir samningana sex. Utanríkis-
ráðherrar ríkjanna tveggja undir-
rituðu rammasamning ríkisstjórna
Íslands og Kína um norðurslóða-
samstarf og utanríkisráðherra Ís-
lands, Össur Skarphéðinsson, og
ráðherra hafmála í Kína undirrit-
uðu samkomulag byggt á ramma-
samningnum um aukið samstarf á
sviði sjávar- og norðurslóðarann-
sókna.
Þá skrifuðu Össur og ráðherra
auðlinda- og landnýtingar í Kína
undir samkomulag um jarðhita-
samstarf í þróunarríkjum og starf-
andi iðnaðarráðherra og forstjóri
kínverska fyrirtækisins BlueStar
undirrituðu sameiginlega vilja-
yfirlýsingu íslenska ríkisins og
BlueStar um byggingu kísilmálm-
vinnslu, allt að 65 þúsund tonn.
BlueStar er aðaleigandi Elkem í
Noregi, sem aftur er eigandi Járn-
blendiverksmiðjunnar á Grundar-
tanga.
Efnahags- og viðskiptamál voru
þó ekki einu málin á dagskrá fund-
arins í Þjóðmenningarhúsi því Jó-
hanna ræddi m.a. um stöðu mann-
réttindamála í Kína, samfélagsleg
réttindi og alþjóðlegar skuldbind-
ingar við kollega sinn og kynnti fyr-
ir honum hugmyndir um aukið sam-
starf Íslands og Kína á sviði
jafnréttismála. Forseti Íslands,
Ólafur Ragnar Grímsson, notaði
einnig tækifærið til að ræða um
mannréttindarmál við forsætisráð-
herrann kínverska, sem heimsótti
Bessastaði seinnipart dags og átti
fund með forsetanum áður en hann
hélt til kvöldverðar í Hörpu.
Ræddu fríverslunarsamning
Fyrr um daginn átti Össur
Skarphéðinsson utanríkisráðherra
fund með Chen Deming, við-
skiptaráðherra Kína sem fer með
utanríkisviðskipti, en ráðherrarnir
ræddu m.a. yfirstandandi fríversl-
unarsamningaviðræður Íslands og
Kína. Óskaði utanríkisráðherra eft-
ir því að tollalækkanir á fisk-
afurðum tækju gildi strax við gildis-
töku samningsins og eftir því að
loftferðasamningur ríkjanna yrði
útvíkkaður. Báðir ráðherrar fögn-
uðu auknum viðskiptum milli land-
anna.
Wen mun á morgun skoða Þing-
velli, Gullfoss, Geysi, Kerið og
Hellisheiðarvirkjun í fylgd ráðherra
og ráðuneytisstjóra forsætisráðu-
neytisins. Hann er sjálfur jarðfræð-
ingur að mennt og mun ætla að
kynna sér jarðhitanýtingu á Íslandi.
Viðskiptatengslin styrkt
Jarðhiti og norðurslóðir efst á baugi í opinberri heimsókn Wen Jiabao, forsætisráðherra Kína
Skrifað undir sex samninga um viðskipti og rannsóknir Íslenskir ráðamenn ræða mannréttindi
Morgunblaðið/Kristinn
Heimsókn Í frétt frá fréttaveitu Reuters segir að Íslandsheimsókn ráðherrans hafi kynt undir áhyggjum í Evrópu
af því að Kínverjar hyggist nýta sér efnahagsvanda Íslendinga til að ná undirtökum á norðurslóðum.
Morgunblaðið/Kristinn
Undirritun Skrifað var undir sex samninga að loknum fundi ráðherra og
embættismanna í Þjóðmenningarhúsinu í gær.
Morgunblaðið/Eggert
Fundað Wen Jiabao heimsótti Bessastaði í gær og fundaði með forseta Ís-
lands sem m.a. ræddi við hann um mannréttindamál.
Efnt var til mótmæla við Hörpu í gærkvöldi, þar sem
Wen Jiabao, forsætisráðherra Kína, snæddi kvöldverð
ásamt fylgdarliði sínu og íslenskum ráðamönnum. Þegar
mest lét tóku um hundrað manns þátt í mótmælunum en
hópurinn samanstóð m.a. af Vinum Tíbets og stuðnings-
mönnum Amnesty International, sem mættir voru til að
mótmæla mannréttindabrotum kínverskra stjórnvalda.
Fólkið stóð við framhlið Hörpu en Wen fór inn um bíla-
kjallara og því ólíklegt að hann hafi orðið var við mót-
mælin. Hins vegar var baulað á Jóhönnu Sigurðardóttur
forsætisráðherra þegar hún gekk inn í bygginguna. Birg-
itta Jónsdóttir, þingmaður Hreyfingarinnar, var ein
þeirra sem tóku þátt í og hvatti til mótmælanna en hún er
formaður Vina Tíbets.
Fyrr um daginn tóku nokkrir mótmælendur sér stöðu
við Þjóðmenningarhúsið, þar sem Hverfisgötu hafði ver-
ið lokað, en þeir báru m.a. skilti þar sem farið var fram á
að forsætisráðherrann kínverski tæki á mannréttinda-
brotum gagnvart meðlimum Falun Gong í Kína.
Mótmælin fóru öll friðsamlega fram.
holmfridur@mbl.is
Mótmæltu mannréttindabrot-
um kínverskra stjórnvalda
Morgunblaðið/Ómar
Mótmælt Tíbeski fáninn á lofti við Hörpu.
Friðsamleg mótmæli við
Hörpu og Þjóðmenningarhús
Skannaðu kóðann
til að sjá meira um
heimsókn Wen.