Morgunblaðið - 21.04.2012, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. APRÍL 2012
Ekki má vanmeta mikilvægi þessað í fréttatilkynningu stjórn-
arráðsins í vikunni skuli hafa verið
tekið fram að verkefnisstjóri sókn-
aráætlunar landshluta skuli hafa
verið ráðinn „að undangenginni
auglýsingu“.
Viðbúið er að án þessara upplýs-inga hefði einhverjum dottið í
hug að ráðningin kynni að vera af
pólitískum toga, en nú er engin
ástæða til að efast um að hæfasti
umsækjandinn var
ráðinn.
Og þar sem ráðn-ingin fór fram
„að undangenginni
auglýsingu“ er aug-
ljóst að ekki var búið
að ráðstafa stöðunni
fyrirfram. Þar með
er líka augljóst að
hinir 42 sem sóttu
um starfið voru lak-
ari kandidatar.
Fyrir JóhönnuSigurðardóttur, sem þolir eng-
ar pólitískar stöðuveitingar eins og
hún hefur sýnt fram á í störfum sín-
um, er hins vegar skemmtileg til-
viljun að þær Hólmfríður Sveins-
dóttir, nýráðinn verkefnisstjóri,
skuli eiga svo lík áhugamál.
Vissulega hlýtur að vera ánægju-leg tilviljun að verkefnisstjór-
inn skuli hafa starfað um árabil í
flokkum með Jóhönnu og verið vara-
þingmaður Samfylkingarinnar.
Ekki síður að hin nýráðna skulihafa setið í umbótanefnd Sam-
fylkingarinnar eða að hún eigi sæti í
framkvæmdaráði Já Ísland.
Svona tilviljanir eru alltaf gleði-legar „að undangenginni aug-
lýsingu“.
„Að undangenginni
auglýsingu“
STAKSTEINAR
Hólmfríður
Sveinsdóttir
Jóhanna
Sigurðardóttir
Bodensee telst með fallegustu vötnum Evrópu og á landamæri að Þýskalandi,
Austurríki og Sviss. Þessi töfrandi ferð hefst á flugi til München. Þaðan er haldið
til Füssen þar sem ævintýrahöllin Neuschwanstein verður skoðuð. Gist í Füssen
og síðan ekið til Friedrichshafen við Bodensee þar sem gist verður í 4 nætur
á hóteli alveg við vatnið. Farið verður í skemmtilegar skoðunarferðir, t.d siglt
yfir vatnið og blómaeyjan Mainau heimsótt. Heiðurinn að þessum stórglæsilega
lystigarði á Bernadotte greifi. Ekið inn í Sviss til Urnäsch við Säntis fjall, þar sem
hægt er að komast upp í 2502 m hæð með kláfi. Þaðan er stórkostlegt útsýni
yfir til 6 landa. Komið til Lindau, sem er heillandi bær og sá stærsti við vatnið.
Ferðin endar í Augsburg þar sem gist verður í 2 nætur. Þar skoðum við m.a.
fyrstu verkamannabústaði í heimi, sem Fugger kaupmannaættin reisti á 15. öld
og enn er búið í, en leigan hefur ekki hækkað síðan þá!
Fararstjóri: Þórhallur Vilhjálmsson
Verð: 179.700 kr. á mann í tvíbýli
Innifalið: Flug, skattar, hótelgisting, hálft fæði, allar skoðunarferðir með rútu,
ferja frá Meersburg til Konstanz og íslensk fararstjórn.
www.baendaferdir.is
Sp
ör
eh
f.
s: 570 2790
A L L I R G E T A B Ó K A Ð S I G Í B Æ N D A F E R Ð I R
SUMAR 9
2. - 9. ágúst
Blómálfar & vatnadísir
Hálftfæðiogallarskoðunarferðirinnifaldar
Travel Agency
Authorised by
Icelandic Tourist Board
Lífeyrissjóður Akraneskaupstaðar
Ársfundur 2012
Ársfundur Lífeyrissjóðs Akraneskaupstaðar verður haldinn
föstudaginn 11. maí kl. 12.00, í Bæjarþingsalnum á
skrifstofum Akraneskaupstaðar að Stillholti 16-18, Akranesi.
Dagskrá
1. Venjuleg ársfundarstörf samkvæmt samþykktum sjóðsins
2. Breyting á samþykktum
3. Önnur mál löglega upp borin
a. Kynning á mögulegri sameiningu lífeyrissjóða með
bakábyrgð sveitarfélaga
Allir sjóðfélagar sem og launagreiðendur og viðkomandi
stéttarfélög eiga rétt til fundarsetu með málfrelsi og tillögurétti
og eru þeir hvattir til að mæta.
Fundargögn verða afhent á fundarstað fyrir setningu fundarins.
Akranesi, 20. apríl 2012
Stjórn Lífeyrissjóðs Akraneskaupstaðar
Veður víða um heim 20.4., kl. 18.00
Reykjavík 7 léttskýjað
Bolungarvík 3 léttskýjað
Akureyri 3 alskýjað
Kirkjubæjarkl. 7 alskýjað
Vestmannaeyjar 7 heiðskírt
Nuuk -3 skýjað
Þórshöfn 7 skúrir
Ósló 3 skúrir
Kaupmannahöfn 7 léttskýjað
Stokkhólmur 3 súld
Helsinki 5 skúrir
Lúxemborg 8 léttskýjað
Brussel 10 skúrir
Dublin 6 slydda
Glasgow 10 skýjað
London 8 skýjað
París 10 skúrir
Amsterdam 11 léttskýjað
Hamborg 15 léttskýjað
Berlín 16 heiðskírt
Vín 16 skýjað
Moskva 15 heiðskírt
Algarve 17 léttskýjað
Madríd 18 léttskýjað
Barcelona 17 léttskýjað
Mallorca 17 léttskýjað
Róm 15 léttskýjað
Aþena 18 léttskýjað
Winnipeg 5 léttskýjað
Montreal 7 alskýjað
New York 19 skýjað
Chicago 6 alskýjað
Orlando 27 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
21. apríl Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 5:33 21:21
ÍSAFJÖRÐUR 5:26 21:38
SIGLUFJÖRÐUR 5:09 21:21
DJÚPIVOGUR 4:59 20:53
Ingvar P. Guðbjörnsson
ipg@mbl.is
Flugfarþegar á Keflavíkurflugvelli
mega nú búast við því þegar þeir
kaupa vörur í Leifsstöð að þeir verði
að framvísa flugnúmeri til að fá af-
greiðslu.
„Þetta er ákvæði sem hefur verið í
gildi um nokkurt skeið um sölu í toll-
frjálsri verslun,“ segir Karen Braga-
dóttir, forstöðumaður tollasviðs hjá
tollstjóraembættinu í gær, aðspurð
um þessar breytingar.
Þó þessar reglur hafi verið í gildi
um nokkurt skeið hafa flugfarþegar
ekki orðið varir við að farið hafi verið
eftir þeim í framkvæmd fyrr en nú.
Ákvæðið á við um allar tollfrjálsar
vörur sem seldar eru í fríhöfnum,
jafnvel smávöru á borð við dagblöð.
„Það er eingöngu heimilt að selja
farþegum og áhöfnum millilandafara
á leið úr landi vörur úr tollfrjálsri
verslun og sala skal einungis heimil
gegn framvísun brottfararspjalds,“
sagði Karen en slíkt er í samræmi
við 104. grein tollalaga.
„Í fyrsta lagi eru bara ákveðnar
vörur sem er heimilt að selja í komu-
verslun þannig að farþegar sem eru
að koma að utan hafa í raun ekki
heimild til að fara inn í verslunina
sem þú mátt versla í á leið úr landi.
Einnig er verið að tryggja að þú sért
sannarlega á leið úr landi, en ekki að
vinna á svæðinu,“ segir Karen. Hún
segir þetta tíðkast á flugvöllum víða
erlendis þegar tollfrjáls varningur sé
keyptur, en eigi þó ekki allsstaðar
við um veitingar.
Veitingar í Leifsstöð eru þó al-
mennt án virðisaukaskatts og því á
ákvæðið einnig við þegar farþegar
kaupa sér vínglas eða vatnsflösku.
Herða eftirlitið með fríverslun í Leifsstöð
Morgunblaðið/ÞÖK
Fríhöfn Keflavíkurflugvöllur.