Morgunblaðið - 21.04.2012, Qupperneq 11
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. APRÍL 2012
Finndu okkur á facebook.com/lindexiceland
Think colour!
Kjóll,
3995,–
Miklar framfarir Fólkið spilar á sílófón og fleiri áslátturshljóðfæri.
Margir voru feimnir við hljóðfærin
til þess að byrja með, fljótlega fór
fólk þó að ná færni í spilun. „Það
hafa orðið miklar framfarir. Allir
fengu hljóðfæri í tengslum við
þetta verkefni og við bættum við
klukkutíma á viku en svo sá mað-
ur alveg hvernig áhuginn jókst og
fólk varð í raun hissa á sjálfu sér,“
segir Ása Berglind.
Rannsókn á líðan fólks
Rannsóknin gengur út á
skoða hvaða áhrif markviss tón-
listariðkun hefur á líðan eldri
borgara.
Þetta er eigindleg rannsókn
unnin með viðtölum og dagbók-
arskrifum. „Í þessum viðtölum
hefur komið fram hversu mikils
virði þetta er fólkinu. Fyrir suma
er þetta jafnvel gamall draumur
sem er að rætast en aðrir gera
þetta út af einhverju öðru. Einn
viðmælandinn náði til að mynda að
minnka þunglyndislyfjaskammtinn
sinn um helming eftir að hann
byrjaði í þessari tónlistarsköpun
með okkur.
Þetta gefur þeim mikla lífs-
fyllingu og að koma fram á tón-
leikum og sýna öðrum í samfélag-
inu að þau geta gert ýmislegt.
Fólkið sem byrjaði árið 2007 er
nánast allt með ennþá. Svo hafa
nýir bæst við, en hópurinn sam-
anstendur af 18 einstaklingum.“
Frumsamið efni
Hljóðfærin sem hópurinn not-
ast við eru helst ásláttarhljóðfæri
á borð við sílófón, málmspil,
trommur og annað slagverk en
Ása Beglind sér um undirspil á
píanó og trommur.
„Við erum með mjög fjöl-
breytt lagaval, eins og Valdimars-
lagið er dæmi um. Svo erum við
líka með frumsamið efni. Yfirleitt
fer það þannig fram að allir vinna
saman að laginu, en svo gerist það
líka að fólk kemur með að heiman
það sem það er að gera þar, bæði
ljóð og lög,“ segir Ása Berglind.
Ekki er vitað til þess að fleiri
eldri borgarar komi saman á Ís-
landi. Berglind hvetur hins vegar
alla til tónlistarþátttöku. „Þetta
hefur hreinlega áhrif á lífsgæði.
Ég er enn á frumstigi við úr-
vinnslu gagnanna en það er margt
sem gefur til kynna að þetta veiti
fólki einhvers konar lífsfyllingu,“
segir Ása Berglind.
Sjálf á hún sterkar rætur í
tónlist. „Ég hef alltaf verið í tón-
listarskóla og er trompetleikari
auk þess að vera í listkennsl-
unámi,“ segir Ása. Hún starfar
sem tónmenntakennari við grunn-
skólann í Þorlákshöfn og kennir í
tónlistarskóla Árnesinga.
Skýjavél, rafmagnskappakstursbíll, salt-
framleiðsla í nýju formi, áningarstaður píla-
gríma, málverk séð úr Hörpu, hljóðverk,
gjörningar, grammófónn og róla, vídeóverk
um guðeindina, fylgihlutir, tilraunir með la-
nólin, veftímarit um upprennandi listamenn
og hönnuði, letur í beinum og það nýjasta úr
tískunni. Þetta og margt fleira getur að líta
á útskriftarsýningu nemenda myndlistar-
deildar og hönnunar- og arkitektúrdeildar
Listaháskólans sem opnuð verður í dag,
laugardag, kl. 14.00 í Listasafni Reykjavíkur
– Hafnarhúsi, en sýningin er unnin í sam-
vinnu við Listasafn Reykjavíkur.
Verk nemenda á sýningunni eru afrakstur
þriggja ára náms við Listaháskólann þar
sem markmiðið hefur verið að skapa nem-
endum aðstöðu til að mennta sig sem lista-
menn og gera þá reiðubúna til að takast á
við víðtæk viðfangsefni á skapandi og gagn-
rýninn hátt með forvitni, áræði og framsækni að leiðarljósi.
Sýningarstjóraspjall verður hinn 22. apríl kl. 15:00 – frá myndlistardeild og
29. apríl kl. 15:00 frá hönnunar- og arkitektúrdeild. Hægt er að panta leiðsögn
fyrir hópa í síma 590-1200. Sýningin stendur til 6. maí og er opin daglega frá
10.00-17.00 og á fimmtudögum frá 10:00-20:00. Aðgangur er ókeypis og allir
velkomnir.
Útskriftarsýning Listaháskóla Íslands
Uppsetning Útskriftarsýning Listaháskóla Íslands verður opnuð í dag.
Hljóðverk, lanólin og pílagrímar
Þó sól á lofti lækki
ég leik mér enn um sinn,
og æskuárum fækki
ég áfram þráðinn spinn.
Í Tónalandi ég lifi,
þar lífsgleðina finn.
Þó taktfast klukkan tifi
og tíminn hrukki kinn.
Ég trommuna slæ, taktinum næ,
tipla á tá og hæl.
Er Tónar og Trix
með sín tilþrif og mix,
tekur lagið með stæl.
Ljóð eftir Erlu Markúsdóttir
Haust
LJÓÐAGERÐ